Fréttablaðið - 13.11.2009, Síða 46
✽ fylgist vel með
tíðin
Hvernig myndir þú lýsa
þínum stíl? Ég held að ég
hafi engan ákveðinn stíl þar
sem hann breytist næstum frá
degi til dags. Mér finnst alltaf
gaman að prófa eitthvað nýtt og
blanda saman ólíkum efnum og
munstrum. Ég hef sérstaklega
gaman af notuðum fötum þar
sem engar tvær flíkur eru eins.
Hverjar eru tískufyrirmyndir
þínar? Ég á mér engar sérstak-
ar tískufyrirmyndir en hef gaman
af því að skoða ýmis tískublogg,
vefsíður og -tímarit og fæ mik-
inn innblástur þaðan.
Hverjir eru uppáhaldsfata-
hönnuðirnir þínir? Ég er mjög
hrifin af Balmain, Alexander
Wang, Stellu McCartney,
Marc Jacobs og Al-
exander McQueen en
oftast hrífst ég af ein-
stökum flíkum frek-
ar en fatalínum eftir
ákveðna hönnuði.
Hvar finnur þú falda
fjársjóði? Fyrir utan
búðir sem selja notuð
föt finnst mér gaman
að fara á markaði, þá
sérstaklega í útlöndum,
en það má finna ýmislegt hér á
landi, til dæmis í Kolaportinu og
Rauðakrossbúðum. Það leynast
líka oft faldir fjársjóðir í bílskúrn-
um hjá ömmu.
Eru tískuslys í fataskápnum
hjá þér? Ekki beint tískuslys en
ég á það til að kaupa eitthvað
flippað í flýti sem ég kem svo
aldrei til með að nota.
Hverjar eru uppáhalds-
búðirnar þínar? Hingað
til hef ég verslað mikið
bæði í Kaupmannahöfn
og Barcelona þar sem
hægt er að finna allt frá
flottum merkjavörum yfir
í skemmtilegar „vintage“- og
hönnunarbúðir. En draumur-
inn er að versla í New York.
Hvað ætti að vera alger-
lega bannað? Að sýna
óþarflega mikið hold.
Hvað langar þig í fyrir
veturinn? Mig langar í
svört, þröng stígvél sem ná
yfir hnén og einhverja hlýja fal-
lega yfirhöfn, jafnvel með hlé-
barðamunstri. - amb
Svala Lind Þorvaldssdóttir, starfsmaður í Rokki og rósum:
DRAUMURINN ER AÐ
VERSLA Í NEW YORK
1. Fjólublár flauelskjóll úr Rokki og rósum.
2. Röndóttir Tsumori Chisato-sokkar úr KronKron.
3. Svart hárband úr silkiflaueli eftir Önnu Soffíu, fæst í Rokki og rósum.
4. Svört skólataska keypt á 100 kr. í Samhjálp.
5. Blá regnkápa frá árinu 1977 sem amma mín gaf mér.
6. Rósóttur síðkjóll úr Rokki og rósum.
Fötin sem ég var í:
7. Hvítur blúndukjóll og loðkragi úr Rokki og rósum og Dr. Martens-skór keyptir í Barcelona.
8. Samfestingur úr Rokki og rósum, bolur úr Einveru og gullúr úr Fríðu frænku.
2
1
3
5
4
7
8
6
Sími : 568 5305 • Grandagarði 5
Opið v i rka daga
900 - 1800
Laugardag
900-1300
Arnar, Aníka og Mat t i
bjóða ykkur velkomin
og enn betri fréttir
Frábærar
Til þeirra þúsunda Íslendinga sem nota
Pro-Gastro8 við meltingarörðuleikum.
50% meira er af góðgerlum í hverju hylki sem þýðir
að sumir þurfa bara að taka inn 1 hylki á dag.
Pro-Gastro8 góðgerlanir vinna gegn erfiðri meltingu.
Pro-gastro8 fæst í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM
OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐANNA!
TIL
BO
Ð!
VETRARDEKK
ÓD
ÝR
T
5.490,- jepplingur kr 6.490,-
Tilboð á umfelgun
Verðtilboð fyrir eldri borgara
Fólksbíll kr 4.990,-
Jepplingur kr 5.990,-
Gerið verðsamanburð
Sama verð fyrir ál- og stálfelgur
Borgartúni 36, (bakvið Cabin hótel) • Sími 588 9747 • www.vdo.is
Opið mán.–fös. 8–18. Lau. 10–14.
PASSLEGA STÓR Það getur
verið snúið að finna tösku sem rýmir
allt sem þarf á djammið en er samt
handhæg á dansgólfinu. Þessi sæta
svarta vatnshelda taska er frá Birnu
design, Skólavörðustíg.