Fréttablaðið - 13.11.2009, Qupperneq 40
13. NÓVEMBER 2009 FÖSTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● leikur í höndum
Pétur er enginn venjulegur
maður. Hann rekur hálfgert
félagsheimili í vel skipulögð-
um bílskúr sínum. Þar er alltaf
líf og fjör hjá verklögnum körl-
unum sem oft fá svo kaffi hjá
Veigu, eiginkonu Péturs.
„Já, þeir koma oft hingað karlarn-
ir í kaffi og svo kíkjum við í skúr-
inn. Það er alltaf eitthvað sem þarf
að dytta að og laga,“ segir Pétur.
Hann fékk bíladelluna ungur að
árum.
„Við erum oft ekkert að gera
sömu hluti, sumir eru að gera við
bílana, aðrir að renna járn eða
gera upp gamla hluti eins og
mótorhjól. Þetta er bara
svona hobbí og góður
félagsskapur,“ segir
Pétur og vill sem
minnst úr þessu
gera. Sannleik-
urinn er nefni-
lega sá að hvorki
meira né minna en
fjörutíu manns hafa
lykil að bílskúrn-
um hans Péturs. „Já,
ætli ég sé ekki bóngóð-
ur en ég á líka marga góða vini og
kunningja. Ef þú gerir ekki neitt
fyrir aðra gera aðrir ekki neitt
fyrir þig. Við erum góðir félag-
ar hér.“ Pétur vill varla gefa upp í
hverju hann sé flinkur. Kunningi
hans segir hann vera „altmuligt-
man“.
Bílskúrinn hans Péturs er vel
skipulagður og ljóst að hann legg-
ur sig fram við að hafa félags-
heimilið fínt. Á veggjum eru skáp-
ar sem verkfærum er haganlega
raðað í og á gólfum eru
borð með skúff-
um þar sem
sömuleið-
is allt er
vel nið-
urrað-
að. „Ég
set allt-
af verk-
færin
strax á
sinn stað,“
segir Pétur sem getur samt ekki
kastað tölu á öll skrúfjárnin í
einum skápnum. „Kannski eru
þau hundrað, nei ég veit það ekki,
hundrað og fimmtíu,“ segir hann
og lítur spyrjandi á blaðamann og
saman samþykkjum við þá tölu.
Notarðu öll þessi verkfæri?
„Já, en veistu að ég nota þau eig-
inlega alltaf þótt síðar sé. Ég lána
þau líka stundum vinum og kunn-
ingjum.“
En ertu ef til vill stundum eins
og konur sem kaupa föt þótt þær
eigi fullt af þeim í fataskápnum?
„Já, já, eflaust. Kannski er ég svo-
lítið verkfærasjúkur. En það er
gott að eiga þetta í handraðanum
og aldrei að vita hvort þau komi
að notum.“
Hvað myndirðu ráðleggja þeim
sem eru að kaupa eða skipuleggja
bílskúra? „Ég myndi ráðleggja
þeim að hafa vítt til veggja í skúr-
unum og hátt til lofts svo hægt sé
að setja bílalyftu í skúrinn. Þá er
gott að flísaleggja gólfið og láta
plast vera á gólfinu til að halda því
vel og hafa svona skápa eins og ég
er með. Það er ekkert gaman að
vinna í skítugum skúr með verk-
færin út um allt,“ segir hann. „Hjá
mér er þetta eins og ég segi hobbí
en þetta er nú líka svona miðstöð
fyrir okkur karlana en það er
besta mætingin á laugardögum.
Þá er líka þessi ansans enski fót-
bolti og við erum fegnir að vera
lausir við hann.“ - uhj
Félagsheimilið í vel
skipulögðum bílskúrnum
Bílskúrseigandinn á nokkrar borvélar enda á hann vini sem
þurfa stundum á þeim að halda.
Pétur notar sérstaka verkfæraskápa undir verkfærin sín og
skipuleggur þannig bílskúrinn sinn vel. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Pétur viðurkennir fúslega að vera svolítið verkfærasjúkur.