Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Blaðsíða 25

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Blaðsíða 25
Nefndin fjallaði að öðru leyti ekki sjálf um matvæla- tækni, en hún hafði samráð við s. k. kjörsviðanefnd, er gerði í marzmánuði tillögur til ráðuneytisins um stofnun eins árs matvælakjörsviðs við framhaldsdeildir gagn- fræðaskóla. Er verk- og tæknimenntunarnefnd hlynnt því, að tilraun verði gerð með starfrækslu slíks kjörsviðs á einum eða tveimur stöðum á landinu næsta skólaár. Nefndin telur ekki tímabært að sameina nú, er fisk- vinnsluskóli verður stofnaður, alla matvælatæknifræðslu í einum framhaldsskóla, en telur eðlilegt, að sérstök at- hugun verði gerð á þessu atriði og ákvörðun tekin fyrir árið 1975, þegar búast má við, að festa verði komin á starfrækslu fiskvinnsluskóla. 2. Vélskóli. Vélskólanám verði fjögurra ára nám og veiti próf að loknu hverju námsári tiltekin starfsréttindi til vélstjórnar og skyldra, skilgreindra starfa. Auk starfsheitisins vél- stjóri (1., 2., 3. og 4. stigs) verði heimilt að veita nem- endum starfsheitið stýritœknir að loknu námi í 4. bekk skólans. Hlutföll milli bóknáms annars vegar og verklegrar þjálfunar í vélfræði, rafmagnsfræði og smíðum hins vegar verði með þeim hætti, að verklega þjálfunin nemi u. þ. b. 30% á 1. stigi, 30% á 2. stigi, 20% á 3. stigi og 10% á 4. stigi. Inntökuskilyrði í skólann verði, að nemandi hafi lokið eins árs verklegu og bóklegu námi í málmiðnaðargrein í iðnskóla, eða önnur sambærileg bókleg og verkleg mennt- un, sem skólastjórn metur fullgilda. Loks leggur nefndin til, að nemandi, sem lokið hefur prófi eftir 2. stig vélskóla skv. framansögðu, skuli að lokinni 6 mánaða starfsreynslu á vélaverkstæði fá leyfi til að þreyta sveinspróf í vélvirkjun. 4. Nám í tcekniskóla (til 1973). Það er grundvallaratriði í tillögum nefndarinnar um tækniskóla, að lagt er til, að tæknifræðinám skólans verði frá og með árinu 1973 veitt í tækniháskóla, sbr. 6. lið. Fram til þess tíma verði starf skóians með hliðstæðum hætti og nú er, þ. e. eins árs undirbúningsdeild og eins árs raungreinadeild, sem búa undir tæknifræðinám; síð- an 3ja ára deild í byggingatæknifræði, sem fullmenntar nemendur í þeirri grein, og auk þess 1. námsár af þremur í véla-, rafmagns-, skipa- og rekstrartæknifræði, en í þessum greinum verði tæknifræðináminu lokið með tveimur árum erlendis. Gert er ráð fyrir, að raftækna- deild haldi áfram við skólann, fyrst í stað sem eitt sérhæft námsár að lokinni undirbúningsdeild, en námskerfinu verði breytt svo fljótt sem aðstæður leyfa þannig, að tæknadeild þessi verði tvö námsár með blönduðu al- mennu og sérhæfðu námsefni. Loks er gert ráð fyrir, að tveggja ára meinatæknadeild fyrir stúdenta haldi áfram við skólann, en sú deild er mjög sérstök og í litlu sam- . ■ '***#*! bandi við önnur verkefni stofnunarinnar. Sjá lið 6.b. um tæknaskóla. Inntökuskilyrði í undirbúningsdeild skólans verði ann- aðhvort 1) sveinspróf í viðeigandi iðngrein (eða sím- virkjapróf ellegar vélstjórapróf 2. stigs), eða 2) gagn- fræðapróf, landspróf miðskóla eða grunnskólapróf, að viðbættri hæfilegri verkskólun eða starfsreynslu, sem ljúki með verklegu prófi í samræmi við nánari ákvarð- anir skólans. Ytarlegar er fjallað um þessi síðastnefndu ákvæði í 4. lið IV. kafla þessarar álitsgerðar. Inntökuskil- yrði í tæknadeild (iðntæknadeild) verði sveinspróf í viðeigandi iðngrein. Inntökuskilyrði í meinatæknadeild verði sem fyrr segir stúdentspróf eða sambærileg viðeig- andi undirbúningsmenntun. 5. Verkfrœðinám í háskóla (til 1973). Gert er ráð fyrir því, að fram að stofnun tækniháskóla, sem gæti orðið haustið 1973, verði haldið áfram á hliðstæðri braut og mörkuð var við verkfræði- og raun- vísindadeild Háskólans haustið 1970, þ. e. að teknir verði inn nemendur til fjögurra ára náms að B.S.-prófi í verk- fræði og auk þess til tveggja ára náms að fyrra hluta prófi í efnaverkfræði og eðlisverkfræði, en þessum síð- ustu námsbrautum verði hins vegar lokið við erlendan tækniháskóla. Jafnframt verði á þessu tímabili unnið að undirbúningi kennslu í tækniháskóla. Inntökuskilyrði í verkfræði- og raunvísindadeild Há- skóla íslands verði annars vegar stúdentspróf stærðfræði- deildar, en hins vegar raungreinadeildarpróf frá Tækni- skóla íslands að því tilskildu, að nemandi hafi áður lokið sveinsprófi, símvirkjaprófi, vélstjóraprófi 2. stigs eða hlotið aðra sambærilega undirbúningsmenntun. Sjá að öðru leyti lið 6.a. um tækniháskóla. 61 TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.