Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Blaðsíða 11
ungis miðað við þá, sem skráðir eru til heimilis
hjá hlutaðeigandi umsækjanda samkvæmt vottorði
sveitarstjórnar. Nú vill umsækjandi, sem hefur með
höndum sjálfstæðan atvinnurekstur, byggja auk
eigin íbúðar, en í tengslum við hana, húsnæði, sem
ætlað er atvinnurekstri hans, getur þá húsnæðis-
málastjórn ef sérstakar ástæður mæla með því, haft
hliðsjón af því við mat á hámarksstærð, skv. þess-
ari grein. Það er þó algjört skilyrði, að atvinnuhús-
næðið sé með öllu aðgreint frá íbúð, hafi sérstakan
inngang, hreinlætisaðstöðu og annað það, sem at-
vinnuhúsnæði ber að fylgja. Þá skal umsækjandi
leggja fram skilríki fyrir því að byggingaryfirvöld
hafi samþykkt atvinnuhúsnæði á hlutaðeigandi lóð.
Enn fremur skal atvinnuhúsnæðið sérstaklega auð-
kennt á samþykktri teikningu byggingarnefndar.
10.gr.
Þeir umsækjendur, sem svo stendur á um, sem
lýst er í stafliðum a-e hér á eftir skulu eigi taldir
lánshæfir:
a) Eiga eða hafa átt s. 1. 2 ár nothæfa og fullnægj-
andi íbúð, þ. e. 12 m2 pr. fjölskyldumann að
innanmáli herbergja og eldhúss, enda sé her-
bergjafjöldi íbúðarinnar í samræmi við fjöl-
skyldustærð.
b) Byggja stærri íbúðir en ákveðið er í 9. gr.
e) Byggja fleiri en eina íbúð.
d) Hafa góða möguleika til lána annars staðar, t. d.
sambærilegra eða betri lána en samkvæmt reglu-
gerð þessari eða næg fjárráð að dómi húsnæðis-
málastjórnar, svo að þeir geti betur komið íbúð
sinni í nothæft ástand án frekari lána en aðrir
umsækjendur, er afgreiðslu bíða.
Við mat á lánsmöguleikum umsækjenda skal
þó ekki í þessu sambandi taka tillit til lána úr
þeim lífeyrissjóðum eða eftirlaunasjóðum, sem
árlega verja ákveðnum hluta ráðstöfunarfjár
síns til kaupa á skuldabréfum Byggingarsjóðs
ríkisins eftir nánara samkomulagi við húsnæðis-
málastjórn.
e) Fengið hafa hámarkslán á s. 1. 5 árum nema sér-
stakar ástæður séu fyrir hendi að dómi hús-
næðismálastjórnar.
ll.gr.
Meiri háttar viðbygging, sbr. a-lið 2. gr., telst
vera bygging sem myndar nýja sjálfstæða íbúð,
enda þótt hluti hennar sé í hinni eldri byggingu,
svo og viðbygging, sem eykur gólfflöt eldri íbúðar
um a. m. k. 20 m2, enda hafi íbúðin, að dómi hús-
næðismálastjórnar, verið ófullnægjandi. Saman-
lagður gólfflötur hins eldra húss og fyrirhugaðrar
viðbyggingar fari á sama hátt ekki yfir þau stærð-
armörk er hlutaðeigandi fjölskyldu eru ætluð í
9. gr.
42. gr.
Veðdeild Landsbanka íslands skal sjá um af-
greiðslu þeirra lána, sem veitt eru af húsnæðis-
málastjórn, svo og um innheimtu vaxta og af-
borgana. Veðdeildinni er heimilt að afgreiða íbúð-
arlán húsnæðismálastjórnar til nýbyggingar hús-
næðis, þegar íbúðin er komin það langt áleiðis, að
hún, skv. mati, geti talizt öruggt veð fyrir láninu.
Heimilt er veðdeildinni að halda eftir hluta af lán-
um þar ril frágangur byggingarinnar er orðinn
eins og húsnæðismálastjórn og veðdeildin gera
kröfur um. Enn fremur getur húsnæðismálastjórn
látið halda eftir hluta af lánum, þar til umsækjandi
hefur skilað kostnaðaryfirliti um byggingu íbúðar-
innar.
tímakit iðnaðarmanna
47