Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Blaðsíða 10
Lög um
Húsnæðismálastofnun ríkisins
nr. 30 12. maí 1970
úrdráttur
l.gr.
Húsnæðismálastofnun ríkisins heyrir undir félags-
málaráðuneytið. Húsnæðismálastjórn veitir stofn-
uninni forstöðu.
í húsnæðismálastjórn eiga sæti átta menn, þar
af sjö kosnir hlutbundinni kosningu af sameinuðu
Alþingi og einn skipaður af félagsmálaráðherra
samkvæmt tilnefningu Landsbanka íslands. Vara-
menn skulu vera jafnmargir og valdir á sama hátt.
Kjörtími húsnæðismálastjórnar skal vera fjögur ár.
Félagsmálaráðherra skipar formann húsnæðismála-
stjórnar en að öðru leyti skiptir hún með sér
verkum.
Félagsmálaráðherra skipar Húsnæðismálastofn-
uninni framkvæmdastjóra og skrifstofustjóra að
fengnum tillögum húsnæðismálastjórnar. Ráðherra
ákveður þóknun til húsnæðismálastjórnar.
Þóknun húsnæðismálastjórnar og laun fram-
kvæmdastjórans greiðast úr ríkissjóði, en annar
kostnaður stofnunarinnar úr Byggingarsjóði ríkis-
ins og Byggingarsjóði verkamanna í hlutfalli við
útlán hvors sjóðsins fyrir sig.
4. gr.
Hlutverk Byggingarsjóðs ríkisins skal vera að
annast lánveitingar til íbúðabygginga, annarra en
þeirra, sem Stofnlánadeild landbúnaðarins lánar fé
til, svo og að standa straum af framkvæmdum, er
húsnæðismálastjórn kann að ráðast í til lausnar á
húsnæðisvandamálum almennings.
Árlegar tekjur sjóðsins skulu vera:
a) Launaskattur, samkvæmt lögum um launaskatt.
b) Framlag úr ríkissjóði, að fjárhæð 75 milljónir
króna.
c) 1% álag, er innheimta skal aukalega, á tekju-
og eignaskatt, og Vj% á aðflutningsgjöld sam-
kvæmt tollskrá.
d) Afborganir og vextir lána, sem veitt hafa verið
af eigin fé eða veitt verða af framlögum ríkisins
til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði.
e) 1% lántökugjald af lánum, er húsnæðismála-
stjórn veitir, svo og vaxtatekjur byggingarsjóðs.
f) Höfuðstóll vaxtabréfa samkvæmt 5. gr. og
vaxtafé af þeim, sem komið er í gjalddaga til
útborgunar, sé þess ekki vitjað innan 20 ára
frá gjalddaga, sbr. 18. gr. laga nr. 55/1945.
Byggingarsjóðurinn skal vera í vörzlu veðdeildar
Landsbanka íslands.
REGLUGERÐ um lánveitingar húsnæðismála-
stjórnar úr Byggingarsjóði ríkisins.
9- gr.
Við úrskurð um lánshæfni umsókna skal húsnæðis-
málastjórn fylgja eftirfarandi reglum varðandi stærð
nýbygginga miðað við innanmál útveggja:
a) Fyrir einstaklinga hámarksstærð 50 m2.
b) Fyrir 2ja-3ja manna fjölskyldu, hámarksstærð
100 m2 í fjölbýlishúsum, en 110 m2 í einbýlis-
húsum.
c) Fyrir 4—5 manna fjölskyldu, hámarksstærð 120
m2 í fjölbýlishúsum, en 125 m2 í einbýlishús-
um.
d) Fyrir 6-8 manna fjölskyldu, hámarksstærð 135
m2.
e) Ef 9 manns eða fleiri eru í heimili má bæta við
hæfilegum fermetrafjölda fyrir hvern fjöl-
skyldumann úr því með þeirri takmörkun há-
marksstærðar, að ekki verði lánað út á stærri
íbúðir en 150 m2.
Um c- og d-liði skal þess sérstaklega gætt, að
herbergjafjöldi sé í sem mestu samræmi við fjöl-
skyldustærð. Við mat fjölskyldustærðar skal ein-
46
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA