Fréttablaðið - 11.11.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Fréttablaðið er með 143% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
71,4%
29,3%
MIÐVIKUDAGUR
11. nóvember 2009 — 267. tölublað — 9. árgangur
„Ég hef aldrei lent í öðru eins. Og hef ég nú lent í ýmsu,“ segir Ægir Sævarsson, sölumaður hjá Bet-ware á Íslandi, sem gripið hefur í leiðsögumennsku flest sumur síð-ustu sautján ár eða svo. Ein slík ferð í júlí síðastliðnum er Ægi minnisstæð.
Ægir var leiðsögumaður í svo-nefndri VIP-ferð þar sem við-skiptavinir, í þessu tilfelli fjögurra manna fjölskylda frá Frakklandi, panta jeppa með leiðsögumanni í heila viku til að ferðast um landið þvert og endilangt. „Eldsnemma einn morguninn ákváðum við að keyra út í Ing-ólfshöfða, klettahöfðann suður af Öræfajökli, eins og ákveðið hafðiverið. Keðja hafði verið
til en jeppinn keyrir þvert í veg fyrir mig og snarstoppar.“Ægir þurfti að nauðhemla og lá við að hann fengi alla fjölskylduna á mælaborðið hjá sér. Hann steig út úr bílnum og ætlaði að ræða við manninn á jeppanum. „Hann er svona rosalega reiður og engu tauti né rauli komandi við hann. Áður en ég vissi hvað var að ger-ast var hann búinn að vinda sér inn í bílinn hjá okkur, taka lykil-inn úr svissinum og keyra burt.“Ægir segist ekki hafa vitað sitt rjúkandi ráð þegar þarna var komið við sögu. „Mér datt í hug að sýna þessum ágætu ferða-mönnum smá sýnishorn af þjóðaríþrótti
sem hann vann hjá og bað um aðstoð. Svo tók við heil klukku-stund þar sem fjölskyldan og leið-sögumaðurinn sátu á sandinum og veltu fyrir sér næsta skrefi. „Ég vissi svo sem að þetta myndi redd-ast, enda kom eiginkona mannsins um síðir á traktor út á sandinn og skilaði lyklunum. En það sem stendur upp úr eru viðbrögð mannsins. Vel má vera að ég hefði ekki átt að losa keðj-una og nota aðstöðu sem hjónin höfðu byggt upp, en þetta voru algjörlega fáránleg viðbrögð við lítilfjörlegum glæp, ef um glæpvar þá að ræð Áb
Hasarinn við Höfðann
VEÐRIÐ Í DAG
BARNABÆKUR
Myndabækur, sígildar
sögur og ævintýri
Sérblað um barnabækur
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
Tap í Teheran
Íslands tapaði fyrir
Íran, 1-0, í vináttu-
landsleik í Teher-
an í gær.
ÍÞRÓTTIR 31
TAKTU TILBOÐSBLAÐIÐ MEÐ ÞÉR
ÞEGAR ÞÚ FERÐ AÐ VERSLA Í BÓNUS
ÆGIR SÆVARSSON
Fór í ferð með fjóra
franska hrakfallabálka
• á ferðinni • jólin koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
Skólastjóri í
Tékklandi
Pavel Manásek bjó
ásamt konu sinni í
sextán ár á Íslandi.
Þau eru nú flutt
aftur til Tékklands
og gera það gott.
TÍMAMÓT 22
Pólitískar vinaráðningar
Pólitískar vinaráðningar gera
stjórnsýsluna pólitískari. Skilin
milli þess faglega og pólitíska
verða óljós, skrifar Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir.
UMRÆÐAN 18
Hvessir í kvöld Í dag verður
hægviðri víða norðanlands en
sunnanlands má búast við 5-10
m/s og vaxandi austanátt í kvöld.
Víða nokkuð bjart en þykknar upp
sunnan- og suðaustanlands.
VEÐUR 4
6
2 2
3
4
VIÐSKIPTI Erlendum fjárfestum mun
gefast kostur á fjárfestingum í
flestum geirum íslensks atvinnulífs
innan tíðar, segir í nýrri skýrslu um
erlendar fjárfestingar á Íslandi.
Í henni kemur fram að líklegt sé
að Sjóvá, VÍS, Skipti og Vodafone
verði seld bráðlega enda séu þau
óbeint í eigu íslenskra ríkisbanka.
Bent er á að mikil þörf sé fyrir nýtt
eigið fé inn í fyrirtæki hér á landi.
Viðhorf Íslendinga til erlendra
fjárfestinga var kannað áður en
skýrslan var unnin. Niðurstöð-
ur þeirrar könnunar eru að mikill
meirihluti bæði almennings og
stjórnenda fyrirtækja er mjög
jákvæður í garð þeirra. Magnús
Bjarnason, forstjóri Capacent
Glacier, ráðgjafarfyrirtækisins
sem gerði skýrsluna, segir þær
miklu jákvæðari en hann hefði talið
fyrir fram.
Viðhorf til fjárfestinga erlendra
fyrirtækja í sjávarútvegi og orku-
iðnaði er þó frekar neikvætt.
- sbt / sjá síðu 16
Líklegt að erlendir fjárfestar horfi til trygginga- og símafyrirtækja:
Langflestir vilja erlent fjármagn
FJÁRMÁL Ríkisstjórnin er tilbúin að lækka þá
upphæð sem umhverfis-, orku- og auðlinda-
gjöld skila í ríkiskassann á næsta ári úr 16
milljörðum króna í 7,5 milljarða. Samtök
atvinnulífsins (SA) og Alþýðusamband
Íslands (ASÍ) hafa mótmælt þessum gjöldum
og er þetta tillaga til sáttar. Orkugjaldið
verður, samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins, tólf aurar á kílóvattstund, ekki ein króna
eins og lagt var til í fjárlagafrumvarpinu.
Unnið er að tillögum um útfærslu á skatt-
kerfinu og einar tillögur gera ráð fyrir
þriggja þrepa kerfi. Gert er ráð fyrir að
skattar verði 23,8 prósent af vergri lands-
framleiðslu árið 2010. Í ár verða þeir 28 pró-
sent og árið 2007 voru þeir 31,4 prósent af
vergri landsframleiðslu.
Að kröfu SA og ASÍ er nú unnið að
tillögum um hækkun tryggingargjalds. Sú
hækkun á að skila 7,5 milljörðum króna. Er
þá reiknuð inn í sú útgjaldaaukning sem
ríkið sjálft verður fyrir sem launagreiðandi.
Þess má geta að tryggingargjaldið hækkaði
í sumar úr 5,37 prósentum í 7 prósent. Sam-
kvæmt útreikningum fjármálaráðuneytisins
skilar eins prósents hækkun á grunntekju-
skatti 7,1 milljarði króna í ríkiskassann.
Sveitarfélögin eru stór launagreiðandi og
mun launakostnaður þeirra aukast um 750
milljónir króna, fái þau ekki undanþágu.
Samkvæmt upplýsingum frá Hafnarfirði
þýddi hækkunin í sumar 100 milljóna króna
útgjaldaaukningu fyrir sveitarfélagið. - kóp
Orku- og umhverfisskattar
verði 7,5 milljarðar króna
Ríkisstjórnin tilbúin að innheimta 7,5 milljarða með orku-, umhverfis- og auðlindagjöldum í stað 16 millj-
arða eins og fyrirhugað var. Hækkun tryggingargjalds nemi 7,5 milljörðum. Sveitarfélögin bera tíund þess.
FÓLK „Við erum eins og í Spaug-
stofunni, fólkið bak við störfin,“
segir Ólöf Erla Bjarnadóttir
leirkerasmiður en hún hefur
ásamt tengdadóttur sinni, Ingu
Dóru Jóhannsdóttur, nema í
vöruhönnun, hannað jólapappír
sem kominn er í verslanir.
Þær Ólöf Erla og Inga Dóra
hafa að undanförnu setið við
og pakkað jólapappírnum og
merkimiðum í stíl.
Á pappír Ólafar Erlu eru mynd-
ir af jólakúlum sem hún gerir úr
postulíni með mismunandi bak-
grunni en á pappír Ingu Dóru
eru myndir af hangikjötsmáltíð,
Nóa-konfektmolum og malti og
appelsíni á hvítum grunni.
Pappírinn verður seldur í
örkum fyrir þessi jólin en ekki
tókst að fá hann prentaðan í
rúllur.
Þær prentuðu pappírinn þó
ekki sjálfar heldur sá Oddi
um þann þátt. Hér er sem sagt
alíslensk afurð á ferð.
- gun / sjá Allt
Hangikjötsskreyttar jólagjafir:
Tengdamæðgur
hanna íslenskan
jólapappír
ÞJÓÐLEGUR JÓLAPAPPÍR Ólöf Erla Bjarnadóttir og Inga Dóra Jóhannsdóttir hafa hannað íslenskan jólapappír sem meðal annars
skartar myndum af hangikjöti, konfekti og íslenskum jólakúlum. Freyja litla Benediktsdóttir fylgist með af athygli. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Íslenskur leikur slær í gegn
Íslenskur leikur, sem var sérstak-
lega hannaður fyrir iPhone-sím-
ann, hefur
slegið í
gegn.
FÓLK 28