Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Qupperneq 16

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Qupperneq 16
Aldrei verið hræddur við samkeppnina um framkvæmdir Viðtal við Gissur Sigurðsson byggingameistara „Stœrðin skapar tvímcelalaust hagrœðingu. Takmörk hljóta að vera á háða bóga; bœði hvað borgar sig að vera smár í sniðum og svo hitt, hve stórt má byggja án þess það truflist á ýmsan hátt. Undirstöðuna tel ég þó tvímæla- laust vera skynsamlegan undirbúning og vandlega ácetl- anagerð." Svo segir Gissur Sigurðsson, byggingameistari og framkvcemdastjóri Einhamars s.f. í viðtali við Títna- rit iðnaðarmanna. Einhamar s.f. er samtök 14 byggingameistara, sem stofnað var til 1969. „Upphaflega hugsuðum við okkur þetta bara sem fyrirgreiðslufyrirtæki, þó þróunin hafi orðið sú, að við höfum haldið saman í framkvæmdun- um líka. Við vorum rúmlega 30 byggingameistararnir, sem hugleiddum einhvers konar samtök, en þegar á reyndi urðum við 14 eftir. - Hvenær byrjaði Einhamar svo byggingastarfsemina? - Borgin gaf okkur kost á landsvæði upp í Breið- holti og þar byrjuðum við framkvæmdir 1970; síðast í marz. - Og hafið byggt hvað? - Við erum búnir með 50 íbúðir. Þegar hefur verið flutt í 30 þeirra og í hinar verður flutt nú í júlí og ágúst (viðtalið er tekið 16. júlí). Svo erum við langt komnir með uppsteypu á 35 íbúðum til viðbótar. - Hvað ætlið þið að byggja mikið? - Því get ég ekki svarað nú. En við ætlum að byggja sem mest. í sumar byrjum við á næstu 30 íbúðum og við höfum fengið vilyrði fyrir fleiri lóðum og ef allt gengur vel, höldum við ótrauðir áfram. - Hvaða ávinning hafið þið haft að samtökum ykkar? - Eg tel vafalaust, að við höfum á ýmsan hátt grætt á því að standa saman. Við höfum náð fram ýmiss konar hagræðingu með því að ná í stóra hagkvæma heildarsamninga og þetta kemur fram í verðinu. - Sem er? - í því, sem við skilum núna, kosta 2ja herbergja íbúðirnar, sem eru 228,7 m8, 980 þúsund krónur, 3ja her- bergja, 284,3 m8, 1200 þúsund og 4ra herbergja, 309,2 m8, 1300 þúsund krónur. Meðalverð er 4214 krónur rúmmetrinn og á sama tíma og við skilum þessu, er vísi- tölurúmmetrinn 4946 krónur. - Hækkar þetta ekki hjá ykkur samt? - Því miður er það óhjákvæmilegt. í þeim 35 íbúðum, sem við erum að steypa upp núna, kostar rúmmetrinn að meðaltali 4818 krónur. En samt erum við enn undir vísitölurúmmetranum. - Tapið þið þá ekki á þessu? - Við vonum alla vega, að svo verði ekki. Þetta er 52 TÍMARIT IBNASARMANN'á

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.