Fréttablaðið - 10.10.2009, Qupperneq 12
10. október 2009 LAUGARDAGUR
Frábær tilboð
í nýrri verslun
í Kringlunni
5 lög fylgja öllum
tónlistarsímum
Fullt verð: 53.990 kr.
Nokia 6730
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
42.990 kr.
Fullt verð: 13.900 kr.
Nokia 2330
9.990 kr.
Fást aðeins í Kringlunni
2.490 kr.
Ertu ekki
að froska
í mér?
Frábært
tilboð!
Glæsilegir Essasú Dogma bolir
Takmarkað
magn
SÓL BORGIR ÆVINTÝRI SKÍÐI GOLF ÍÞRÓTTIR
148.826kr.*
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000
Tenerife
MEIRA Á
urvalutsyn.is
- betra veður í allan vetur!
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið fékk í
gær gögn Existu er varða birtingu
upplýsinga í Kauphöll.
Hvorki náðist í Lýð Guðmunds-
son, stjórnarformann Existu, né
forstjórana Erlend Hjaltason og
Sigurð Valtýsson þegar eftir því
var leitað í gær. Talsmaður Existu
segir ekki um húsleit að ræða.
Fáir starfsmenn eftirlitsins hafi
komið í höfuðstöðvar Existu og
óskað eftir gögnum, sem þeir hafi
fengið.
Fjármálaeftirlitið (FME) vildi
ekki tjá sig um húsleitina þegar
Fréttablaðið leitaði eftir því í gær
og vísaði til lagaramma sem bind-
ur hendur þess til upplýsingagjaf-
ar um einstök mál. Samkvæmt
upplýsingum sem Fréttastofa
Stöðvar 2 og Bylgjunnar fékk frá
FME er fjöldi mála til skoðunar
sem snýr meðal annars að mark-
aðsmisnotkun, innherjaviðskiptum,
rangri skýrslugerð og slæmum
viðskiptaháttum. Eftirlitinu hafa
borist ýmsar ábendingar og eru
þær skoðaðar sérstaklega. - jab
Fjármálaeftirlitið sótti upplýsingar í höfuðstöðvar Existu í gær:
Kauphallargögnin í rannsókn
RÍKISFJÁRMÁL Ríkið ætlar að taka
þátt í 23 milljóna evra hlutafjár-
aukningu í Eignarhaldsfélaginu
Farice ehf. og leggja fram 6,25
milljónir evra, jafngildi 1,1 millj-
arðs króna. Heimildar er aflað í
frumvarpi til fjáraukalaga.
Að sögn Guðmundar Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra Farice,
er ríkið eini hluthafinn sem hefur
skuldbundið sig til að taka þátt í
hlutafjáraukningunni, sem var
samþykkt í stjórn félagsins í síðustu
viku. Ríkið á fjórðung hlutafjár en
Landsvirkjun er stærsti hluthafinn
með um 29,5 prósent. Afgangurinn
er í eigu Skipta, Og Vodafone, Orku-
veitu Reykjavíkur og HS Orku.
Farice rekur sæstrengina Far-
ice og Danice, sem tekinn var
í notkun í haust. Danice er enn
ekki farinn að skila þeim tekjum
sem áætlað var að féllu til á þessu
ári. Seinkun á framkvæmdum við
gagnaver Verne Holding á Kefla-
víkurflugvelli er um að kenna, að
sögn Guðmundar.
„Það hefur orðið ákveðinn for-
sendubrestur,“ segir Guðmund-
ur. „Við erum ekki í vafa um að
þessar tekjur muni koma en það
er áreiðanlega 6-12 mánaða frest-
un á því,“ segir hann. Danice mun
einnig geta annað þeirri flutn-
ingsgetu sem þarf til ef áform
bandaríska fyrirtækisins Green-
stone um gagnaver við Blönduós
ná fram að ganga.
- pg
Hlutafjáraukning Farice vegna tafa á gagnaveri Verne Holding:
Ríkið leggur fram 1,1 milljarð
SÆTRENGUR Danice bíður fullbúinn eftir
því að gagnaver taki til starfa hér á landi
og nýti flutningsgetuna. Tafir valda því
að orku- og fjarskiptafyrirtæki þurfa að
leggja fram nýtt hlutafé.
Í síðasta mánuði kærði Nýja Kaupþing
forsvarsmenn Existu og nokkra starfs-
menn endurskoðunarfyrirtækisins
Deloitte og lögmannsstofunnar Logos
til sérstaks saksóknara vegna hluta-
fjárhækkunar Existu í desember í fyrra
og sölu félagsins á rúmlega fjörutíu
prósenta hlut í Bakkavör. Lögmanns-
stofurnar sáu um tilkynningu vegna
hlutafjárhækkunarinnar.
Bankinn taldi ólöglega staðið að
hlutafjárhækkuninni auk þess sem
leita hefði átt samþykkis lánardrottna
fyrir sölu á Bakkavör til félags í
eigu bræðranna Ágústar og Lýðs
Guðmundssona.
Þetta er ekki eina málið gegn Existu.
Í gær tilkynnti félagið að því hefði
borist stefna frá skilanefnd Kaupþings
vegna greiðslu á 20,1 milljarði króna
vegna gjaldeyrisviðskipta. Krafðist
skilanefndin viðurkenningar á rétti
til innistæðu Existu í nýja bankanum
á tæpa 12,9 milljarða. Exista segir í
tilkynningu dómstólaleiðina jákvætt
skref þar sem neyðarlögin hafi fram til
þessa komið í veg fyrir að félagið geti
sótt mál sitt fyrir dómstólum.
NOKKUR MÁL GEGN EXISTA
TOPPARNIR Nokkur mál eru á borði FME
og sérstaks saksóknara tengd Exista.