Fréttablaðið - 11.11.2009, Síða 24
11. NÓVEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● barnabækur
Ævintýrin á stóra tjaldinu
Frægar barna- og unglingabækur hafa oftar en
ekki verið kvikmyndaðar með góðum árangri.
Hér eru nokkrar sem eru löngu orðnar klassískar.
Kvikmyndin Bambi er byggð á bókinni Bambi,
lífið í skóginum, eftir austurríska rithöfundinn
Felix Salten. Hún var gefin út árið 1923 og segir
frá Bamba, karlkyns dádýrs-
kálfi, sem missir móður sína
ungur. Bókin var þýdd og
gefin út í Bandaríkjun-
um árið 1928 og hefur
síðan verið þýdd á yfir 20
tungumál.
Walt Disney framleiddi teikni-
myndina um Bamba árið 1942.
Hún varð gríðarlega vinsæl og
hlaut meðal annars þrjár til-
nefningar til Óskarsverðlauna
fyrir hljóð, lag og frumsamda
tónlist.
Bræðurnir Ljónshjarta er eftir hina sænsku Astr-
id Lindgren. Hún var gefin út árið 1973 og hefur
notið mikilla vinsælda um allan heim. Hún fjall-
ar um bræðurna Jónatan og Karl sem báðir deyja
en fara þá til ævintýralandsins Nangijala þar sem
þeir lenda í ýmsum hættulegum ævintýrum, þurfa
að berjast við óvætti og ómenni.
Sagan um bræðurna var kvikmynduð árið 1977
og leikstýrt af Svíanum Olle Hellbom. Myndin sem er á
sænsku var að einhverjum hluta kvikmynduð á Þingvöllum
á Íslandi en einnig í Danmörku og Svíþjóð.
Ella í álögum, eða Ella Enchanted,
er bók eftir Gail Carson Levine sem
gefin var út árið 1997. Ella fær í
vöggugjöf frá mislukkaðri dís
þá ánauð að þurfa að gera allt
sem henni er sagt. Í sögunni
er nokkurs konar Öskubusku-
þema þar sem Ella er kúguð
af stjúpsystrum sínum en verður
að lokum drottning í ríkinu. Kvik-
mynd var gerð eftir bókinni árið
2004 en þar lék Anne Hathaway
aðalhlutverkið.
Harry Potter þarf vart að
kynna. Bækurnar um galdra-
drenginn og vini hans gerðu
höfundinn J. K. Rowling
heimsþekkta á svipstundu.
Þær eru sjö talsins og hafa sex þeirra
verið kvikmyndaðar. Harry Potter og
viskusteinninn, Harry Potter og leyn-
iklefinn, Harry Potter og fanginn frá
Azkaban, Harry Potter og eldbikar-
inn, Harry Potter og Fönixregl-
an og Harry Potter og blendings-
prinsinn. Síðasta bókin, Harry
Potter og dauðasjásnin, verður
kvikmynduð í tveimur hlutum,
sú fyrri kemur út árið 2010 og sú
síðasta árið 2011.
Hundraðogeinn Dalmatíuhundur er skáldsaga
eftir Dodie Smith frá árinu 1956. Sagan fjallar
um illu tískudrottninguna Grimmhildi Grámann
sem stelur dalmatíuhvolpum til að hamfletta þá
og búa til loðfeld. Disney framleiddi teiknimynd
eftir sögunni árið 1961 og aflaði hún tíundu mestu
tekna allra kvikmynda það árið. Myndin var end-
urútgefin fjór-
um sinnum,
árin 1969, 1979,
1985 og 1991.
Fleiri teikni-
myndir hafa verið
gerðar, laus-
lega byggðar
á sögunni.
Narníubækurnar eru ævintýrasögur eftir C.S. Lewis.
Fyrsta bókin: Ljónið, nornin og skápurinn kom út árið 1950.
Hún segir af fjórum systkinum sem ramba inn í ævintýra-
heiminn Narníu og þurfa að berjast við ill öfl. Bækurnar
eru sjö alls og hafa verið þýddar á 41 tungumál.
Þó höfundurinn hafi ekki viljað að sögurnar yrðu kvik-
myndaðar hefur það verið gert fjórum sinnum. Þrisvar
fyrir sjónvarp og einu sinni fyrir kvikmyndahús. Fyrstu
sjónvarpsþættirnir fóru í sjónvarp árið 1979 en kvikmynd
eftir fyrstu bókinni kom í bíóhús árið 2005. Næsta bókin
um Prins Kaspían var gefin út árið 2008 en verið er að
kvikmynda þriðju bókina.
Sagan endalausa er þýsk ævintýrabók eftir Michael Ende og var gefin út fyrst árið
1979. Enska útgáfan var gefin út 1983. Sagan gerist í hliðstæðri veröld sem kallast
Hugarheimar sem er í mikill hættu vegna þess að fólkið í raunveruleikanum er hætt
að geta ímyndað sér.
Nokkrar kvikmyndir hafa verið gerðar eftir sögunni. Sú fyrsta árið 1984. Ende var
mjög óánægður með útkomuna þar sem verulega var vikið frá sögunni. Mynd númer
tvö kom út árið 1990 og sú þriðja árið 1994. Talið er að til standi að kvikmynda söguna
á ný á næstunni.
Bókin um Ronju Ræningja-
dóttur eftir Astrid Lindgren
kom fyrst út árið 1981. Hún
fjallar um stúlkuna Ronju sem
elst upp í kastala föður síns
og ræningjahöfðingjans Matt-
is. Ronja gerist vinkona Birk-
is Borkasonar, sonar erkióvin-
ar Mattis. Við það fellur Ronja
í ónáð og hún og Birkir fara að
búa saman úti í skógi þar sem
ýmis ævintýri bíða þeirra.
Sagan var kvikmynd-
uð á sænsku árið
1984. Mynd-
in hlaut verð-
launin Silfur-
björninn á al-
þjóðlegu
kvikmynda-
hátíðinni í
Berlín.
Lísa í Undralandi var skrifuð af enska rithöfundinum Charles
Lutwidge Dodgson árið 1865, en hann skrifaði undir dulnefn-
inu Lewis Carroll. Sagan segir af Lísu sem fellur niður um
kanínuholu og inn í ævintýraveröld þar sem lifa furðuskepn-
ur ýmsar. Sagan hefur oft verið kvikmynduð, sett
upp á sviði og í sjónvarpsþáttum. Í fyrsta sinn
var hún kvimynduð árið 1903 og þá sem mynd
án tals. Nýjasta afurðin er kvikmynd eftir leik-
stjórann Tim Burton sem er væntanleg í bíó-
hús á næsta ári. Þar er Lísa leikin af leikkonunni
Miu Wasikowska, óði hattarinn er leikinn af John-
ny Depp. Helena Bonham Carter er rauða drottning-
in og Anne Hathaway hvíta drottningin.
●TWILIGHT-BÆKURNAR SLÁ Í GEGN
Vampírufantasían Twilight eftir bandaríska höfundinn
Stephenie Meyer hefur notið gífurlegra vinsælda síðan
fyrsta bókin kom út árið 2005. Bækurnar í seríunni eru
alls fjórar og heita, Twilight, New Moon, Eclipse og
Breaking Dawn. Þær segja sögu unglingsstúlkunn-
ar Isabellu Swan eða Bellu sem flytur til Forks í
Washington, Bandaríkjunum
og verður ástfangin af 104
ára gamalli vampíru að nafni
Edward Cullen. Verið er að
vinna að gerð bíómynda úr
fyrstu þremur bókunum,
en sú fyrsta, Twilight, kom
út í fyrra og er önnur,
New Moon, væntanleg í
lok mánaðarins.
● BÓKABÚÐ BARNANNA Í PEKING
Bókabúðin The Kid‘s Republic í Peking í Kína er ævintýraveröld út af fyrir sig.
Búðin er hönnuð af arkitektastofunni SAKO og hafa hönnuðirnir sett sig vel
í spor barnanna. Á fyrstu hæðinni er leikherbergi og á annarri hæðinni er
bókabúðin. Engar eiginlegar bókahillur er að finna og geta börnin setið eða
legið hvar sem þau langar til og lesið sögur og ævintýri.
www.nextdoortomagic.blogspot.com
Smáratorgi 1, Kópavogi + Sími: 515 5100 + sala@a4.is + www.a4.is
Glerárgötu 34, Akureyri + Sími: 515 5160 + akureyri@a4.is + www.a4.is
Tilda jólasveinn
Föndraðu fl ottan jólasvein
Pakkningin inniheldur allt efni
fyrir utan tróð. Hæð 57 sm.
Verð 4.990 kr.