Ljósberinn


Ljósberinn - 19.12.1931, Side 21

Ljósberinn - 19.12.1931, Side 21
LJÓSBERINN 391 vertu hjá oss með friði þínum. Láttu okkur hittast á himni ásamt öllum ást- vinum okkar. Amen. — Nú, mamma, skulum við víst rísa á fætur og þreyta okkur dálítið, svo að okkur verði ekki kalt«. »0, mér er ekki kalt; við skulum held- ur sitja fáeinar mínútur enn, eg er svo þreytt«. »Já, mamma, en við höfum svo oft heyrt það, að þeir, sem frjósa í hel, sofna og sofa fyr en nokkur veit af, og þeim finnst sér liða svo vel. Við verðum að gæta okkar, að kuldinn gabbi okkur ekki. Komdu nú«, og hann togaði í hand- legginn á henni. En þá varð hann sjálfur valtur á fót- um og hneig niður við hlið henni og kveinaði ögn við um leið. »Hvað er þetta þó, pabbi?« »Eg hefi víst misstigið mig, það er svo mikill snjór neðan í hælunum á öðru stígvélinu. 0, mig verkjar svo í öklalið- inn«. »Ö, hvað verður úr þessu? Nú getur þú ekki gengið; hér verðum við að frjósa i hek því að ekki þori eg að fara ein og leita hjálpar og svo get eg ekki heldur farið frá þér. Getum við ekki bundið vasaklútinn minn fastan um fótinn?« »Það líður kannske frá, ef eg set dá- lítið«. I-Iann reyndi að hreyfa fótinn og staulast á honum; en hann varð brátt að setjast aftur. »Nú er það vegurinn til Guðs, sem einn er opinn, en það er þá líka bezti vegurinn«, sagði Hans. Kristín reis á fætur og vappaði kring. »Þú mátt ekki ganga, mamma, það er gagnslaust — eða til hverrar handar ætlar þú að fara? Við skulum sitja þétt saman og halda okkur hlýjum svo lengi sem við getum, og svo verðum við alla tíðina að ákalla Guð. Hann sér okkur hér á þessu eyðihjarni', hann vantar hvergi vegi, hann vantar aldrei mátt«. Svo sátu þau þá grafkyr hvort hjá öðru og börðust við Guð í bæn, eins og Jakob forðum — með efa og trú og von og ótta. Hugur þeirra hvarflaði yfir lið- in ár og dvaldi lengi við allar hinar góðu endurminningar, sem þau áttu og gleymdu því, sem þungbært hafði verið. Þau báðu fyrir börnum sínum og barna- börnum, að Guð léti þeim alla þá bless- un í skaut hrynja, sem þau gætu á móti tekið. Nú lægði storminn, en snjóaði áfram; en þó tóku þau ekki eftir því — hugsuðu ekkert út í það, þótt snjónum hlæði þeim á bak og herðar. Þarna sátu þau hvort í sínum hugsunum, og þau voru langt burtu frá mönnum. Þau tóku heldur ekki eftir því, að uppstytta var komin; stjörnurnar voru aftur komnar í ljós á himninum. Heima á búgarðinum ætlaði Andrés að g'anga út og slökkva á ljóskerunum; en nam staðar í dyrunum steinhissa; hann hafði heyrt að sönnu, að stormur var úti fyrir, en hann óraði ekki fyrir, að svo miklum snjó hefði hlaðið niður. En sú kafaldshríð; þrepin úti fyrir dyr- unum voru hulin af snjó; hann lá alveg upp að dyrastöfunum. Það, sem honum datt næst í hug, var þetta: Ætli pabbi og mamma séu komin heim? Hann skundaði niður að garðs- hliðinu. Stór skafl lá frá stafninum á útihúsinu heim að stofuhúsinu. Hann sá hús foreldra sinna, en þar var hvergi ljós í gluggum. Skyldu þau vera komin heim og gengin til náða? En klukkan var ekki nema tíu og nú var aðfanga- dagskvöld! Þá fer fólk ekki svo snemma að hátta. Hann varð að vita vissu sína

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.