Fálkinn - 21.12.1964, Side 5
Gamalt vín.
Háttvirta Pósthólf!
Sennilega munu þeir, sem
lesa þetta bréf mitt, halda að
ég sé mikill brennivínsberserk-
ur, en svo er nú ekki. Ekki ber
samt að skilja þessi orð mín
svo, að mér þyki ekki sopinn
góður, fjarri fer því, en ég kann
mitt hóf í þessu sem öðru.
Það má heita venja, að einu
sinni í mánuði fái ég mér neðan
( í glasi, eftir því sem ástæður
' leyfa og löngunin er sterk.
Ekki mundi mörgum þykja það
* mikið að eyða einni kvöld-
' stund yfir glasi af góðu víni.
Það held ég tæplega. Konunni
minni finnst það ekki einu
, sinni og þó finnst henni margt
' ábótavant hjá mér, og aldrei
smakkar hún það. Annars var
það ekki vínneyzla mín né vín-
löngun, sem ég ætlaði að gera
; að umtalsefni, heldur markað-
ur á góðum vínum. Eitt það
bezta sem ég fæ er gamalt og
vel lagerað brennivín og áka-
víti. Og það munu margir vera
sama sinnis og ég. En því mið-
ur er það eins með þetta vín,
eins og marga aðra ágæta
hluti, að það er oft ekki auð-
hlaupið að ná í það. Maður
getur fengið dýrar og góðar
tegundir, en ekki gamalt og
vel lagerað íslenzkt brennivín.
Þetta er mikill galli á þjónustu.
Ég veit að margir mundu vilja
greiða örlítið meira fé fyrir
þannig vín, ef það bara fengist.
Svo sé ég ekki ástæðu til að
hafa þetta bréf lengra, en kveð
með beztu árnaðaróskum.
Bakki.
Svar:
2 Þaö luxfa fleiri en þú kvartaö
j yfir þessu Bakki nMnn en þetta
$virÖist allt vera sama vandamál-
iö engu aö síöur. Aö visu er stöku
sinnum liægt aö veröa sér út um
gamalt brennivín en framboöiö og
,eftirspurn haldast hvergi nærri l
fliendur í þeim efnum. Þú ættir
•tað lagera þitt vín sjálfur.
Jólagæsin.
Kæri Fálki!
t Getur þú upplýst okkur tvo
'félaga um það hvort sá siður
Imargra, að borða gæs á jólun-
‘um sé íslenzkur eða ekki?
Okkur leikur töluverð for-
vitni á að vita þetta.
Kær kveðja.
Tveir.
Svar:
Þessi siöur meö jólagæsina er
ekki íslenzkur heldur mun hann
danslcur. En þaö er íslenzkur sið-
ur aö boröa liangikjpt á jólunum.
Auglýsingaflóð.
Kæri Fálki!
Nú stendur hin svokallaða
jólakauptíð sem hæzt með öllu
sínu auglýsingaflóði. Allt þarf
að selja, alla mögulega hluti,
og allt er auglýst. Blöðin eru
full af auglýsingum, auglýs-
ipgatímar útvarpsins virðast
vera nær endalausir og farið
er að gefa út sérstök auglýs-
ingablöð.
Svo líður þessi jólakauptíð
hjá, og þá er eins og þurfi ekki
að selja neitt. Auglýsingar
hverfa úr blöðunum og þulirn-
ir hætta að verða hásir af
miklum auglýsingalestri.
Þetta er eitt það einkennileg-
asta í íslenzku viðskiptalífi.
Þessi óhemju kauptíð rétt fyrir
jólin og þetta óhemju auglýs-
ingaflóð. Á þessum tíma hljóta
fyrirtæki að fara með tugþús-
undir í auglýsingar og þau aug-
lýsa nær öll á sama tímanum.
Þetta hlýtur að hafa það í för
með sér, að eitthvað af þess-
um auglýsingum ná ekki til
viðskiptavinanna. Nú er það
vitað hversu máttur auglýsing-
arinnar er mikill og þá vakn-
ar sú spurning, hvort fyrirtæki
auglýsi ekki með vitlausum
hætti, auglýsi hreinlega út í
loftið. Þá má einnig minna á,
að megnið af þeim auglýsing-
um, sem birtast í blöðum á
þessum tíma, eru subbulegar og
leiðinlegar í frágangi. Ef aug-
lýsing á að ná tilgangi sínum,
þarf hún að vera snyrtilega úr
garði gerð. Ef við lítum í er-
lend blöð og tímarit, sjáum við
fljótlega þann reginmun sem
þarna er á. Og þá er eftir að
minnast á einn þáttinn í þessu
máli og hann ekki minnstan.
Allt þetta auglýsingaflóð á
þessum stutta tíma þreytir við-
skiptavinina svo, að þeir forð-
ast að líta yfir auglýsingasíð-
urnar.
Auglýsingar mættu að skað-
lausu vera jafnari allan ársins
hring og koma að betri notum.
Það er sjálfsagt hjá fyrirtækj-
um að auglýsa, ekki aðeins
vegna eigin hagsmuna, heldur
er það sjálfsögð þjónusta við
viðskiptavinina.
Reklamus,
Svar:
Bréfritari hefur mikiö til síns
máls. AuglýsingaflóÖiÖ er alltof
mikiö á þessum tíma og margar
auglýsingar missa því marks. Þess
vegna er ncer aö auglýsa jafnara
allt áriö.
WJrvai nýtízhu húsgagna
MMagstaítt verð —
góð greiðsiukjör
IINOTAN
HtSGAGNAVERZLUN
Þórsgötu 1 — sími 20820
FALKINN
5