Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Blaðsíða 31
ur stofnað, stytti nám í garðyrkjuskóla og fiskvinnslu-
skóla um ár, sbr. álitsgerð kjörsviðanefndar, og iðn-
nám í kjötiðnaði einnig um eitt ár.
Verði stofnað til sjómennskukjörsviðs í framhalds-
deild, veiti ársnám þar rétt til hálfs árs styttingar á
stýrimannanámi.
14.2. Millilausn. Þar er fyrst og fremst um þá nýjung
að ræða, að frá og með 1981 veiti sveinspróf og vélstjóra-
próf 2. stigs, grundvölluð á námsefni, er byggir á grunn-
skólanámi, rétt til að hefja nám beint í raungreinadeild
tæknaskóla.
14.3 Langdrceg lausn. Þar verður öll tenging náms-
brauta auðveldari en fyrr vegna upptöku samræmds
námseiningakerfis og námsmats; sjá lið 13. hér að framan.
15. Tœkjamiðstöð.
Nefndin telur nauðsynlegt, að komið verði á fót í
Reykjavík sameiginlegri tækjamiðstöð, er veiti tæknileg-
um skólum á framhalds- og háskólastigi aðstöðu til verk-
legrar kennslu með viðeigandi tækja- og vélabúnaði. Legg-
ur verk- og tæknimenntunarnefnd til, að sérstakri nefnd
verði falið að kanna þörfina fyrir stofnun slíkrar tækja-
miðstöðvar og annast undirbúning málsins. Ætla má, að
þeir skólar, sem mestra hagsmuna hafa að gæta á þessu
sviði, verði Háskóli íslands, Tækniskóli íslands, Vélskóli
Islands, Stýrimannaskólinn í Reykjavík, Iðnskólinn í
Reykjavík og Póst- og símaskólinn.
Nefndin leggur áherzlu á það, að á umræddum skóla-
stigum verði jafnan kynntir möguleikar hinna fullkomn-
ustu reiknivéla, sem völ er á á hverjum tíma, og fái nem-
endur í tæknilegu námi jafnframt þjálfun í notkun þeirra
reiknivéla, sem líklegt er, að þeir muni nota við störf
sín. Til þess að svo megi verða, þarf að vera til í landinu
úrval reiknivéla, sem skólarnir eigi aðgang að, svo og
leiðbeiningar um notkun þeirra, og virðist nefndinni eðli-
legt, að fyrirhuguð tækjamiðstöð verði hinn skipuleggj-
andi aðili á þessu sviði.
16. Tengsl skóla og atvinnulífs.
16.1 Frceðslunefndir. Til þess að tryggja, að námsefni
samræmist kröfum atvinnulífsins fyrir hinar einstöku
starfsgreinar, leggur nefndin til, að komið verði á fót
fræðslunefndum fyrir hverja starfsgrein eða hóp skyldra
starfsgreina. í slíkar nefndir verði tilnefndir fulltrúar við-
komandi hagsmunasamtaka undir yfirstjórn fulltrúa
fræðsluyfirvalda.
Þessum nefndum til aðstoðar verði starfshópar, skip-
aðir sérfræðingum og reyndum kennurum í viðkomandi
grein. Vinnuhóparnir skipti námsefninu niður í þætti með
skilgreindu markmiði fyrir hvern þátt, sbr. 13. lið.
Fræðslunefndirnar skilgreini starfssvið sérgreinar sinn-
ar og velji síðan þá þætti úr námsefninu, sem þarf til að
mennta nema fyrir starfssviðið. Fulltrúar starfsgreinar
geta farið fram á endurskoðun námsefnis fyrir greinina,
svo og setningu námsskrár um nýtt námsefni.
Nefndin telur eðlilegt, að þau hagsmunasamtök, sem
tilnefna menn í slíkar fræðslunefndir, greiði þeim þókn-
un fyrir störf þeirra.
16.2 Verkskólaráð, skipað fulltrúum frá samtökum
vinnumarkaðarins, kennurum, nemendum, sérfræðingum
og embættismönnum Menntamálaráðuneytisins, verði
ráðuneytinu til ráðgjafar um stefnumörkun og meiri
háttar nýjungar eða breytingar í verk- og tækninámi, sbr.
lið III. 1.5. hér á eftir.
16.3 Orlof kennara á verk- og tæknisviðinu verði að
nokkru skipulagt sem þáttur í myndun tengsla milli at-
vinnulífs og skóla, þannig að kennurum verði að jafnaði
gert að taka vinnuleyfi á ákveðnum fresti og starfa þá
ekki við kennslu, heldur vinna í hlutaðeigandi atvinnu-
grein, kynna sér hana erlendis eða starfa að samningu
námsbóka eða námsgagna í kennslugrein sinni í samráði
við fulltrúa atvinnugreinarinnar.
17. Útgáfa bóka og kennslugagna.
Nefndin vekur athygli á því, að útgáfa bóka og
kennslugagna fyrir verk- og tækninám er verulegt vanda-
mál, sem afar vel verður að gaumgæfa, þegar nám á
þessu sviði er endurskipulagt, eins og tillögur nefndar-
innar miða að. Telur nefndin eðlilegast, að málið verði
a. m. k. í fyrstu leyst þannig, að Iðnskólaútgáfan verði
efld og útvíkkuð í þessu skyni, og beinir nefndin þeim
tilmælum til Sambands iðnskóla á íslandi, að það vinni
að slíkri breytingu á starfsgrundvelli útgáfunnar.
18. Um menntun kennara.
Vakin skal athygli á því, að menntun kennara er grund-
vallaratriði í allri áætlanagerð um þróun verk- og tækni-
menntunar, sbr. liði 13. og 16. hér að framan.
Menntamálaráðuneytið setji reglur um menntunarkröf-
ur til kennara á öllum stigum verk- og tæknináms.
III. MEGINTILLÖGUR UM ALMENN ATRIÐI
OG FRAMKVÆMD
1. Yfirstjórn.
Verk- og tæknimenntun er mjög víðtækt svið, í vax-
andi mæli sérhæft og afar mikilvægt fyrir efnahagsþróun
þjóðarinnar. Er brýnt, að yfirstjórn þessa þáttar fræðslu-
mála verði samræmd innan vébanda Menntamálaráðu-
neytisins og kvaddir þar til starfa sérfróðir aðilar.
Af fyrrgreindum sökum leggur nefndin til eftirfarandi
aðgerðir og skipulagsbreytingar.
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
67