Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Qupperneq 8

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Qupperneq 8
lánakerfinu. En er það ekki einmitt til íbúðabygginga, sem þeirra fé rennur? - Um það er í rauninni ekkert vitað með fullkominni vissu. Lífeyrissjóðsþegar fá lán úr sjóðunum með veði í nýjum eða eldri íbúðum en þar með er alls ekki sagt að iánin renni alltaf til íbúðakaupa eða íbúðasmíði. Eg er sannfærður um að þar er mikill misbrestur á, lánsféð er gjarnan notað til annars. Því þarf að breyta og tryggja að féð verði beinlínis hagnýtt tii smíði eða kaupa á íbúðum. Það er sameiginlegt hagsmunamál allra aðila. - Onnur hlið á lífeyrissjóðamálunum er afstaða sjóðanna gagn- vart sjóðþegum, bæði að því er varðar lán til þeirra (þau gætu vafalaust verið hærri) og framlög til þeirra. Ég held að lífeyrissjóðamálin séu að verða mjög aðkallandi viðfangsefni, bæði að því er varðar hinar félagslegu og fjárhagslegu hliðar þeirra. - Þá skulum við snúa okkur að framförum í húsnæðis- málum almennt, sem þú sagðir annan arm starfs Hús- næðismálastofnunarinnar. - Á því sviði ber fyrst að nefna teiknistofuna, sem Húsnæðismálastofnunin hefur rekið í ellefu ár af sínum fimmtán. Enginn vafi er á því, að starfsemi teiknistofunnar hefur haft stórkostleg áhrif til framfara í húsnæðismálum, hún á, að sínu leytinu til mikinn þátt í því hve húsakostur landsmanna, einkum við sjávarsíðuna utan Reykjavíkur, hefur stórbatnað seinni árin. Ljóst er að það er mjög hátt prósentuhlutfall, sem teiknistofan á í íbúðum utan Reykjavíkur, og hlutur hennar á höfuðborgarsvæðinu fer vaxandi. Húsnæðismálastofnunin hefur og veitt lán til fyrir- tækja, sem koma með gagnlegar nýjungar inn í bygginga- iðnaðinn. Við höfum veitt stórlán til að tryggja grund- völl þessara nýjunga meðan þær enn áttu erfitt upp- dráttar. Þriðji vettvangurinn er svo útgáfa rita um fram- farir í byggingariðnaðinum og þar tel ég að við þurfum að einbeita okkur mjög svo vel megi takast. Svo veitum við framkvæmdalán til framkvæmdaaðila í byggingariðnaðinum. Þau eiga að geta stutt að fram- förum þar. - Framkvæmdalán? - Já. Húsnæðismálastofnunin hefur nýhafið veitingu lána til ýmissa framkvæmdaaðila í byggingariðnaðinum. Er þar um traustan aðila að ræða og skuldbindum við okkur til að greiða honum öll lán, sem falla kunna á hans verk, á vissum tíma. Á móti skuldbindur hann sig til að byggja íbúðirnar á ákveðnu lágu kostnaðarverði og selja þær fullgerðar á vissu sanngjörnu verði. Ég tel engan vafa leika á því, að þetta treystir iðnaðinn, veitir örugg- ari atvinnu og svo fær fólk íbúðirnar fullgerðar, sem eitt út af fyrir sig er mjög mikilvægt að mínum dómi. - Hvað með leiguhúsnæði? - Jú. Við höfum þar hönd í bagga líka. Húsnæðis- málastofnunin hefur veitt lán til bygginga leiguhúsnæðis. Sem dæmi get ég nefnt hús Oryrkjabandalagsins í Reykja- vík og til sveitarfélaga getum við líka veitt lán í sam- bandi við byggingu elliheimila, sem jú einnig eru leigu- húsnæði. Og ég veit, að inn í þetta koma svo námsmanna- hús. Tel ég fullvíst að þessi hlið starfsemi okkar á eftir að vaxa. - Utrýming heilsuspillandi húsnæðis er líka á dagskrá hjá ykkur, eða hvað? - Jú. Við höfum 18 milljón króna árlegan kvóta frá ríkissjóði til notkunar í því skyni. Það versta er eigin- lega, hve sveitarfélög hafa verið treg á þessu sviði. Það er helzt Reykjavíkurborg, sem hefur gengið þar fram fyrir skjöldu. Ég tel brýna nauðsyn á því, að við tökum okkur sam- an í andlitinu og göngum í það að skrásetja allt heilsu- spillandi húsnæði, sem til er í landinu. Að því loknu eigum við svo að hefjast handa og ganga á röðina. Þetta er vel hægt. En það kostar átak. - Nú er Húsnæðismálastofnunin aðili að íbúðabygg- ingum FB í Breiðholti. - Já. Við eigum þrjá fulltrúa í Framkvæmdanefnd byggingaáætlunar sem svo heitir, og erum þar fulltrúar fyrir hönd ríkisins. - Telur þú, að framkvæmdanefndin hafi náð tilgangi sínum í Breiðholti? - Vissulega. í fyrstu var mikill hávaði út af þessu. En ég held, að nú séu allir sammála - hvort sem þeir vilja segja það upphátt eða ekki - um að tilganginum hafi verið náð. Og fyllilega það. - Hvernig? - Ég tel, að þessar íbúðabyggingar hafi stuðlað að tæknilegum framförum í byggingaiðnaðinum, stuðlað að lækkun íbúðaverðs í Reykjavík og nágrenni, að ógleymdri hinni félagslegu hlið. Til hennar tel ég, að fólki hefur gefizt kostur á mun betra húsnæði og umhverfi en það hafði áður. Það eitt er mikils virði. - Þú sagðir „stuðlað að lækkun íbúðarverðs". Viltu út- skýra það nánar? - Það get ég. Við höfum með íbúðabyggingunum í Breiðholti aukið framboðið á íbúðum og þar með demp- að eftirspurnina - og verðið um leið. Annars væru fleiri um færri íbúðir, sem þýddi óhjákvæmilega hærra verð. - Gott og vel. En hvað tekur svo við af Breiðholtinu? - Þá koma verkamannabústaðir til sögunnar. Stjórnum verkamannabústaða hefur verið komið á fót í mörgum sveitarfélögum, þær koma í stað byggingarfélaga verka- manna, sem fyrir voru. Þessar stjórnir eru víðast hvar á stokkunum nú. Það er þegar á einum stað - Sauðárkróki - sem framkvæmdir eru hafnar. - Verður þessi verkamannabústaðaáætlun til dæmis minni eða stærri en Breiðholtið? — Henni er ætluð löng framtíð af hálfu löggjafans og því verður vafalaust byggt á hennar vegum mikill fjöldi íbúða. En í Breiðholti á Framkvæmdanefndin að byggja 1250 íbúðir. Nú í árslok verða 615 þar að baki fullbyggð- ar. Hlutverk Framkvæmdanefndar er þannig alveg ljóst.' 44 TÍMARIT IÐNAÖARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.