Fálkinn - 21.12.1964, Page 42
GAME EFTIR PASS.
Það er mjög óvenjulegt, svo ekki sé meira sagt, að verða
sagnhafi í game sögn eftir að hafa sagt pass við fyrstu
sögn félaga. En þetta kom einmitt fyrir í leik Englands
og íslands á Evrópumeistaramótinu í Baden-Baden í Þýzka-
landi 1962. Enska sveitin sigraði með miklum yfirburðum
á mótinu — þeim mestu, sem um getur á Evrópumeistara-
móti, hlaut 100 stig af 102 mögulegum, og vann íslenzku
sveitina með 44 EBL-stigum. En lítum á spilið.
A 10-8-2
¥ Á-G-9-7-3
♦ Á-7-6
* K-G
A G-9-6-4-3
¥ D-8-6
♦ 9-3
* D-10-8
A 7
¥ 5
♦ K-D-G-8-5-4
* 7-6-4-3-2
Þar sem Englendingarnir sátu Norður-Suður gengu sagn-
ir þannig:
Norður Austur Suður Vestur
1 ¥ pass pass dobl
pass 1 A 2 ♦ 2 A
3 ♦ 3 A 5 ♦ pass
pass pass
Norður-Suður voru á hættu, og Flint í Norður opnaði
á einu hjarta, sem Austur Stefán Guðjohnsen og Suður
— hinn heimsfrægi spilari Harrison Gray — sögðu pass
við. Vestur Lárus Karlsson, var með góða opnun og dobl-
aði, en það aftraði Harrison-Gray ekki í að segja fimm
tígla — og vinna þá.
Vestur spilaði út ás og kóng í spaða, sem sagnhafi tromp-
aði og spilaði laufi. Lárus gerði sitt bezta og lét lítið, en
Harrison-Gray stakk upp kóngnum. sem átti slaginn og
spilaði síðan laufagosa blinds. Hann trompaði síðan eitt
lauf í blindum og vann því spilið auðveldlega. Djarfar
sagnir og vel spilað.
Á hinu borðinu sátu Ásmundur Pálsson og Hjalti Elías-
son í Norður-Suður og komust ekki — sem vel er skiljan-
legt — í fimm tígla þannig, að enska sveitin vann vel á
spilinu. Þess má geta, að aðrir i íslenzku sveitinni á þessu
móti, voru Símon Símonarson og Þorgeir Sigurðsson. Guð-
laueur Guðmundsson var fyrirliði án spilamennsku.
42 FÁLKINN
FÁLK9IMIM
IVfiissið ekki af
næsta blaði
Við gefum áramótablað
FÁLKAIMS út í stærra
upplagi en venjulega.
*
Astæðan er sú, að
þetta blað er óvenju
hugmyndaríkt og
skemmtilegt og við
vitum að það verður
rifið út.
Það borgar sig að kaupa
blaðið tímanlega, strax
næsta mánudag.
Við óskum öllum
lesendum blaðsins
gleðilegra jóla.
FÁLKINIM
Tom Jones . .
ina. Sýndi herra Allworthy
veiðiverðinum réttilega framá
hvílíkur reginmunur væri á að
skrökva til að hlífa öðrum við
sök og hinu, að skrökva til þess
að hlífa sjálfum sér eingöngu
og neyða aðra til þess. Hann
færði það og fram sem rök fyr-
ir því hve alvarlega hann tók
á máli veiðivarðarins, að sá
aumi skálkur hefði átt alla sök
á því er pilturinn Thomas varð
að þola hina hörðustu refsingu.
Þegar saga þessi barst út,
vakti hún að sjálfsögðu mikið
Framhald á næstu síðu.
A Á-K-D-5
¥ K-10-4-2
♦ 10-2
* Á-9-5
Auglýsingín á
næstu síðu er
frá
SNYRTIVÖRUM H.F.
----------------^