Fálkinn - 21.12.1964, Blaðsíða 25
HAFNARBÍÓ SVNIR:
Þegar sýningum lýkur á jólamyndinni mun Hafnarbíó taka til sýn-
ingar dönsku myndina Einkaritari læknisins.
Þessi mynd er byggð a samnefndri sögu eftir hinn vinsæla skáld-
sagnahöfund Ib Hendrik Cavling, en sögur hans hafa selzt viS ótrú-
legar vinsældir. Cavling virðist eiga létt með að skrifa, skrifar nokkrar
bækur árlega sem allar seljast eins og heitar lummur þegar þær koma
á markaðinn. Ekki eru bækur hans taldar mikil bókmenntaverk.
Nokkrar sagna Cavlings hafa verið þýddar á íslenzku og hafa
hér sem annars staðar notið vinsælda. Nú fyrir jólin kom út þessi
saga Einkaritari læknisins sem myndin er byggð á. Er því líklegt að
einhverjir lesendur þeirrar bókar muni hafa ánægju af að sjá þessa
mynd.
Söguþráðurinn verður ekki rakinn ýtarlega hér en eins og nafn
myndarinnar bendir til fjallar hann, eins og í fleiri bókum Cavlings,
um sjúkrahúsarómantík. Aðalsögupersónan er Harpa, hjúkrunarkona
og aðstoðarstúlka á rannsóknarstofu taugalæknis. Tveir læknar tauga-
hælisins koma mjög við sögu hvor á sinn hátt. Þá kemur og yfirhjúkrun-
arkonan all verulega við sögu.
Aðalhlutverkið Hörpu, leikur Malene Scwartz. Læknarnir eru
leiknir af Ove Sprogöe og Paul Reichardt sem báðir hafa leikið í fjöl-
mörgum myndum sem hér hafa verið sýndar. Yfirhjúkrunarkonan er
leikin af Lily Broberg en hún hefur leikið í mörgum myndum allt frá
1944. Leikstjóri er Finn Henriksen en hann er einn af hinum yngri
kvikmyndaleikstjórum Dana.
Myndin er í litum og þau atriði hennar sem gerast í Grikklandi
eru tekin þar en ekki í Danmörku.
EIIMKARITARI
LÆKIMISINS