Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Qupperneq 41

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1971, Qupperneq 41
4. Styrk og samhœfð yfirstjórn verk- og tæknimenntunar í landinu, sbr. tillögu nefndarinnar um sameiningu hennar í verk- og tækninámsskor í Menntamálaráðu- neytinu. Grundvallarrökin fyrir tillögu nefndarinnar um efl- ingu verk- og tæknimenntunar eru þjóðhagsleg. Nefndin hefur athugað erlendar rannsóknir, sem benda til þess, að þjóðartekjur á hvern vinnandi mann hækki í beinu hlut- falli við hundraðstölu tæknimenntaðra manna af vinnu- afli þjóðar (sjá einkum „Innstilling om teknisk utdan- ningsstruktur i Norge i 1970-1980-árene", útg. af Kirkju- og menntamálaráðuneyti Noregs, 1969, bls. 22. Skýrsla þessi er í daglegu tali nefnd „Andersens-skýrslan"). Einn- ig má benda á það, að á sama tíma og íslendingar hafa gerzt aðilar að viðskiptabandalagi með 7 nágrannaríkj- um verður að gæta þess vandlega, að þjóðin dragist ekki aftur úr samherjum sínum í bandalaginu né heldur öðr- um þjóðum á sviði tækniþekkingar, sem er frumfor- senda iðnaðar og framleiðslu yfirleitt. Meginrökin fyrir tillögum nefndarinnar, er miða að endurskipulagningu verk- og tæknináms og tengingu námsbrauta, eru samfléttuð uppeldisleg og þjóðhagsleg rök. Nefndin hefur aðhyllzt þá skoðun, að það sé sann- gjörn uppeldisstefna og kennslufræðilega rétt að skipu- leggja allar námsbrautir undantekningarlaust á þann veg, að þær verði eigi lengri en full rök eru fyrir í sam- ræmi við tilgang námsins. Þessi eru meginrökin fyrir til- lögum nefndarinnar um t. d. skipan iðnnáms og tilhög- un verkþjálfunaráfanga í námi yfirleitt. Einnig má benda hér á þau þjóðhagslegu rök, sem oft hefur verið til vitn- að, að með slíku skipulagi fær þjóðfélagið þegna sína fyrr til starfa en ella. Enn má benda á, að nú færist það ört í vöxt í flestum iðnaðarþjóðfélögum, að menn skipti um starf nokkrum sinnum á starfsævi sinni. Nefndin tel- ur, að tillögur hennar um námsskipan og tengingu náms- brauta auðveldi slíka aðlögun. Loks er nefndin þeirrar skoðunar, að tillögur hennar, er miða að stofnun sam- ræmds framhaldsskóla í áföngum, muni stuðla að aukn- um kynnum milli nemenda, sem stunda ólík störf að loknu námi, en þurfa hins vegar oft að vinna saman, og að gagnkvæmri virðingu þeirra fyrir námi og starfssviði hverra annarra. Tillögur nefndarinnar um aukið samstarf milli fræðslu- stofnana eru fyrst og fremst studdar augljósum hag- kvæmnisrökum. Slíkt á að geta stórbætt nýtingu kennslu- tækja, sem oft eru dýr í verk- og tæknilegu námi, hag- rætt nýtingu kennslukrafta og einfaldað stjórnun og upplýsingamiðlun. Loks eru það meginrök nefndarinnar fyrir tillögunum um styrkingu og samhæfingu á yfirstjórn verk- og tækni- menntunarþáttar skólakerfisins, að eigi breytingartillögur hennar, - sem hún vonar, að verði samþykktar af stjórn- völdum -, að ná tilgangi sínum, er það algert skilyrði, að yfirstjórnin verði samhæfð og öflug. Hinar einstöku fræðslustofnanir munu að dómi nefndarinnar ekki ráða hjálparlaust við þær breytingar á námsskrárgerð og náms- efnissamningu, sem fyrirhugaðar eru, auk þess sem fram- kvæmdar- og stofnbúnaðarþátturinn verður engan veg- inn tryggður í reynd, nema samhæfð yfirstjórn verði ábyrg fyrir áætlanagerð og fjármögnun. Afengis- og Tóbaksverzlun ríkisins Opið alla virka daga, nema laugardaga, kl. 9—16,30. Á tímabilinu l.október til 30. apríl er opið á mánudögum til kl. 18.00. Skrifstofur: Borgartúni 7, Reykjavík — sími 2-42-80 TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 77

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.