Fréttablaðið - 10.10.2009, Síða 8
ÚTGÁFA Stefnt er að því að Frétta-
blaðið verði aðgengilegt um land
allt eftir breytingar á dreifingu
þess í lok mánaðarins. Blaðinu
hefur ekki verið dreift svo víða
áður.
Miðað við núverandi upplagstölur
verður samdráttur í frídreif-
ingu um þrjú prósent af upplag-
inu en miðað við undirtektir við
hugmyndir um lausasölu á kostn-
aðarverði má búast við að heild-
aráhrifin verði þau að upplagið
aukist nokkuð frá því sem nú er.
Fréttablaðinu verður dreift frítt á
helstu þéttbýlisstöðum suðvestur-
hornsins: á Reykjanesi, Akranesi,
í Borgarnesi og Árborg og áfram
borið í hús á höfuðborgarsvæðinu
og á Akureyri.
Frídreifing Fréttablaðsins mun
því áfram ná til um 85 prósent
landsmanna. Á öðrum stöðum
verður hægt að fá blaðið í lausa-
sölu á kostnaðarverði.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í fyrradag eru breytingarnar
á dreifingu blaðsins gerðar vegna
efnahagsþrenginganna sem nú
ganga yfir. Auglýsingamarkað-
urinn hefur dregist það mikið
saman að hann stendur ekki undir
jafn stóru upplagi og jafn víð-
tækri dreifingu og áður, auk þess
sem staða krónunnar hefur aukið
pappírskostnað til muna.
Söluaðilar Fréttablaðsins á
landsbyggðinni munu fá hvert blað
á kostnaðarverði.
Eins og fram hefur komið hefur
verið gengið frá samningum við
N1 um að bjóða viðskiptavinum
Fréttablaðið. Fleiri sölustaðir
munu bætast við áður en breyt-
ingarnar koma til framkvæmda og
verða kynntir jafnóðum í blaðinu.
Þeim sem hafa áhuga á að taka
Fréttablaðið til dreifingar á lands-
byggðinni er bent á að setja sig í
samband við Pósthúsið í síma 585
8300. Áfram verður hægt að fá
Fréttablaðið í fullri áskrift utan
hefðbundins dreifingarsvæðis.
Það kostar 2.890 krónur á mánuði .
Blaðið fæst frítt í rafrænni áskrift
í tölvupósti, auk þess sem það er
aðgengilegt ókeypis á Vísi.is.
10. október 2009 LAUGARDAGUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
72
85
0
9/
09
* Innifalið: Flug ásamt flugvallarsköttum, gisting í 3 nætur með morgunverði, rútuferðir til og frá flugvelli erlendis, einnig í Jónshús og í „Fisketorvet“.
Skoðunarferð um Kaupmannahöfn, kvöldverður á Copenhagen Corner, aðgöngumiði í Tívolí og “julefrokost” á Restaurant Kronborg og fararstjórn.
Uppgefið verð getur breyst til samræmis við hækkun á eldsneytisgjaldi og álögðum sköttum og gjöldum. Verðið m.v. gengi 27. ágúst 2009.
KAUPMANNAHÖFN
AÐVENTUFERÐIR
FYRIR ELDRI BORGARA
VERÐ 99.200 KR.*
Á MANN Í TVÍBÝLI
(AUKAGJALD FYRIR
EINBÝLI: 17.700 KR.
Ferðadagar: 15.–18. og 22.–25. nóvember.
Íslenskir fararstjórar: Erla Guðmundsdóttir / Emil Guðmundsson
+ Bókanir á www.icelandair.is/hopar. (Númer hópa er 1207).
Nánari upplýsingar hjá Hópadeild Icelandair í síma 50 50 406
eða með tölvupósti á hopar@icelandair.is
Ertu ekki að
froska í mér?
Frábær tilboð í nýrri
verslun í Kringlunni
Fullt verð: 29.900 kr.
Sony Ericsson W302
19.990 kr.
Fullt verð: 29.900 kr.
Sony Ericsson F305
19.990 kr.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
5 lög
fylgja
5 lög
fylgja
Fást aðeins í Kringlunni
2.490 kr.
Glæsilegir Essasú Dogma bolir
Takmarkað
magn
Fréttablaðið verður
fáanlegt um allt land
Fréttablaðið verður fáanlegt á kostnaðarverði á fjölmörgum stöðum þar sem
blaðið hefur ekki verið fáanlegt áður. Með breytingunni mun dreifingarsvæði
blaðsins aukast til muna. Frídreifingin nær áfram til um 85 prósent landsmanna.
■ Fréttablaðið verður aðgengilegt um land allt.
■ Blaðinu verður dreift frítt á svæði þar sem 85 prósent landsmanna búa.
■ Um 97 prósentum af upplagi blaðsins verður dreift frítt.
■ Á öðrum stöðum fá söluaðilar blaðið á kostnaðarverði.
■ Söluaðilar leggja sjálfir á þann kostnað sem til fellur vegna flutnings.
Fyrirhuguð dreifing Fréttablaðsins
Núverandi dreifingarsvæði
Áætlað viðbótar-dreifingarsvæði