Ljósberinn


Ljósberinn - 19.12.1931, Blaðsíða 9

Ljósberinn - 19.12.1931, Blaðsíða 9
LJÖSBERINN 379 H e i m p r á. Eftir Karl Herbert. Jón lá með hendurnar undir hnakka sér og horfði eins og í leiðslu upp í him- ininn, sem hvelfdist yfir honum heiðblár og ljómandi. Hann var að plægja haust- plægingu og vænti sér nú mikils arðs af þeim bletti, sem hann var nýbúinn að plægja. Það var ekki stór búgarður, sem hann átti; en hann var sístarfandi og var rnikill hugur á að koma ár sinni vel fyr- ir borð, því að hann átti örðugt upp- dráttar. Hann hafði erft jörðina eftir föður sinn; var hann þá dáinn fyrir nokkrum árum. Þeir voru hjáleigubænd- ur óðalseigandans ríka, sem átti akur- land og skóga upp í land svo mílum skifti. En svo varð óðalseigandinn allt í einu gripinn af hugsjónum tímans, og bauð nú leigulendingum sínum hjáleig- urnar fyrir tiltölulega lítið verð; en samt var það nógu hátt fyrir marga og þá einkum fyrir foreldra Jóns, þau Gurine og Hans Aasen. Það var af því, að kotið þeirra var fram í dalnum, svo að þar var óhægt um vik að selja afurð- ir kotsins. Það var allt erfitt viðfangs. Jón var einkasonur þeirra hjóna og átti að erfa eignina. Jörðin fóðraði fjór- ar kýr, hest og nokkra grísi. Dálítill skógteigur fylgdi jörðinni líka. Ö nei, þessi arfleifð var helzt eins og fyndinn náungi sag'ði: »Að lifa á rentunum af skuld«. En nú dóu báðir foreldrar Jóns. Það var næm lungnabólga, sem varð þeim að dauðameini. Þau fylg'dust trúlega að í lífinu og nú fylgdust þau að í dauð- anum. Nú fór að verða reglulega örðugt upp- dráttar fyrir Jóni. Nú skildi hann það fyrst, hvað þessar gömlu og lúnu mann- eskjur höfðu verið honum frá blautu barnsbeini. Nú varð Jón að ráða til sín stúlku til að annast hús og skepnur; var það svo mikið starf, að hann þurfti næstum að fá sér vikadreng líka, en þá færi fólkið að hlæja, ef hann gerði það. Ónei, fátækir bændur verða að hafa sig hæga — var faðir hans vanur að segja. En hve hann saknaði Ingiríðar. En hvar í veröldinni skyldi hún nú vera? Auðvitað í Englandi sí og æ. Honum var óskiljanlegt, hvernig nokkur gæti haft lánið með sér. Þau Ingiríður höfðu alist þarna upp í sömu byggðinni; hún var dóttir hjáleigubónda, nákvæmlega eins og hann. Fríð var hún sýnum og hyggin, já, skarpskyggn. Þau voru beztu vinir undir sólu. Og fyr en hann vissi vitund af, þá var hann orðinn ást- fanginn af henni árið eftir ferminguna. Hann sagði aldrei neitt, en Ingiríður varð að segja sér það sjálf af framkomu hans með ótalmörgu móti; en hann þorði ekki að biðja hennar; hann var svo fátækur og Ingiríður var jafnvel fátækari. Hann ætlaði nú að hafa sig upp með vorinu, og þá yrði mannsmót að sér og þá ætlaði hann að biðja Ingiríði litlu, að — verða konan sín. Og hann var viss um, að hún mundi taka því, því að hann þóttist hafa séð, að henni stóð ekki á sama um hann. Ef hann hefði ekki ver- ið svona heimskur, heldur sagt henni, hvað honum bjó í brjósti, þá hefði hann getað fengið fríðustu stúlkuna í sveit- inni. Og þá mundi vinnan hafa orðið honum eins og leikur. En nú — tjú! Skuldir og armóður á allar hliðar. Hann lá nú þarna lengi, lengi og horfði upp í himininn, eins Qg' í leiðslu,

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.