Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Qupperneq 35

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Qupperneq 35
ann, er lagt var fyrir Alþingi á 91. löggjafarþingi, 1970-1971. 4. 3ja-4urra manna nefnd til að endurskoða lög nr. 25/ 1963 um Tækniskóla íslands og lög nr. 89/1970 um Háskóla íslands, svo og til að semja lagafrumvörp um tækniháskóla og tæknaskóla. Verk- og tæknimenntunarnefnd telur og æskilegt, að sambærileg endurskoðun fari fram, eftir því sem við getur átt, á lögum um bændaskóla og lögum um Garð- yrkjuskóla ríkisins. Fyrrgreindum nefndum verði falið að útfæra nánar og fella í frumvarpsform þær breytingar á skólaskipan og starfsháttum, er ríkisstjórn ákveður að fengnu áliti verk- og tæknimenntunarnefndar. Nefndirnar, sbr. 1.-4., skili tillögum sínum til Menntamálaráðuneytisins, sem fer yfir þær og athugar, hvort gera þurfi á þeim samræm- ingarbreytingar. Fáist ríkisstjórnarsamþykki fyrir tillög- unum, verði frumvörpin lögð fyrir Alþingi. Verk- og tæknimenntunarnefnd telur rétt, að umræddar laganefnd- ir geri tillögur um tilfærslu kennslukrafta í samræmi við breytingar á skólakerfinu. 3. Ríkisrekstur tœknilegra framhaldsskóla. Meðal þeirra skóla, sem verk- og tæknimenntunarnefnd hefur um fjallað, eru það (auk gagnfræðaskóla og flug- skóla) aðeins iðnfræðsluskólar, sbr. lög nr. 68/1966, sem ekki eru hreinir ríkisskólar. Kunnugt er, að allörðuglega hefur gengið að koma tilgangi umræddra laga í fram- kvæmd, og er nefndin þeirrar skoðunar, að ein megin- ástæða þessa sé sú, að takmörkuð fjárhagsgeta og ósam- komulag sveitarfélaga hafi hér orðið til talsverðrar tafar. Telur nefndin það eðlilegt og raunar alveg nauðsynlegt til að koma í framkvæmd þeim breytingum á starfi iðnskóla, sem hún hefur gert tillögur um, að allir iðn- skólar verði framvegis hreinir ríkisskólar, eins og nær allir aðrir verk- og tæknilegir skólar á framhaldsskóla- stigi, og verði lögum um iðnfræðslu breytt í þessu skyni. 4. Athugun á fjártnagnsþörf. Áætlun um stofnkostnað og rekstrarkostnaðaraukningu vegna þeirrar tæknimenntunar á framhaldsskóla- og há- skólastigi, sem hér er fjallað um, telur nefndin ekki rétt, að gerð verði fyrr en stjórnvöld hafa tekið afstöðu til tillagna nefndarinnar og markað stefnu í málinu. Upp- lýsingar, sem lagðar eru til grundvallar slíkum áætlunum, verða að koma frá stjórnum skólanna, eftir að breytingar viðkomandi skóla hafa verið ákveðnar. Eðlilegast má telja, að Menntamálaráðuneytið safni þessum gögnum og geri kostnaðaráætlanir á grundvelli þeirra. Nú þegar má þó gera sér grein fyrir því í stórum drátt- um, í hverju kostnaðaraukinn liggur og hverjar breyting- ar verði á rekstrarkostnaði skólanna. Byrjunarkostnaður verður aðallega við gerð skipulags- breytinganna, samning nýrra námsskráa og val og útgáfu nýrra námsbóka í sumum greinum. Gera verður ráð fyrir talsverðum stofnkostnaði við að Ijúka þegar áætluðum byggingarframkvæmdum við vél- skóla og stýrimannaskóla. Jafnframt kemur til stofnkostn- aðar við byggingu yfir tæknaskóla. Til iðnskólanna þarf að verja verulegum stofnkostn- aði, svo að þeir fullnægi þeim breyttu kröfum, sem til þeirra eru gerðar. Þetta leiðir þó ekki af þeim almennu breytingum á framhaldsskólakerfinu, sem hér er fjallað um, heldur af þeirri lagasetningu um iðnnám, sem gerð var 1966, en meginstefna þeirra laga var flutningur verk- legrar iðnkennslu inn í iðnskólana frá vinnustað hjá meistara og aukning bóklegrar fagkennslu. Tillaga verk- og tæknimenntunarnefndar gerir ráð fyrir því, að verk- nám verði að langmestu leyti veitt innan vébanda iðn- skólanna sjálfra, svo að þeir verði ekki langt á eftir öðr- um skólum við nýskipan skólakerfisins. Kostnaður við nýbyggingar og öflun véla og tækja til kennslunnar er mjög hár, eins og bent er á í næsta kafla. Stofnkostnaður tækjamiðstöðvar hlýtur einnig að verða verulegur. Þó er tilgangur hennar sá að auka nýting námstækja og lækka með því móti heildarkostnað við kaup þeirra. Stofnkostnaður tækjamiðstöðvarinnar á því að skila sér í betri námsaðstöðu við þá skóla, sem hafa sameiginleg not af tækjum og vélum miðstöðvarinnar. Rekstrarkostnaður annarra skóla, sem hér er fjallað um, þarf yfirleitt ekki að hækka vegna skipulagsbreytingar- innar. í sumum skólum ætti hann beinlínis að geta lækk- að af þessum sökum, einkum af tveimur ástæðum: 1) vegna færslu nokkurs námsefnis á síðustu námsár í grunnskóla og 2) vegna samruna skyldra skóla, t. d. Tækniskólans og verkfræðideildar Háskólans. Hækkun rekstrarkostnaðar verður einkum vegna: 1) fjölgunar námsbrauta á framhalds- og háskólastigi (sbr. tæknanám), 2) aukinnar fagkennslu í einstökum skólum og 3) fullmenntunar verkfræðinga í nokkrum greinum í tækniháskóla. Eins og tekið er fram í upphafi þessa kafla, þykir eðli- legast, að þessar kostnaðaráætlanir verði gerðar í Mennta- málaráðuneytinu, sem ýmist hefur þau gögn, sem nauð- synleg eru, eða á hægast með að afla þeirra frá skólanefnd- um og öðrum aðilum, sem starfa með ráðuneytinu eða undir stjórn þess. Nefndin leggur áherzlu á það, að verði tillögur hennar samþykktar og efnt til lagaendurskoðunar, sbr. III. 2., þarf jafnframt kostnaðarathugun að gera áætlun með örvariti yfir allar framkvæmdirnar. Framkvæmdaáætlun- in verði síðan endurskoðuð eftir þörfum af verk- og tækninámsskor, sbr. III 1. 5. Drög að framkvcemdaácetlun. Jafnvel þótt verk- og tæknimenntunarnefnd telji, að hún hafi ekki sjálf skilyrði til þess að gera kostnaðar- og framkvæmdaáætlun yfir þær breytingar, sem nefndin hefur gert tillögu um, vill hún samt sem áður taka fram TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 71

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.