Fálkinn


Fálkinn - 16.03.1964, Side 35

Fálkinn - 16.03.1964, Side 35
Páskaterta Furstakaka Draumakökur Páskatertan. 4 eggjarauður 3 dl sykur 3 msk. vatn I 1 dl kartöflumjöl ! 1 dl hveiti I 4 eggjahvítur. Eggjarauður, sykur og vatn, þeytt saman þar til það er létt og Ijóst. Þurrefnunum sáldrað saman við, hrært vel saman. Eggjahvíturnar stífþeyttar, blandað varlega í deig- ið. Deiginu hellt á vel smurt brauðmylsnustráð mót. Kakan bökuð við 150—175° í um 30—40 mínútur. Hvolft á grind, látin kólna. Ef maður vill hafa súkkulaðibragð af hluta kökunnar er 1 dl af kakó og Vz tsk af lyftidufti sáldrað út í helming- inn af deiginu, auk þess er % eggi hrært saman við. Þá er kakan bökuð í tvennu lagi Ijósi hlutinn fyrst, sá dökki á eftir. Gott er að setja dálítinn rifinn appelsínubörk út í deigið. Appelsínukrem sett á milli botnanna og kakan hjúpuð með súkkulaðibráð, Skreytt með ungum og eggjum búnum til úr marzipan, sem litað hefur verið gult og grænt. Appelsínukrem. 3 eggjarauður 2 msk. hveiti 2 msk. sykur 2 dl mjólk 2 dl appelsínusafi 2 blöð matarlím 1 msk. smjör 2 appelsínur í bitum. Eggjarauður, sykur, hveiti og uppbleytt matarlímið sett í pott, þeytt saman. Mjólk og appelsínusafi hitað, þeytt út í pottinn. Suðan látin koma upp nokkrum sinnum við vægan hita, þeytt stöðugt í á meðan. Smjörinu hrært saman við. Þegar kremið er orðið kalt, er smátt skornum appelsínum eða appelsínumarmelaði hrært saman við. Súkkulaðibráð. 4 dl flórsykur 4 msk. appelsínusafi 2 msk. kakó. Flórsykur og kakó sáldrað í skál, hrært út með ávaxta- safanum. Tertan hjúpuð strax. Kokóskökur Ávaxtaterta. 250 g hveiti 175 g smjörlíki 100 g flórsykur 1 egg Innan í: 50 g smjör 50 g valhnetukjarnar Framhald á næstu síðu. KVENÞJÓÐIN PÁSKABAKSTURINN Ritstjóri- Kristjana Steingrímsdóttir húsmæðrakennari. FALKINN 35

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.