Fréttablaðið - 13.11.2009, Page 49

Fréttablaðið - 13.11.2009, Page 49
FÖSTUDAGUR 13. nóvember 2009 3 800-1000 g smálúða 2 dl brún grjón tikka masala-sósa 1 dl rjómi 400 g sveppir Skerið lúðuna í þunnar sneiðar, kryddið með salti og pipar og steikið í tvær mínútur á hvorri hlið. Brúnið grjónin í potti með olíu (þannig klístrast þau síður), hellið 4 dl af vatni út í og sjóðið á lægsta hita í ca. 40 til 50 mínútur. Brúnið sveppina og bætið sósunni út í(best að kaupa tilbúna) og hellið svo rjóma eftir þörfum. Berið fram með hvítlauksbrauði. SKURÐARHNÍFAR missa bitið í uppþvottavélum þar sem stálið í þeim þolir ekki mikinn hita og verpist. Einnig getur þvottaefnið farið illa með bitið í hnífunum. Best er að strjúka af hnífnum með rökum klút og bursta létt yfir hann undir meðalheitu vatni úr krananum. Jólablað MS sem nefnist Gott í matinn kemur út á næstu dögum. Samhliða markaðssetn- ingu matargerðarlínunnar Gott í matinn í vor var gefið út uppskriftablað. Nú verður annað blað gefið út en nú með uppskriftum að brauðum og kökum, hátíðarmatnum með hamborgar- hrygg í aðalhlutverki og sniðugum snittum fyrir gamlárskvöld. Einnig eru gefnar sniðugar hug- myndir að ódýrum gjafaöskjum fyrir heimalag- að konfekt og smákökur, bent á skemmtilega framreiðslu á mygluostum og margt fleira. Gott í matinn verður dreift í öll hús á landinu á næstu dögum. Vefsíðan hvaderimatinn.is er bráðsniðug og auðveldar fólki að ákveða matseðil vikunnar. Spurningin um hvað eigi að vera í matinn er daglegur höfuðverkur margra. Vefsíðunni www.hvade- rimatinn.is er ætlað að létta fólki þá ákvörðun. Á síðunni er fjöldi uppskrifta og þar má auðveldlega á örskömmum tíma setja upp matseðil viku til mánuð fram í tímann. Í aðgengilegri töflu á forsíðu síðunnar er hægt að velja hve oft í viku viðkomandi vill borða til- teknar fæðutegundir á borð við fisk, kjúkling, kjöt eða grænmet- isrétti. Þegar því er lokið töfrast fram matseðill með uppskriftum. Hægt er að velja milli þess að hafa réttina fyrir byrjendur eða lengra komna í matargerð. Auk þess er hægt að skipta réttum út ef við- komandi líst ekki á þá. Fyrir utan allt þetta er á síðunni hægt að fá góð ráð um allt milli himins og jarðar sem snertir elda- mennsku auk þess sem fólk getur sent inn sínar eigin uppskriftir sem það vill deila með öðrum. - sg Matseðill heimilis- ins á svipstundu Á síðunni má finna fjölda uppskrifta, bæði einfaldar og flóknar. Smáréttir, bakstur og jólaveisla NÝJU JÓLABLAÐI MS VERÐUR DREIFT TIL LANDSMANNA Á NÆSTUNNI. „Viðskiptavinirnir eru alveg í skýj- unum með þetta. Við opnuðum veit- ingastaðinn síðasta föstudag og það hefur verið fullt alveg síðan,“ segir Geir Vilhjálmsson, sem á og rekur Fiskbúðina Hafberg í Gnoð- arvogi 44 ásamt foreldrum sínum, Vilhjálmi Hafberg og Svölu Geirs- dóttur. Búðin fagnar fimmtán ára afmæli sínu á þessu ári og af því tilefni hefur verið opnaður veit- ingastaður í sama húsnæði. Geir segir Hafberg hafa stækk- að og dafnað í þessi fimmtán ár. „Veitingastaðurinn fellur mjög vel að búðinni, þar sem glervegg- ur skilur á milli. Þetta er hugs- að sem hádegisverðarstaður, þar sem áherslan er lögð á vinalegt umhverfi og góðan mat á góðu verði. Það þýðir ekkert að hafa matinn of dýran þessa dagana,“ segir Geir. Veitingastaðurinn er opinn milli klukkan 11.30 og 14.30 á virkum dögum. Boðið er upp á sérstakt kynningartilboð á súpu, fisk- rétti dagsins og kaffi fram til 15. desember. kjartan@frettabladid.is Opna veitingastað á fimmtán ára afmælinu Fiskbúðin Hafberg í Gnoðarvogi opnaði í síðustu viku veitingastað í sama húsnæði í tilefni fimmtán ára afmælis búðarinnar. Um hádegisverðarstað er að ræða og segir eigandinn verðinu stillt í hóf. Geir Vilhjálmsson rekur Fiskbúðina Hafberg ásamt foreldrum sínum. Veitingastaður hefur verið opnaður inn af búðinni í tilefni fimmtán ára afmælis hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SMÁLÚÐA með brúnum basmati grjónum, sveppum og tikka masala-sósu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.