Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Blaðsíða 33
1. Innan ráðuneytisins verði umsjá málefna verk- og
tæknimenntunar á framhaldsskólastigi, svo og verk-
náms í gagnfræðaskóla, sameinuð í óskipta starfsein-
ingu, er að verði ráðnir nægir sérhæfðir starfskraftar
samkvæmt því, sem starfsgreining á verkefnum ráðu-
neytisins leiðir í ljós um þörfina fyrir slíka starfs-
menn.
2. Starfsliðsþörf við þau verk, sem starfseining þessi þarf
að vinna, verður mjög sveiflótt og enn sveiflóttari fyrir
einstakar greinar tæknimenntunar. MannaflaþÖrfin
verður að líkindum mest um seinni hluta skammtíma-
lausnar, minnkar síðan, en vex aftur um seinni hluta
millilausnar, og síðan dregur úr þörfinni smám saman.
Þá verða einnig talsverðar breytingar á samsetningu
starfsliðs á tímabilinu. í fyrsta áfanganum verða aðal-
lega not fyrir ákvarðendur um námsinnihald, bæði
verklegt og bóklegt, þ. e. einkum verk- og tæknifræð-
inga með kennslureynslu og sérfræðinga í bóklegum
greinum; síðan koma til sérfræðingar í námsmati og
þörf atvinnulífsins fyrir menntun, einnig sérfræðingar
í nýtni á kennslu og tækjanotkun, enn fremur kerfis-
fræðingar og tölfræðingar vegna rafreiknisvinnslu.
Ljóst er, að skipulag á vinnu starfseiningarinnar, svo
og ráðningartími einstaklinga til ákveðinna verka,
þarf að vera í mjög sveigjanlegu formi í samræmi við
rök hvers vinnuáfanga.
3. Umrædd starfseining verði sérstök skor, verk- og
tœkninámsskor, innan fræðslumáladeildar ráðuneytis-
ins, og heyrir undir hana málefni allra þeirra skóla/
námsbrauta, sem verk- og tæknimenntunarnefnd hefur
fjallað um, nema búfræði- og garðyrkjunám, svo og
tæknifræði- og verkfræðinám á háskólastigi. Fræðslu-
máladeild á samkvæmt skjalinu „Menntamálaráðu-
neytið, verkefni, skipulag og starfsreglur", útg. 7. maí
1971, að fjalla um málefni flestra umræddra skóla,
og telur nefndin heppilegra til samræmingar að stofna
skor fyrir verk- og tækninám innan vébanda hennar
en að skilja þessar námsbrautir frá öðrum skólum í
sérstaka deild. Nefndin gerir ráð fyris því, að skóla-
rannsóknadeild verði verk- og tækninámsskorinni og
fræðslumáladeild til ráðuneytis um námsskrá og náms-
efni, prófagerð, endurmenntun kennara o. fl.
4. Meðal viðfangsefna verk- og tækninámsskorar verði
eftirtalin atriði:
4.1 Undirbúningur að menntunaráætlun fyrir verk-
og tæknisviðið í samráði við skólarannsóknadeild
og fjármála- og áætlanadeild.
4.2 Samning og endurskoðun námsskrár, þ. á m. for-
skrift verkþjálfunaráfanga í námi, sbr. iið II. 13.,
svo og samvinna við fulltrúa starfsgreina um val
námsþátta.
4.3 Kennslueftirlit, námsstjórn og könnunarpróf.
4.4 Meistarafræðsla iðnnáms, meðan hún er enn við
lýði, staðfesting námssamninga o. þ. u. 1.
4.5 Samráð og aðstoð viðvíkjandi útgáfu og útvegun
kennslubóka og annarra námsgagna, svo og
kennslutækja, sbr. lið II. 17.
4.6 Kennsluaðstaða og húsnæði verk- og tæknilegra
skóla, þ. á m. tækjamiðstöð, í samráði við bygg-
ingadeild.
4.7 Sérmenntun og endurmenntun verkskólakennara, í
samráði við skólarannsóknadeild.
4.8 Mannaflaspá fyrir þörf á menntuðu vinnuafli
vegna ýmissa starfsgreina, í samvinnu við og með
aðstoð verkskólaráðs, sbr. einnig lið II. 16.
5. Verk- og tækninámsskor og ráðuneytinu til aðstoðar
og ráðgjafar verði Verkskólaráð, er leysi Iðnfræðslu-
ráð af hólmi og útvíkki starfssvið þess til allra þeirra
skóla og námsbrauta, sem skorin skal fjalla um. Full-
trúar í Verkskólaráði verði 15-20 talsins, tilnefndir
af helztu samtökum vinnumarkaðarins á þessu sviði,
kennurum og nemendum skóla, sem heyra undir skor-
ina; auk þess fulltrúar frá ráðuneytinu og sérfróðir
aðilar, sem ráðuneytið skipar án tilnefningar. Verk-
skólaráð haldi a. m. k. tvo fundi árlega til þess að
fjalla um ársskýrslu skorarinnar og ganga frá fram-
kvæmdaáætlun næsta árs.
Verkskólaráð kjósi 5 manna framkvtsmdanefnd úr
sínum hópi, og haldi hún fundi eigi sjaldnar en mán-
aðarlega. Hlutverk framkvæmdanefndar verði stöðug
ráðgjöf um stefnumörkun í verk- og tækninámi og
umsjón með skilgreiningu námskrafna og vali náms-
þátta, sbr. liði II. 13 og II. 16. Sérstök reglugerð verði
sett, er kveði á um kjörtímabil, skipan, réttindi, skyld-
ur, verkefni og starfshætti Verkskólaráðs.
2. Lagabreytingar.
Verði álitsgerð verk- og tæknimenntunarnefndar sam-
þykkt, er nauðsynlegt að hefja þegar á næsta hausti undir-
búning að þeim lagabreytingum, sem nauðsynlegar eru
til að koma á hinu nýja kerfi. í samræmi við þetta virð-
ist nefndinni eðlilegast, að haustið 1971 verði skipaðar
laganefndir, svo sem hér greinir:
1. 3ja—4urra manna nefnd, er fjalli um málefni iðnskóla,
þ. e. endurskoðun laga nr. 68/1966 um iðnfræðslu og
laga nr. 18/1971 um breyting á þeim lögum, en
einnig fjalli nefndin um málefni Póst- og símaskóla,
að því er varðar nám símvirkja.
2. 2ja—3ja manna nefnd, er fjalli um málefni vélskóla,
sbr. lög nr. 67/1966 um vélstjóranám. Þessi nefnd
athugi einnig, hvort æskilegt sé og tímabært að
efna til sérstakrar lagasetningar um nám loftskeyta-
manna.
3. 2ja—3ja manna nefnd, er fjalli um málefni stýrimanna-
skólanna, sbr. lög nr. 84/1966 um Stýrimanaskólann
í Reykjavík, lög nr. 73/1964 um stýrimannaskóla í
Vestmannaeyjum og lög nr. 52/1968 um atvinnurétt-
indi skipstjórnarmanna á íslenzkum skipum. Einnig
má benda hér á reglugerð nr. 1/1967 fyrir Stýrimanna-
skólann í Reykjavík, svo og frumvarp til laga um skól-
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
69