Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Síða 22

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Síða 22
Fyrir rúmum þremur árum tók til starfa ofnasmiðjan PANELOFNAR HF í Kópa- vogi og smiðar miðstöðvarofna úr stáli fyrir olíukyndingu sem og hitaveitu. Ofna- smíðin hófst haustið 1968 og störfuðu þá tveir menn við fyrirtækið, en nú eru starfsmenn sjö og framleiðslan á siðasta ári varð um 80% meiri en ári'3 áður. I ár er fyrirhuguð stækkun á húsnæðinu sem nemur 30% og gefur það möguleika til um 50% aukningar á þessu ári frá árinu áður. PANELOFNAR eru ætlaðir jafnt fyrir hitaveitu og olíukyndingu og hefur verið kappkostað að framleiðslan standist fyllstu gæðakröfur, og sýnir sívaxandi fjöldi viðskiptavina, að framleiðslan hefur líkað vel og er eftirsótt. Á síðasta ári hófu PANELOFNAR HF samvinnu við belgíska fyrirtækið SOGAZ, sem er dótturfyrirtæki hinna heimskunnu AGA-verksmiðja. Kaupa PANELOFNAR nú allt efni til framleiðslunnar frá SOGAZ og hefur fyrirtækið notið aðstoðar og tæknilegra leiðbeininga frá SOGAZ. Sérfræðingur frá SOGAZ kom hingað til lands og veitti leiðbeiningar um uppsetningu véla og tækja svo og vinnutilhögun til aukningar framleiðslunnar og síðan hafa tveir af starfsmönnum PANELOFNA farið til Belgíu og kynnt sér rekstur ofnasmiðja SOGAZ í Belgíu. Er framleiðsla PANELOFNA því byggð á dýrmætri reynslu þekkts fyrirtækis á heimsmarkaðnum, jafnframt þvi að vera sniðin við islenzkar kröfur eins og þær eru mestar. Þann 1. október opnuðu PANELOFNAR HF skrifstofu á sama stað og verksmiðjan er - að Fífuhvammsvegi 23, Kópavogi. Er það von forráðamanna fyrirtækisins að það verði til aukinnar hagræðingar fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. PANELOFN- AR bjóða væntanlegum viðskiptavinum sínum að senda inn ofnalista og við mun- um senda tilboð, án skuldbindinga fyrir kaupanda. í síðasta mánuði sendu PANELOFNAR HF fyrstu sendingu af PANELOFNUM til Færeyja, en PANELOFNAR HF tóku þátt í sýningu Félags Iðnrekenda í Fær- eyjum í fyrra, auk þess sem sendur fulltrúi PANELOFNA fór til Færeyja í sumar til frekari athugunar á markaðinum þar með tilliti til útflutnings PANELOFNA til Færeyja. Er vonazt til að um frekari útflutning verði að ræða í framtíðinni. Ástæða er til að vekja athygli væntanlegra kaupenda á ofnum að gera samanburð á fleiru en verði — og viljum við benda, í því sambandi, á kjörorð PANELOFNA: ÞAÐ ER PRÝÐI AÐ PANELOFNUM!

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.