Fálkinn


Fálkinn - 11.10.1965, Side 38

Fálkinn - 11.10.1965, Side 38
ItlTSTJÓIII: KltlSTJANA STEIIVGRÍMSDÓTTIIt APRIKÚSU - EPLASKEL Skclin: 4 dl hveiti Vt tsk. sykur ögn af salti 200 g smjör eða smjörlíki 4 msk. ískalt vatn. 1. Hveiti og smjörlíki sett í skál. Saxað saman með 2 borðhnífum þar til þetta líkist grjónagraut. Salti og sykri bland- að saman við. 2. Hellið 1 msk. í einu af ísköldu vatni yfir deigið. Vatninu blandað saman við með breiðum gaffli. 3. Safnið deiginu saman með fingurgóm- unum, setjið það í málm- eða smjör- pappír. Búið til úr því kúlu, sem sett er inn í ísskáp. Geymt í V2-I klukku- stund. Hægt er að geyma svona deig í ísskáp nokkurn tíma, einnig er hægt að frysta það. Þiðnar það þá yfir nótt í ísskápnum. 4. .Fletjið helminginn af deiginu út í kringl- ótta köku, sem sett er í smurt mót með frekar lágum brúnum. Þrýstið með hveitugum gaffli meðfram brúninni á mótinu, svo þær verði gáraðar og pikk- ið botninn vel. 5. Sjóðið saman útbleyttu aprikósurnar og rúsínurnar í litlu vatni, þar til þær eru mjúkar. Skerið óflysjuð epli í bita og raðið þeim í óbakaða skelina. Sykri stráð á og söxuðum valhnetum. Setjið ávaxtamaukið þarna ofan á. Ef vill má strá dálitlu af sykri þar á. 6. Deigafgangurinn flattur út, sem lok á skelina. Leggið lokið yfir fyllinguna og þrýstið vel að barminum, pikkað með gaffli og berið egg ofan á. Bakað við nálega 200° þar til kakan er fallega ljósgul eða um 30-40 mín. Borið fram volgt sem eftirréttur með vanillusósu eða þeyttum rjóma. f köku þessa má nota alls kyns ávexti og ber. Svona „pie“ eins og Englendingar nefna það, er ekki aðeins hægt að nota í eftir- rétti. Þau eru einnig skemmtileg og ágæt til að nýta upp ýmsan mat bæði kjöt, fisk og grænmeti og getur þá verið aðal- réttur til miðdegisverðar. Er þá hægt að nota sömu deiguppskrift, sem er hér á undan, sleppa að vísu sykri, og þá ef til vill krydda deigið, eftir því sem á við fyllinguna. Munið bara að fara léttum höndum um deigið, annars verður það þungt og seigt í stað þess að vera létt og stökkt, og bráðna í munninum. Innan í: 75 g þurrkaðar aprikósur 50 g rúsínur 3 epli 12 valhnetur 1-2 msk. sykur. 38 falkinn

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.