Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Blaðsíða 7
En skyldusparnaðurinn er líka að mínu viti alveg
ómetanlegur grundvöllur undir heimilisstofnanir í iand-
inu. Og byggingamenn segja mér, að beztu viðskiptavin-
irnir séu einmitt sparimerkjaeigendur, því inneignin get-
ur hlaupið á hundruðum þúsunda, þegar bæði hjóna-
efnin hafa sparað saman.
— Þú minntist áðan á lífeyrissjóðakerfið. Hvernig er
andinn ykkar á milli?
— Ekki nógu góður.
— Hvers vegna?
— Eg tel, að lífeyrissjóðirnir í landinu, sem eru jafnvel
sterkari fjárhagslega en Húsnæðismálastofnunin ein, ættu
annað hvort að gera: að sjá til fulls um íbúðarlán til sinna
félagsmanna - og þá myndum við annast hina, eða þá,
að þeir ættu að tengjast með einhverjum hætti okkar
íbúðarlánakerfi, svo að við gætum gert jafnvel við alla.
Að vísu keyptu lífeyrissjóðirnir af okkur skuldabréf fyrir
90 milljónir króna síðasta ár (1970), en það gerðu þeir
ekki ótilneyddir. Við höfum á þessu ári neyðst til að taka
upp skerðingarákvæði á lánum okkar til þeirra lántak-
enda, sem eiga kost á háum lánum hjá lífeyrissjóðum.
- Þú sagðist áðan vilja tengja lífeyrissjóðina íbúðar-
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
43