Fréttablaðið - 13.11.2009, Síða 45

Fréttablaðið - 13.11.2009, Síða 45
13. nóvember föstudagur 5 IDÍLL að ljúga að okkur. Ef fólk skoðar þetta tímalega séð er ekki fræði- legur fótur fyrir þessari kenningu, að við séum komin úr einhverri örveru og höfum þróast í þessa hugsandi veru sem við erum í dag. Hvaða kjaftæði er þetta að við séum einhverjir hálfapar?! Fólk getur til dæmis lesið Voyag- er 1 og 2 eftir Ashayana Deane ef það vill fá sannleikann.“ Vera: „Ég sagði að þetta myndi taka tíma.“ NETTUR STINGUR Ég svissa því snögglega í eitthvað áþreifanlegra. Hvað er betra til að koma mönnum niður á jörðina en blessuð íslenska kreppan? Nú hefur BB & Blake bæði verið til í góðæri og kreppu. Er ekkert erfitt að vera í stuði í kreppunni? Vera: „Alls ekki! Mér finnst meira stuð í kreppunni. Það er miklu skemmtilegra núna.“ Magnús; „Við ákváðum til dæmis ekki að gera þessa plötu fyrr en kreppan skall á.“ Vera. „Það kom kannski smá ör- vænting yfir okkur. Við tókum dag í að búa til kreppuplanið.“ Magnús: „Góðærið var þannig að maður var bara í einhverju dúlli dúll dúll, en svo kom kreppan og bara (smellir fingrum): Gerum eitthvað! Ég held að kreppan sé hvetjandi fyrir listafólk, en ég er ekki viss um að hún sé hvetjandi fyrir aðrar greinar. Ég tek mikið eftir þessu hjá listafólki. Það hefur vaknað.“ Fer þá fólk kannski bara að gera allt sem býðst – þú verður kom- inn í bangsabúning í Smáralind fyrir rest? Magnús: „Ég er alltaf þar! Hef- urðu ekki séð mig?“ Vera: „Nei, það getur verið að þetta hafi einmitt farið í hina átt- ina. Að maður hafi gert eitthvað sem mann langaði ekkert til að gera því maður var að fá einhver svakaleg gylliboð.“ Magnús: „Auðvitað fengu samt allir nettan sting þegar þetta skall á. Við erum ekkert undanskilin því. Það kom óvissa og maður óttast óvissuna. Samt hefur líf mitt alltaf verið þannig síðan ég útskrifaðist úr leiklistarskólanum. Þetta hefur samt alltaf náð að rúlla.“ Vera: „Fólk neyðist til að spinna sér nýjar hugmyndir. Maður hugs- ar að þær séu framkvæmanlegar. Maður þorir meiru því það hangir meira á spýtunni.“ 10:00 – 13:00 Vatnaveröld, Sunnubraut 31 – Dótadagur í lauginni Kl. 11:00 og kl. 12:00 Sjóræningjaleikur. Við hvetjum yngri kynslóðina til að koma í Vatnaveröld og taka þátt í sjóræningjaleik í innilauginni. 10:00 – 16:00 Bókasafnið, Hafnargötu 57 – Laugardagar eru fjölskyldu- dagar á bókasafninu. Kl. 11:00 Sögustund. Í tilefni af norrænni bókasafnaviku verður Einar Áskell kynntur og lesin ein saga um piltinn. 14:00 – 16:00 Svartholið í 88 Húsinu, Hafnargötu 88. Hjólabretta- og línuskautamót. 15:00 – 17:00 Fjörheimar Barnaball fyrir börn á leikskólaaldri Ásbrú, Keilisbraut 749. 08:00 - 18:00 Vatnaveröld - fjölskyldusundlaug er opin allan daginn. 11:00 – 18:00 Víkingaheimar Víkingabraut 1. Alvöru víkingar taka á móti börnunum og segja frá. Kl. 12:00 og 16:00 Víkingar segja sögur um borð í Íslendingi. Kl. 13:00 – 16:00 Smíð- aðu þitt eigið víkingasverð og klæddu þig upp að víkinga- sið. Tilboð - tveir fyrir einn. Frítt inn fyrir börn. 12:00 – 15:00 Innileikjagarðurinn verður opinn alla helgina. Tilvalið fyrir yngstu börnin. Tómstundatorg á Ásbrú, Keilisbraut 778. 13:00 – 17:00 Skessuhellir við smábátahöfnina í Gróf. Hellirinn er opinn og Skessan er heima. Kl. 13:00 og 15:00 Vinkona skessunnar segir tröllasögur og gefur heitt kakó. 13:00 – 17:00 Duushús Duusgötu 2 - 8. Bátasalur: Ratleikur í Bátasafni Gríms Karlssonar. Dregið úr réttum lausnum. Listasalur: Pappírsbrot: Lærðu að búa til bát, gogg eða eira úr papp- ír. Bíósalur: Hvernig léku a og amma sér? Leiksmiðja þar sem sjá má gömul og ný leikföng í gömlum stíl. 11:00 Keflavíkurkirkja – Poppað í kirkjunni. 13:00 – 15:00 Íþróttamiðstöð Akurskóla, Tjarnabraut 5, Gömlu leikirnir rifjaðir upp. 13:00 – 15:00 Innipútt og golf, Hafnargata 2. Kylfur á staðnum. 14:00 Hjálpræðisherinn á Ásbrú: Einstök hátíð fyrir einstök börn! Ásbrú, Flugvallarbraut 730, Einar einstaki: Töfra- sýning með hinum landsþekkta töfrastrák. Samsöngur með Gospelkrökkum og margar aðrar skemmtilegar upp- ákomur. 15:00 17:00 Tómstundatorgið á Ásbrú, Keilisbraut 778 Brenniboltamót í skautahöllinni. Póstkassi skessunnar er opinn fyrir myndir og bréf frá börnum. Verðlaun verða veitt fyrir skemmtilegasta bréð og teikninguna sem birt verða í Víkurfréttum. Má Skessan geyma snuðið þitt? Skessuna langar að gera fínt í hellinum sínum og nnst tilvalið að skreyta hann með litríkum og skemmtilegum snuðum. Taktu þátt í happdrætti – prentaðu út boðskort skess- unnar á skessudaga út af nýjum vef hennar: skessan.is, skilaðu inn í hellinn eða Víkingaheima með nafni þínu og þú getur tekið þátt í happdrætti. Sjá nánari dagskrá á skessan.is Æskilegt er að börn séu í fylgd með fullorðnum. Skemmtum okkur saman! Mig langar að bjóða ykkur öllum til hátíðar í bænum mínum Reykjanesbæ þar sem ég hef nú komið mér vel fyrir í helli við smábátahöfnina. Ég hlakka til að sjá ykkur og vona að við get- um átt notalega stund saman. Verið velkomin í hellinn minn og ekki vera hrædd - ég geri engum mein. Ég hlakka til að sjá ykkur Skessan í hellinum fjölskyldan saman Hárgreiðslumeistarinn Herdís Sigurðardóttir opnar nýja og glæsilega hárgreiðslu- og snyrti- stofu í Mosfellsbænum um helg- ina. Stofan verður sú eina hér- lendis sem verður í samstarfi við snyrtivörufyrirtækið Bobbi Brown en snyrtivörur frá því merki njóta gífurlegrar hylli er- lendis. „Ég hef verið að vinna sem kennari og fræðslufulltrúi fyrir Vidal Sassoon hérlendis en er nú í fyrsta sinn að opna eigin stofu,“ útskýrir Herdís. „Þar bjóðum við bæði upp á förðun og hármeðferðir og það sem er sér- stakt hjá okkur er að við opnum samkvæmt pöntunum. Þetta getur verið mjög hentug í kring- um hátíðarnar og sérstök tæki- færi þegar fólk á erfitt með að koma um miðjan dag.“ Eins eru snyrtivörurnar frá Bobbi Brown fáanlegar á stofunni auk úrval hárvara frá Vidal Sassoon. - amb Hárstofan Sprey, Háholti 12, Mosfellsbæ. Ný stofa í Mosó Katrín Sif Jónsdóttir , Herdís sigurðardóttir og Svava Björk Gunn- arsdóttir hár og snyrtifræðingar. Hárgreiðslustofa opnar í samstarfi við Bobbi Brown: Opnum samkæmt pöntunum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.