Fálkinn - 11.10.1965, Síða 27
a
Vegir hafa verið lagðir upp í Ladak að
sunnan, en þar er yfir mörg fjallaskörð að
fara og djúpa dali. Þess hefur orðið þörf
vegna hernaðarviðbúnaðar, en áður var þarna
fáfarið mjög. Eftir því sem lengra kemur upp
í daiina verða hin tíbezku einkenni skýrari,
en á mörkunum þar sem byggðir arískra
Indverja og Tíbetanna mætast er mikið um
fagurskapað fólk einkum konur.
Vestur af Ladak er Kashmir. breiður djúp-
ur dalur. Sjálf Himalajafjöllin eru þar orðin
lág, en Karakoram, fjöllin fyrir norðan Kash-
mir, eru þeim mun stórfenglegri. Einhver hef-
ur sagt að þar sem höfuðborgin í Kashmir er
— en hún heitir Srinagar — sé fegursta höf-
uðborgarstæði í heimi. Dalbotninn er flatur
og votlendur, og gnæfandi jökulkrýnd fjöll
spegiast þar í vötnunum.
Kashmirbúar eru hreinir Hindúar, ljósari
á hörund en aðrir Indyerjar, margir langleit-
ir, og brúnt hár er þar ekki óalgengt, þeir
eru yfirleitt vestrænni í útliti en aðrir Ind-
verjar.
Þó að á seinni árum hafi veröld fjailanna
verið könnuð mikið og ferðamenn frá Vestur-
löndum séu byrjaðir að skemmta sér þar í
orlofi þá segja menn eystra að víða sé að
finna lokaða fjalladali, þar sem aðkomumað-
ur hefur varla sézt. Sumir þessara dala séu
hrein paradís á jörðu hvað friðsæld og fegurð
snerti. Dalirnir eru margir djúpir og vel grón-
ir og vel failnir til ræktunar, illviðri fjall-
ann fara yfir, ná ekki niður í botnana, og
leysingarvatnið sem flæðir niður hlíðarnar
heldur jarðveginum frjóum og rökum.
Slíkur dalur er Hunza, norður úr Kashmir.
Hunzamenn eru orðnir heimsfrægir fyrir
hversu þeir eru heilsugóðir og langlífir, hve
einföldu lífi þeir lifa og hve framganga þeirra
öll er hermannleg.
Önnui’ kunn leið yfir Himalaja sem ekki
hefur verið getið hér er gamla pílagrima-
leiðin upp með Kali Ganga yfir til Manasarov-
arvatns. í augum Hindúa var þetta heilagt
| ■ vatn, og einnig Kailasfjall þar skammt frá,
en hvort tveggja vatnið og fjallið eru all-
langt inn í Tíbet. Pílagrímaleiðin er nú alveg
lokuð síðan Kínverjar tóku við yfirráðum
í Tíbet.
Meðal kunnustu þjóða í Himalaja eru
Sherpar í Nepal. Þetta er einstaklega harð-
feng fjallaþjóð, hlaut mikið umtal er fjallið
Everest var kilifið i fyrsta sinn 1953, því
að annar þeirra manna sem gengu hátindinn
var Tensing Norkay sem er Sherpi. Sherpar
Framhald á bls. 24.
Gljúfrin við Spiti-fljót í Lndak.
Jakuxar áburðardýr fjallasvæðanna.
Gaddis, "eitahirðar í Spiti.
FALKINN
27