Fréttablaðið - 13.11.2009, Side 38
13. NÓVEMBER 2009 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● leikur í höndum
Ásta Heiðrún Stefánsdóttir
hefur mikla ánægju af sauma-
skap og hefur haft síðan í
grunnskóla. Um leið og hún
saumar á sjálfa sig og alla
fjölskylduna fær hún útrás fyrir
sköpunargleðina.
„Ég fermdist árið 1975 og man vel
eftir pilsinu. Það var sítt pils úr
flöskugrænu fínflaueli, afskaplega
fallegt,“ segir Ásta Heiðrún og
brosir. „Ég var í heimavistarskóla
á Stóru-Tjörnum í Ljósavatns-
skarði, þar sem handavinnu-
kennslan var mjög góð.
Okkur var meðal ann-
ars kennt að sauma,
prjóna, hnýta, hekla
og sauma út. Það
var mjög almenn-
ur áhugi á þessum
tíma, enda fata-
úrvalið á land-
inu ekki mikið og föt
oft dýr. Þarna og hjá
mömmu lagði ég grunn
að minni kunnáttu í
saumaskap.“
Ásta Heiðrún
segir einnig að
hefð sé fyrir
handavinnu í
bæði móðurfjöl-
skyldu hennar og föður.
Eru þá ekki fjölmargir
saumaklúbbar haldnir í
fjölskyldunni? „Nei, það
er nefnilega svo skrít-
ið,“ segir Ásta Heiðrún
hlæjandi. „Það eru
ekki haldnir formleg-
ir saumaklúbbar en við
erum hins vegar oft með matar- og
kökuklúbba.“
Saumakonan fjölhæfa saumaði
á dætur sínar og son frá fæðingu
og hún er enn að sauma á dætur
sínar sem eru 25 og 28 ára. „Þá er
ég komin út í hönnun og það finnst
mér afskaplega gaman. Það jafn-
ast ekkert á við að hanna og sauma
flottan árshátíðarkjól. Ég hef gert
nokkra á mig sjálfa þegar þorra-
blót hafa verið í sveitinni,“ segir
Ásta Heiðrún, sem býr í Reykár-
hverfi í Eyjafjarðarsveit. - uhj
Smekklegar í sveitinni
Ásta Heiðrún segist hafa lagt grunn að kunnáttu sinni í saumaskap í heimavistarskóla á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/HEIÐA.IS
Eins og sjá má er saumakonunni ýmislegt til lista lagt.
„Skólastúlkur eru rosalega duglegar að sauma sjálfar,“
segir Guðlaug Ólafsdóttir í vefnaðarvöruversluninni
Virku. Hún segir það hafa færst í aukana að fólk saumi
sér föt og hefur fundið fyrir síaukinni sölu á fataefni
síðastliðið eitt og hálft ár. „Það koma hingað konur sem
segjast ekki hafa saumað í mörg ár en ætla að fara að
taka út saumavélina. Skólastúlkur kaupa helst jersey-
efnin sem þær nota meðal annars í kjóla, peysur og
fleira. Svo eru efni í leggings-buxur sem glansa aðeins
rosalega vinsæl og við erum með mikið úrval af þeim í
gulli, silfri og svörtu,“ útskýrir Guðlaug.
„Soðna ullin og þunn prjónaefni í kjóla og peys-
ur eru að koma mikið inn fyrir konur á öllum aldri.
Einnig eru „memory taft“-efni tekin mikið í svona
pokapils, því þau krumpast og hægt er að forma þau
eins og fólk vill,“ útskýrir Guðlaug. „Það er mikið
saumað úr jogging-efni, bæði buxur og gallar, og
teygjusatín er mjög vinsælt í kjóla ásamt venjulegu
satíni,“ bætir hún við.
Aðspurð segir hún sniðin einnig fáanleg í versl-
uninni. „Við erum með bækur og blöð sem fólk getur
flett. Fólk getur sest hérna og skoðað sniðin og við
reynum að ráðleggja fólki eins og við getum,“ segir
Guðlaug. - ag
Fólk duglegt að sauma sjálft
Guðlaug segir jersey-efnin vera vinsæl í kjóla, peysur og fleira,
auk þess sem glansandi efni í leggings-buxur seljist vel.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skemmtileg matrósaföt úr
smiðju Ástu Heiðrúnar.
20%
afsláttur á meðan birgðir endast!
Metasys er áhrifaríkt fæðubótaefni sem hefur hjálpað
þúsundum Íslendinga við að létta sig. Að auki er Metasys
mjög heilnæmt og þykir auka orku og úthald. Þeir sem
hafa náð bestum árangri á Metasys hafa bætt inn hæfi-
legri hreyfingu og viðhaft skynsamlegt mataræði
Kíktu inn á www.metasys.is
Þú færð Metasys í heilsu- og
lyfjaverslunum og heilsuhillum
stórmarkaðanna.
100%
náttúrulegt