Fálkinn - 21.12.1964, Page 4
Þad er sterkur Ieikur!!
iwmmmmmmmmmumnwmmm
AÐ DREKKA JOHNSON & KAABER KAFFI!
13
KLÆÐIST FÖTUM
FRÁ OKKUR
I nit you. Hvað er hægt
að gera við flösu?
Kæra Pósthólf!
Mig langar til að biðja þig
um þýðingar á nokkrum orð-
um. Þau eru þessi: Así tan-
flerlí, og hvað þýðir I nít you.?
Ég skrifa þetta bara eftir fram-
burði og ég vona að þú afsak-
ir stafsetninguna. Og hvað
þýðir I shold have know
you better? Koma ekki fleiri
skemmtilegar prjónauppskrift-
ir? Hvað er hægt að gera við
flösu?
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Charlotte.
Svar:
Þú œttir aó fara í skóla og lcera
ensku t. d. einlivern kvöldskólann
eöa Bréfaskóla SlS. Allt eru þetta
orö og setningar, sem enginn Tán-
ingur getur án veriö. T. d. setn-
ing eins og I nít you. Spuröu ein-
livern gcejann. Þaö koma alltaf
af og til skemmtilegar yrjónaupp-
skriftir. Ef þú hefur mikla flösu
skaltu fara d einlwerja liár-
greiöslustofuna og vita livort þar
er ekki hægt aö gera eitthvaö
fyrir þig. Annars fœst i fjölmörg-
um búöum svokaliaö flösu sjampo.
Svar til Hata:
ÞaÖ fyrsta sem rétt er aö minn-
ast á þegar bréfi þínu er svaraö
er aö nafniö þitt undir þvi var
nær ólœsilegt. Þetta voru þeir
stafir, sem viö fengum út úr því.
Mál eins og þaö sem þú ert
aö skrifa út af eru alltaf aö koma
fyrir og munu alltaf vera aö koma
fyrir. Og alltaf hafa menn spurt:
Hvaö á ég aö gera? Svörin viö
þessari brennandi spurningu veröa
alltaf jafnmörg og spyrjendurnir
því þetta er mjög einstaklings-
bundiö. Þú ættir ekki aö flytja
aö heiman því þú ert svo ung.
Reyndu heldur aö tala viö for-
eldra þína eöa fá einlivern af
frændum þlnum sem þú minnist
á í bréfinu til þess. Þaö gæti ef
til vill boriö töluveröan árangur.
Geröu bara ekki neitt aö óhugs-
uöu máli sem gæti komiö þér í
koll seinna d lífsleiöinni.
Svar til U.:
Þú œttir ekki aö gera álvöru úr
þessari ákvöröun þinni þvi þú
mundir bera mjög skaröan hlut
frá boröi. Bíddu heldur hægur og
sjáöu hvaö setur þaö mun áreiöan-
lega eitthvaö gerast l málinu bráö-
lega srm hjálpar þér eitthvaö.
Framhaldssögur.
Háttvirta blað!
Mig langar til að skrifa ykk-
ur nokkrar línur og gera að
umtalsefni framhaldssögur í
blaðinu. Ég verð nú að segja
þetta alveg eins og mér finnst,
að framhaldssögurnar í blaðinu
eru nokkuð misjafnar, en þær
eru nú það sem maður les oft-
ast, og ef einhver skemmtileg
framhaldssaga er, þá kaupir
maður blaðið alltaf. Af góðum
framhaldssögum vil ég t. d.
nefna sögur eins og Phaedra,
endurminningar Soraya og
greinarflokkinn um Jacqueline
Kennedy. Þá hafði ég nokkuð
gaman af sögunni um Don
Camillo. Ég held að þið ættuð
að gera meira af því að hafa
kvikmyndasögur sem fram-
haldssögur. Þær eru alltaf vin-
sælar. Svo þakki. ég ykkur
fyrir margt gott í blaðinu á
liðnum árum og kveð. K.
Svar:
Þegar þetta blaö kemur út verö-
ur líklega byrjuö ný framhalds-
saga i blaöinu eöa mjög stutt i
hana. ÞaÖ er hin vinsœla saga um
Tom Jones sem hefur verið kvik-
mynduö og sú kvikmynd hefur
fariö mikla sigurför og hlotiö
margháttuö verölaun. Mun hún
áreiöanlega falla lesendum vel f
geö hér sem annars staöar.
Draugasaga til lesturs
í partýi.
Kæri Fálki!
Ég sé að þú hefur stundum
verið að hjálpa fólki, sem til
þín hefur skrifað og þess vegna
datt mér í hug að þú gætir
hjálpað mér líka. Svoleiðis er,
að bráðum verður hjá okkur,
nokkrum krökkum, partý og
mér datt í hug að lesa þar upp
einhverja draugasögu, vegna
þess, að skvísurnar verða alltaf
svo ferlega hræddar þegar
maður slekkur ljósin. Þá verð-
ur oft alveg geggjað fjör. Það
væri svakalega gott, ef þú gæt-
ir bent mér á einhverja æðis-
gengna sögu til að lesa. Ég hef
ekki fundið neina tryllta í þess*
um þjóðsögum. Þær eru flestar
alveg glataðar. Nú vona ég að
þú skverir þér í þetta og redd-
ir mér um einhverja gasalega
sögu svo að allt geggjist. Ég
vona að þú svarir mér strax.
Lilli.
Svar:
Til er bók sem heitir Gráskinna.
Þar eru margar góöar draugar
sögur þótt ekki sé vist aö þœr
falli þér og þínum i geö. Þú ættir
samt aö athuga bökina vel, Ann-
ars vœri ekki úr vegi fyrir þig
aö skrifa eina geggjaöa og lesa
i partýinu. Þaö gæti reynzt vel.