Fálkinn - 21.12.1964, Side 28
APPELSÍNU SULTA
SULTUÐ
’ H1ND8ERJA SULTA
^IpS^ APRfKÓSU SULTA
IARÐARBER1A SULTA M
SULTUÐ SÓLBER
SULTUÐ TÍTUBER
SULTUÐ KIRSUBER
SULTA
STENDUR ALGERLEGA JAFNF/ÍTIS BEZTU
HEIMALAGAÐRI SULTU — HIÐ HREINA BRAGÐ
ÁVAXTANNA HELZT ÓSKERT — ÞVÍ HÚN ER
SULTUÐ
MEÐ NÝRRI AÐFERÐ-ÁN SUÐU
BETRI SULTA ER ÓFÁANLEG I
DRONNINGHOLM ER LÚKSUSVARA!
f SKEMMTILEGUM UMBÚÐUM
DRONNINGHOLM
ER MEÐ HREINU
BRAGÐI
ÚTVALDRA
BERJA!
HVAD GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl:
Farðu gætilega í umferðinni, og láttu
ekki slys eða önnur óhöpp skyggja á jóla-
gleði þína. Því ef þú gætir þin vel, munu
jólin verða þér og þínum hátíð, gleði og
hamingja.
Nautiö, 21. apríl—21. maí:
Þú ert mjög rausnarlegur í gjöfum þín-
um, og peningaveskið heldur x þynnra lagi
eftir það, en hvaða máli skiptir það, fyrst
allir eru ánægðir. Vertu því sjálfur ánægð-
ur, því þú færð kannski alveg óvænta og
frumlega gjöf.
Tvíburarnir, 22. maí—21. júní:
Þú getur sannarlega verið þakklát fyrir,
að það er ekki margt sem komið getur
þér úr jafnvægi. Frídagarnir ættu að geta
orðið þér sérlega ánægjulegir. Vertu ekki
fyrir vonbrigðum með gjafirnar, því þær
eru gefnar af góðum hug.
Krabbinn, 22. júní—23. júlí:
Þú hefur nú yfirstigið flest vandamál og
erfiðleika í sambandi við jólaundirbúning-
inn og getur því leyft þér að gera áætlan-
ir um heimboð og heimsóknir til vina og
kunningja. Skemmtilega tilfundnar gjafir
auka ánægjuna.
Ljóniö, 2í. júlí—23. ágúst:
Þú hlakkar mest til að sjá viðbrögð fjöl-
skyldu þinnar, þegar hún tekur utan af
jólagjöfunum frá þér, því þú hefur lagt
bæði mikla vinnu og peninga í að gleðja
sem flesta. Þú munt njóta jólanna, hvort
sem þú ert. barn eða fullorðinn.
Meyjan, 21t. ác/úst—23. sept.:
Þú ættir að sýna meiri hlýju og vingjarn-
leik. Þú ættir að leggja leið þína i kirkju
um hátíðina, en það ættu nú líka sem flest-
ir að gera. Þú hefur lag á að koma ást-
vinum þínum á óvart.
Vopin, 2k. sept.—23. olct.:
jafnvel þótt áhyggjur og erfiði sæki að
þér, máttu ekki látá það koma í veg fyrir,
að þú getir notið helgi og gleði jólanna.
Vinir þínir og ættingjar munu heimsækja
þig og veita þér ánægju.
Drekinn, 2i. okt.—22. nóv.:
Þótt þú kunnir að vera í seinna lagi með
að gera jólainnkaupin, þá skaltu samt gefa
þér tíma til að líta í kringum þig. Þú
munt að líkindum hitta manneskju, sem
þú hefur ekki séð árum saman.
Bogamaöurinn, 23. nðv.—21. des.:
Jólahátiðin á eftir að verða þér miklu
meiri ánægja en þú hefur búizt við. Það
er meiri gleði i því að gefa en Þiggja, þú
munt verða var við það nú. Bjóddu heim
vinum þínum og ættingjum.
Steingeitin, 22. des.—20. janúar:
Því fleiri sem vinir þínir eru, þeim mun
betra fyrir framtið þína. Jafnvel þótt mál-
in snúist ekki öll þér I vil, skaltu ekki
láta það fá of mikið á þig, það rætist úr
því.
Vatnsberinn, 20. janúar—19. febrúar:
Þetta er upphaf nýs og ánægjulegra
tímabils. Þú hefur fulla ástæðu til að vera
ánægður og munt nú ræða nýjar leiðir við
þá vini þína, sem gera þér þá ánægju að
heimsækja þig um jóiin.
Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz:
Þótt nokkrir minni háttar erfiðleikar
kunni að vera framundan, er engin ástæða
til að láta það hafa of mikil áhrif á jóla-
haldið. Það kemur þér einhver skemmtilega
á óvart. Það gæti verið fiarlægur vinur
binn
28
FALKINN