Fréttablaðið - 11.11.2009, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 11. nóvember 2009 21
UMRÆÐAN
Elín Björg Jónsdóttir skrifar
um atvinnumál
BSRB átti aðild að stöðugleika-sáttmálanum sem aðilar vinnu-
markaðarins komu sér saman um
ásamt stjórnvöldum og sveitar-
félögum síðastliðið sumar. Banda-
lagið studdi – og styður enn – það
meginmarkmið sáttmálans að
verja kjör launafólks og tryggja
fulla atvinnu. Hins vegar er ekki
sama hvernig að verki er staðið.
Það skiptir að sjálfsögðu höfuð-
máli hvernig þetta er gert, hverjar
áherslurnar eru við atvinnusköpun
og hvernig stjórnvöld bera sig að.
Á nýafstöðnu þingi BSRB var
lögð rík áhersla
á að standa vörð
um almanna-
þjónustuna.
Bent var á að
á samdráttar -
t í mu m vær i
meiri þörf en
nokkru sinni
fyr i r öf lug t
velferðarkerfi.
Göt á öryggisneti
velferðarþjónustunnar geta
hæglega valdið óbætanlegu tjóni,
ekki eingöngu fyrir þá einstaklinga
sem í hlut eiga heldur samfélagið
allt. Frændur okkar Finnar sem
gengu í gegnum djúpa kreppu á
tíunda áratug síðustu aldar hafa
varað alvarlega við því að skera
um of niður í velferðarþjónustu
á samdráttartímum – og ekki að
ástæðulausu. Rannsóknir þar
í landi hafa nefnilega sýnt að
enn í dag er samfélagið að súpa
seyðið af of kröppum niðurskurði
í velferðarþjónustunni á þessum
tíma.
Þessi atriði komu öll ti l
skoðunar á þingi BSRB og varð
niðurstaðan sú að þingið fól forystu
bandalagsins að beita sér af alefli til
að verja störf í almannaþjónustunni
í þeim niðurskurði sem hafinn
er. Þing bandalagsins var ósátt
við þau áform sem birtast í
stöðugleikasáttmálanum þar sem
aðaláhersla er á uppbyggingu
hefðbundinna karlastarfa á sama
tíma og áformað er að skera
ótæpilega niður á sviði heilbrigðis-
, félags- og menntamála.
Ein hlið á þessum málum er
sú að niðurskurður í samfélags -
þjónustunni bitnar fremur á konum
en körlum því í velferðarkerfinu
eru kvennastörf í yfirgnæfandi
meirihluta. Það er öfugsnúið að
byrja á því að fækka kvennastörfum
en setjast að því búnu yfir úrræði
sem miða fyrst og fremst að því
að skapa störf fyrir karla, að þeim
ólöstuðum að sjálfsögðu. Þess má
geta að á þingi BSRB kom fram
gagnrýni á þessa stefnumörkun og
ekkert síður frá hinum svokölluðu
karlastéttum en kvennastéttum.
Allir stjórnmálaflokkar hafa
sagst vilja standa vörð um jafnrétti
kynjanna í atvinnumálum sem öðru.
Þessi framganga er hins vegar ekki
í þeim anda. Stjórnmálamenn verða
að vera sjálfum sér samkvæmir
í orðum og athöfnum. Þetta er
nokkuð sem núverandi ríkisstjórn
verður að taka til sín. Mér virðist
því miður skorta á að samræmi sé
í fyrirheitum hennar annars vegar
og gjörðum hins vegar.
Þegar þeir þættir sem hér hafa
verið raktir eru teknir saman –
mikilvægi velferðarþjónustunnar á
krepputímum á annan bóginn og svo
jafnrétti kynjanna í atvinnumálum
á hinn bóginn – er augljóst að
ríkisstjórnin verður að endurskoða
áherslur í fjárlagagerðinni fyrir
komandi ár.
Höfundur er formaður BSRB.
Ríkisstjórnin endurskoði áherslur í atvinnumálum
ELÍN BJÖRG
JÓNSDÓTTIR
UMRÆÐAN
Sveinn Rúnar Hauksson
skrifar um aðskilnaðarmúra
Í Íslandssögunni er níundi nóvem -ber dagur Gúttóslagsins. Árið
var 1932 og fimmti hver maður
atvinnulaus. Lækka átti kaup
um þr iðjung
og stéttaátök
brutust út í upp -
þoti á bæjar-
stjórnar fundi í
Reykja vík þar
sem kauplækkun
var til afgreiðslu
og síðar götu-
bardagar. Yfir
2 0 lög reglu -
þjónar særðust
og verkamenn
virtust hafa Reykjavík á valdi sínu.
Árið 1989 var Berlínarmúrinn
brotinn niður á sama degi og
alþýða manna sprangaði frjáls
milli austurs og vesturs. Þessa
ánægjulega atburðar hefur
rækilega verið minnst síðustu vikur
og mánuði í flestum fjölmiðlum.
Það er hins vegar visst tómahljóð í
fögnuði yfir falli Berlínarmúrsins,
þegar hvergi er minnst á annan
múr sem stendur og er margfalt
lengri og þrisvar sinnum hærri en
Berlínarmúrinn var.
Það er aðskilnaðarmúrinn í
Palestínu sem Ísraelsstjórn heldur
áfram að lengja og stækka, þrátt
fyrir úrskurð alþjóðadómstólsins
í Haag í júlí 2004. Þá var múrinn
dæmdur ólögmætur, Ísraelsstjórn
gert að rífa hann og bæta
Palestínumönnum tjón sem múrinn
hefur valdið.
Aðskilnaðarmúrinn er reistur á
landi Palestínumanna en fer ekki
eftir landamærum. Með byggingu
hans eru Palestínumenn lokaðir
inni, lokaðir hver frá öðrum, lokaðir
frá sínu ræktarlandi, lokaðir frá
ættingjum og vinum, lokaðir frá
sjúkrahúsum og skólum. Síðan
ræðst herinn inn á þessi innilokuðu
svæði, drepur fólk og fangelsar.
Landtökuliðið gengur oft enn lengra
í árásum á palestínsku íbúana í
skjóli hersins. Smám saman er
byggðum á Vesturbakkanum breytt
í útrýmingarbúðir eins og búið er
að gera Gaza-svæðið.
Það er ekki á valdi Palestínu -
manna að rífa múrinn. Það hvílir á
hverri einustu aðildarþjóð Samein-
uðu þjóðanna að knýja á Ísraels -
stjórn að fara að alþjóðalögum.
Ísland er ekki undanskilið í þeim
efnum. Það þarf sameiginlegt átak í
öllum löndum til að brjóta ísraelsku
aðskilnaðarstefnuna á bak aftur,
rétt eins og gert var gagnvart
Suður-Afríku.
Fögnum falli Berlínarmúrsins,
en minnumst þess að annar múr,
ekki síður óhugnanlegur, er
veruleiki sem blasir við íbúum
Vesturbakkans og Jerúsalem.
Í vikunni frá 9.-16. nóvember mun
alþjóðleg samstöðuhreyfing efna
til ýmissa atburða gegn múrnum
og umsátrinu um Gaza. Leggjum
okkar af mörkum.
Höfundur er læknir og formaður
Félagsins Ísland-Palestína.
Níundi
nóvember
SVEINN RÚNAR
HAUKSSON
Opið í útibúinu
á Kirkjusandi
til klukkan 21 í kvöld
Við tökum vel á móti þér og förum
yfir úrræðin sem standa til boða
Að undanförnu höfum við kynnt úrræði með það að markmiði að auðvelda
viðskiptavinum að taka upplýstar ákvarðanir um fjármál heimilisins.
Má þar nefna:
• Höfuðstólslækkun og greiðslujöfnun verðtryggðra húsnæðislána
• Höfuðstólslækkun og greiðslujöfnun erlendra húsnæðislána
• Höfuðstólslækkun og greiðslujöfnun bílalána
Úrræðin henta viðskiptavinum misvel og við viljum hjálpa þér að vega
og meta kosti þeirra og galla. Þess vegna er gott að setjast niður og fara
ítarlega yfir málin.
Komdu í kvöld og ræddu við starfsmenn um hvaða úrræði henta þér.HV
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
9
-2
0
2
9
Starfsfólk okkar í Þjónustuverinu
verður einnig við símann til kl. 21
í kvöld. Síminn er 440 4000.