Fálkinn - 21.12.1964, Blaðsíða 36
REYKJALUNDAR
LEIKFÖNG
ERI)
LÖNGI) LANDSÞEKKT
Ávallt fyrirliggjandi fjölbreytt úrval af plast- og tréleikföngum.
GleðjiS börnin meS góðum leikföngum.
VINNUHEIMILIÐ AÐ REYKJALUNDI
Aðalskritstota Reykjalundi, sími um Brúarland.
Skrifstofa f Reykjavík, Bræðraborgarstig 9. sími 22150.
Dagurinn hennar . .
Framh. af bls. 32.
að halla og öllum er reynt að
gera einhverja úrlausn. Til
dæmis safnar Herinn fataplögg-
um hjá fólki um allan bæ og
dreifir þeim síðan meðal þeirra
sem þurfandi eru. Og þeir eru
fleiri en nokkurn getur grun-
að sem þurfa á slíkri aðstoð að
halda.
Nokkrar konur, sumar í
Hjálpræðishernum, sumar ekki,
koma svo saman reglulega,
taka fötin til athugunar, sauma,
pressa og breyta því, sem þarf.
Nú erum við komin í Her-
kastalann og þar er samankom-
inn hópur ungra hermanna,
það er kjarninn í æskulýðsstarf-
inu sem Auður stjórnar. Þetta
eru prúð og stillt börn á aldr-
inum 7—14 ára.
Þarna er í heimsókn norskur
^rigader Rudolf Romören að
nafni, og hann talar nokkur
orð við börnin en kapteinn Ást-
rós Jónsdóttir túlkar jafnóðum.
Síðan hefst glaður og þrótt-
mikill söngur við gítarundir-
leik og drengur sem varla
stendur út úr hnefa slær feikn-
ar stóra trumbu. Auður Eir
seeir börnunum dæmisögu um
lítinn dreng sem var fjarska
óþægur við mömmu sína. Hon-
um var gert að skyldu að reka
einn nagla í vegginn yfir rúmi
sínu fyrir hvért strákapar eða
hrekkjabragð sem hann framdi.
Það þótti honum afar gaman,
því hann hafði ekkert á móti
því að handfjatla hamar og
nagla. En þá leið að því að afi
hans kæmi í heimsókn og nú
vandaðist málið: hvaða skýr-
ingu gat hann gefið á því að
veggurinn yfir rúminu var al-
þakinn nöglum? Móðir hans
bauðst þá til að gefa honum
stóra mynd af Jesú og með
henni tókst honum að hylja
alla naglana, svo afi varð eins-
kis vísari. „Og þannig hylur
Jesús misgjörðir okkar,“ sagði
Auður að lokum. Þannig er
börnunum kennd undirstöðu-
atriði kristinsdómsins í einföld-
um dæmisögum. Og áhuginn
sem skein út úr hverju andliti
leyndi sér ekki. Þau virtust
skemmta sér vel engu síður en
á bíó því hláturinn gaus upp
öðru hverju þegar foringjarnir
sögðu frá skammarstrikum sín-
um í bernsku. En þau gátu
einnig orðið alvörugefin og full
lotningar þegar sameinazt var
í bæn.
Þegar samkomunni var lok-
ið kvöddum við en Auður Eir
hélt heimleiðis. Enn voru eftir
fáeinar klukkustundir af deg-
inum og okkur datt svona í hug
að Auður ætlaði sér nú kannski
að sinna eiginmanninum ofur-
lítið. Og því drógum við okkur
nú loks í hlé og Auður fékk
að fara frjáls sinna ferða fyrir
okkur.
FÁLKINN
I l V<. I Ht
ÚT
Undarleg Ijós . . .
Framhald af bls. 7.
væri á sumrum í kaupavinnu í
austursveitum. Hann stundaði
þá haustróðra eða aðra vinnu,
er hann fékk. Hann fór ávallt
einfari í ver og úr, og eins á
öðrum tímum milli byggða og
um sveitir. Hann var mjög gef-
inn fyrir að koma á ríkisbæi og
jafnvel að reyna að fá þar
vinnu um tíma, til þess að kynn
ast háttalagi þess fólks, er al-
þýða manna leit upp til. Hon-
um var mjög að skapi að dvelj-
ast á prestssetrum. Hann var
kirkjukær og stundaði mjög að
heyra í sem allra flestum prest-
um. Hann lærði oft heila kafla
úr ræðum þeirra og fór með þá
utanbókar og hermdi þá eftir
prestum. En slíkt gerði Jón ekki
nema á góðri stund, því yfir-
leitt var hann fámáll og fáskipt-
inn, og jafnvel úr hófi fram.
Haust eitt var Jón við haust-
róðra suður með sjó, ekki er
mér kunnugt um hvar það var,
enda skiptir það ekki máli i
þessari sögu. Hann stundaði
sjóinn meðan róið var, en að
róðrum afstöðnum fékk hann
viðvik, er honum geðjaðist að.
Dvaldi hann því þetta haust
lengur syðra en vani hans yar.
En fyrir jól ætlaði Jón berhenti
ákveðið að halda austur í Flóa
til æskuheimilis síns. Rétt fyrir
jól, kvaddi hann kotung og
klerk syðra og hélt til leiðar
austur í sveitir. Honum sóttist
ferðin greiðlega, því hann var
vanur ferðamaður, og hafði
ekki meðferðis nema nokkur
plögg, er hann batt í byrðar og
bar þau í bak og fyrir. Þessa
jólaföstu var veður stillt og
kæla. Lítilsháttar hafði snjóað
á láglendi en meira i fjöll.
Göngufæri var því hið ákjósan-
Framhald á næstu síðu.
FALKINN