Fréttablaðið - 13.11.2009, Side 39
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009 3leikur í höndum ● fréttablaðið ●
„Ég auglýsti saumanámskeið fyrir
þremur árum og þá svaraði eng-
inn auglýsingunni, en núna síðan í
september hefur allt verið fullt og
endalausir biðlistar,“ segir Helga
Rún Pálsdóttir sem heldur sauma-
námskeið ásamt Elínu Björk Ás-
björnsdóttur á vinnustofu þeirra
á Suðurlandsbraut 52.
„Flestar konur mæta til að koma
sér aftur af stað, en svo eru aðrar
sem hafa aldrei verið að sauma og
langar til að læra að breyta fötun-
um sínum eða sauma ný,“ útskýrir
Helga Rún.
„Í dag getur verið mikill sparn-
aður að sauma sér frá grunni, geta
lagað eigin föt eða keypt föt á hag-
stæðu verði og breytt þeim. Á
saumanámskeiðunum okkar förum
við í gegnum alla þessa þætti,“
bætir hún við.
Fjórar til átta konur komast
á hvert námskeið sem er fjögur
kvöld, einu sinni í viku í þrjár
klukkustundir í senn.
„Konur þurfa ekki að koma með
saumavélar frekar en þær vilja því
við erum með góðan vélakost. Þær
þurfa aðeins að kaupa efnið sem
þarf í flíkina, allt hitt erum við
með á staðnum,“ segir Helga, en
nánari upplýsingar um námskeiðin
má finna á www.prem.is. - ag
Biðlistar á námskeið
● ALFRÆÐIBÓK UM SAUMASKAP Í
bókinni The New Complete Guide to Sewing
er að finna allar þær upplýsingar sem þú þarft
á að halda varðandi saumaskap, bæði fyrir
byrjendur og lengra komna. Í bókinni er farið
skref fyrir skref í gegnum allt frá því að sníða
yfir í hvernig skal festa rennilása. Leiðbeint er
um val á efnum og hvaða aðferð hentar best
hverju sinni. Þessi alfræðibók um saumaskap er fallega myndskreytt og
inniheldur fjölda hagnýtra ráða. Í henni má finna tuttugu verkefni sem
eru tilvalin til þjálfunar og gefa hugmyndir að fatnaði, gluggatjöldum og
bútasaumsteppum svo eitthvað sé nefnt. Með The New Complete Guide
to Sewing geturðu náð góðum tökum á saumaskapnum, en bókin er
fáanleg í Pennanum. - ag
● SAUMAVÉLAR SELJAST VEL „Sala á saumavélum hefur aukist
mikið síðustu tvö ár, sérstaklega núna á þessu ári,“ segir Selma Gísladóttir
í saumvéladeild Pfaff. Hún segir Husqvarna Emerald-saumavélar vera
vinsæl astar, en Pfaff er umboðsaðili
fyrir Husqvarna- og Singer-saumavél-
ar á Íslandi.
„Husqvarna Emerald-saumavél-
arnar eru til í fjórum gerðum og á
mismunandi verði, en vinsælasta vélin
hjá okkur heitir Emerald 122. Hún er
hefðbundin og með öllu þessu helsta
sem maður þarf, overlook, hnappa-
götum, blindfaldi og teygjuspori. Það er vélin sem við seljum mest af og
kostar 64.900 krónur,“ útskýrir Selma. „Við erum einnig með Husqvarna
Emerald-vél sem er stafræn. Það er bæði hægt að nota hana í allan fata-
saum og bútasaum. Þessar stafrænu vélar eru einfaldari í notkun og stilla
sig að mesti leyti sjálfar, svo það eru auðveldustu vélarnar, sérstaklega
fyrir þá sem eru að byrja,“ bætir hún við. - ag
Margir bíða eftir að komast á saumanámskeiðin hjá Helgu Rún og Elínu Björk.
● EINFALT OG FLJÓTLEGT Auðvelt er að sauma einfalt en flott
pils til að skottast í við leggings eða utan yfir buxum. Það sem þarf er
þunnt efni sem fellur vel, til dæmis viskós eða blúnda og hið þægilega
stroffefni sem haft er tvöfalt í mittið.
Byrja þarf á að gæta þess að stroffið verði passlega vítt í mittið svo
pilsið haldist nú uppi. Best er að sauma stroffið við þunna efnið með
teygjuspori eða overlook-spori en stórt sikksakkspor gagnast líka.
Fallegt er að búa til fellingar í þunna efnið efst og þræða þær
niður áður en stroffið er lagt ofan á þær á réttunni og
kantarnir eru saumaðir saman. Enn þá einfaldara
er þó að rykkja pilsið með því að teygja á
stroffinu um leið og það er saumað
við þunna efnið. (Gæta þess að
leggja stroffið ofan á réttuna.) Svo er
pilsið einfald lega saumað saman með
einum saumi sem síðan er hafður að
aftan. - gun
Síðan 1896Álafossvegi 23, Mosfellsbæ Sími: 566 6303
Opið:
Mánudaga til föstudaga: 9:00 - 18:00
og laugardaga 9:00 - 16:00 www.alafoss.is
Gífurlegt úrval af efnum!!
Mörkin 3, sími 5687477 www.virka.is
Allt til bútasaums, fullt af nýjum jólaefnum,
batik og barnaefnum.
Tilbúnar teppapakkningar í falleg
jólatrésteppi og margt fleira!
Einnig allt til fatasaums,
jerseyefnin vinsælu í miklu
úrvali og nýjustu tískuefnin,
daglega nýjar sendingar!
Komið og skoðið úrvalið!
Opið mán-föst.
10-18.
Laugardaga
11-15.
Hjálpaðu umhverfinu með
Blaðberanum
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...