Fréttablaðið - 13.11.2009, Síða 41
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009
5leikur í höndum ● fréttablaðið ●
● BLETTAÐU BÍLINN Það
getur verið dýrt að láta gera við
lakkskemmdir og bletta bílinn.
Best er að gera við litlar skemmd-
ir jafnóðum áður en ryð
fer að myndast, en
það getur maður gert
sjálfur og sparað sér
pening.
„Ef ryð er komið þarf
að slípa
það úr
fyrst, en
svo lengi
sem
grunnurinn
er heill undir getur fólk
farið á sprautuverkstæði og látið
blanda fyrir sig réttan lit og gert
við litla punkta eftir grjóthögg,“
segir Árni Þór Árnason hjá Massi
þrif ehf. „Umboðin eru líka að
selja lakk í litlum stautum, en það
endist mjög stutt og kostar mun
meira en lakk á verkstæði,“ bætir
hann við.
„Nýir bílar eru yfirleitt með verra
lakk en eldri bílar vegna þess að
hér áður fyrr var blý í lakkinu svo
það var sterkara, en nú er vatns-
lakk út af umhverfissjónarmið-
um. Ef verið er að bletta í svoleið-
is verður eiginlega að setja glæru
áður og á eftir, nema þetta séu
litlir punktar,“ út-
skýrir Árni
og segir
það góða
reglu
að fara
yfir bíl-
inn einu
sinni á
ári. - AG
„Ég held bílnum mínum við með því að
bóna hann á eins og hálfs til tveggja
mánaða fresti, alltaf með sama bón-
inu,“ segir Arek Kújoth hjá bónstöð-
inni Bóni og þvotti í Vatnagörðum.
Hann segir mikilvægt að bóna og
þrífa bílinn reglulega til að halda
honum í góðu ástandi.
„Ég byrja á því að taka gömlu
bónhúðina af með bónleysi sem
fæst í málningarvöruverslunum.
Síðan er bíllinn þveginn að utan og
þurrkaður vel áður en ég bóna vel yfir
hann, en þá nota ég teflon-bónblöndu
frá Concept,“ segir Arek. „Það er líka
mikilvægt að bóna inn í falsið á hurð-
unum því þá festist síður drulla þar.
Ég bóna bara allt sem hægt er því
þá er minna að þrífa næst og minna
viðhald á lakkinu,“ útskýrir Arek og
segir bónið ekki aðeins gefa glans
heldur verja lakkið gegn ryðblettum.
Aðspurður segir hann það misjafn-
lega tímafrekt að þrífa bílinn. „Þegar
ég er að þrífa bílinn minn get ég þess
vegna verið þrjá klukkutíma að því. Þá
er ég að þrífa hann að utan og innan
og felgurnar líka, svo það safnist ekki
tjara og drulla á þær,“ segir Arek.
- ag
Mikilvægt að bóna líka falsið á bílhurðunum
Ef hægt er að treysta á eitthvað í
þessum heimi þá er það málið að
það kostar peninga að eiga bíl. Sú
staðreynd á einkum við hjá þeim
sem láta fagmenn um að laga alla
mögulega og ómögulega hluti, því
verkstæðisreikningurinn er nán-
ast alltaf hærri en búist hafði verið
við.
Yfirlega á internetinu getur í
þessum tilfellum, eins og svo mörg-
um öðrum, gert lífið léttara. Þar er
nefnilega að finna ótal vefsíður sem
geyma leiðbeiningar um það hvern-
ig hægt er að gera sjálfur við bíl-
inn sinn. Ef þú vilt spara með því
að skipta sjálfur um olíu, bremsu-
klossa og allt þar á milli er næsta
víst að ráðið finnst á Netinu.
Oftast nær nægir að slá inn lyk-
ilorð vandamálsins upp á engilsax-
nesku í þar til gert leitarforrit. Til
hægðarauka má þó benda á vefsíð-
urnar repair4car.org og 10w40.com
sem eru hafsjór af fróðleik um bíla-
viðgerðir. - kg
Bílaviðgerðir á
internetinu
Fróðleik um bílaviðgerðir má finna víða
á internetinu. NORDICPHOTOS/GETTY
Arek segir mikilvægt
að bóna og þrífa bílinn
reglulega. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA