Fréttablaðið - 13.11.2009, Qupperneq 55
FÖSTUDAGUR 13. nóvember 2009 35
Mínar hjartans þakkir til allra sem
sýndu mér samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærs eiginmanns míns,
Jóhanns Þóris
Alfonssonar.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Sunnuhlíð, Deild 2
fyrir alla ykkar yndislegu umönnun, hlýju og hjálp.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Vigfúsdóttir Alfonsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Helga Vigfúsdóttir
frá Hrísnesi, Barðaströnd,
lést á heimili sínu Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Seljahlíð sunnudaginn 8. nóvember. Jarðarförin fer
fram frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn
16. nóvember kl. 13.00.
Ólafur Kristinn Þórðarson
Kolbrún Ólafsdóttir Hörður Eiðsson
Skarphéðinn Ólafsson Sigríður Skarphéðinsdóttir
Þórður G. Ólafsson Jónína S. Jónasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
Þórunnar Guðjónsdóttur
Borgarholti, Ásahreppi.
Sigríður Kristinsdóttir Dittli Oskar Dittli
Jón R. Kristinsson Kristrún R. Benediktsdóttir
Sigurður Árni Kristinsson
Guðjón Kristinsson Elke Osterkamp
Vilbergur Kristinsson Jóhanna A. Gunnarsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín,
Guðrún Steinunn
Halldórsdóttir
Sólvallagötu 14, Reykjavík,
andaðist á Grund dvalar- og hjúkrunarheimili
sunnudaginn 1. nóvember. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni mánudaginn 16. nóvember kl. 15.00.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á minningarsjóð Grundar dvalar-
og hjúkrunarheimilis.
Brian Dodsworth.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Þórmundur
Þórmundsson
Fossvegi 10, Selfossi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 4. nóvember. Jarðarförin
fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 14. nóvember
klukkan 13.30.
Unnur Jónsdóttir
Vilborg Þórmundsdóttir Benedikt Benediktsson
Margrét Þórmundsdóttir Sveinn Guðmundsson
Þórunn Þórmundsdóttir Gísli Steindórsson
Jóhann Þórmundsson Sigríður Möller
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra,
Dóra Þorsteinsdóttir
lést mánudaginn 9. nóvember á Heilbrigðisstofnuninni,
Sauðárkróki.
Sigurgeir Angantýsson
Vanda Sigurgeirsdóttir Jakob F. Þorsteinsson
Andri Sigurgeirsson Aníta S. Ásmundsdóttir
ömmubörnin og aðrir vandamenn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir, tengdasonur og mágur,
Rúnar Örn Hafsteinsson
flugvélaverkfræðingur,
lést á Landspítalanum að morgni sunnudagsins 8.
nóvember. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánu-
daginn 16. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast
hins látna er bent á reikning til styrktar dóttur hans
(0701 15 202020 kt. 020908- 3270) eða Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna s: 588-7555.
Una Björg Einarsdóttir
Arna Eir U. Rúnarsdóttir
Guðmunda Ingimundardóttir Þórarinn Björn
Guðmundsson
Hafsteinn Sigurjónsson Jónína Ólöf Sighvatsdóttir
Rakel Ösp Hafsteinsdóttir Reynir Örn Jóhannsson
Samúel Arnar Hafsteinsson
Hafsteinn Ernir Hafsteinsson
Einar Ármannsson Ásdís Garðarsdóttir
Ármann Einarsson Þórhalla Sólveig Jónsdóttir
Emil Karel Einarsson
Okkar ástkæra,
Þorbjörg Guðrún
Pálsdóttir
myndhöggvari,
er látin. Útförin auglýst síðar.
Stefán Andrésson Þórunn Andrésdóttir
Katrín Andrésdóttir Gunnar Kristjánsson
Þóra Andrésdóttir Gunnar Roach
Andrés Narfi Andrésson Ása Sjöfn Lórensdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar ástkæru móður og ömmu,
Jóhönnu Herdísar
Sveinbjörnsdóttur
frá Vestmannaeyjum,
Borgarholtsbraut 20, Kópavogi.
Ríkharður H. Friðriksson
Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir
Kristín Helga Ríkharðsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma, langalangamma og
langalangalangamma,
Ragnhildur G.
Finnbogadóttir
frá Fremri-Hvestu, Arnarfirði,
lést á Hrafnistu í Reykjavík þann 9. nóvember. Útförin
fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn
21. nóvember kl. 14.00.
Sigríður Bjarnadóttir Kristján Bersi Ólafsson
Margrét Bjarnadóttir Guðni Sigurjónsson
Guðbjörg Bjarnadóttir Ægir Jóhannsson
Kristófer Bjarnason Janthuan Uansa-Ard
Marínó Bjarnason Freyja Magnúsdóttir
Jón Bjarnason Halla Hjartardóttir
Ingibjörg Halldóra Bjarnadóttir Albert Sigurður Albertsson
Elín Bjarnadóttir Smári Adolfsson
Gestný Bjarnadóttir
Katrín Bjarnadóttir
Dagur Bjarnason Valborg Mikaelsdóttir
Ragnar Gísli Bjarnason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Þeir sem eru að velta því fyrir hvað
þeir eigi að gera næstu nóvemberdaga
gætu fundið það sem þeir leita að í
opnum viðburðum í Háskóla Íslands,
dagana 14.-17. nóvember. Þessa daga
er fjölbreytt dagskrá sem hrærir upp
í andans fólki og þeim sem langar að
reyna og sjá eitthvað nýtt.
Á laugardaginn efna Leikminjasafn
Íslands og Listaskóli Íslands til mál-
stofu um íslenska leiklistarfræði í
samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands
og Hugvísindasvið Háskóla Íslands.
Þar eru margir áhugaverðir fyrir-
lestrar og má þar nefna fyrirlestur
Magnúsar Þórs Þorbergssonar, lekt-
ors við Leiklistardeild Listaháskóla
Íslands, en þar hugleiðir hann stöðu
leikstjórans í íslensku leikhúsi á 3.
áratug síðustu aldar. Þá heldur Ólafur
Engilbertsson, sagnfræðingur og leik-
myndahöfundur, erindi sem hann nefn-
ir: „Rétt landslag eða róttæk list?“ og
fjallar um hvernig sögunni er miðlað
á sviðinu. Vitaskuld er svo ekki hald-
ið málþing um leiklist án þess að leik-
listarfrömuðurinn Jón Viðar Jónsson,
forstöðumaður Leikminjasafns Ís-
lands, komi þar að, en hann ætlar að
fjalla um viðfangsefnið Að dæma eða
dæma ekki: hugleiðingar um tilvistar-
vanda íslenskrar leiklistargagnrýni á
fyrri hluta síðari aldar. Viðburðurinn
er laugardaginn 14. nóvember kl. 14 í
Þjóðminjasafninu.
Gordon Lathrop er einn fremsti
helgisiðafræðingur í heiminum í dag
og hefur kennt helgisiðafræði við ýmsa
háskóla. Hann er orðinn Íslandsvinur,
enda hefur hann kennt námskeið á sínu
sviði í Skálholti auk þess sem bækur
hans eru notaðar við kennslu í guð-
fræðideild Háskóla Íslands. Fyrirlest-
urinn er á mánudaginn klukkan 11.40
í aðalbyggingu HÍ, stofu 229.
Lífið getur orðið ansi flókið þegar
móðir hefur átt í sambandi við föður
kærasta dóttur sinnar en í hinni sov-
ésku kvikmyndaklassík Ekki einu
sinni í draumi segir frá ungmennunum
Kötju og Róman sem fella hugi saman.
Móðir Kötju og faðir Rómans höfðu
eitt sinn átt í ástarsambandi og móð-
irin reynir allt til að stía ungmennun-
um í sundur. Hjálpin berst hins vegar
úr óvæntri átt, frá ungri kennslukonu
sem sjálf á við sín vandamál að stríða.
Hér er á ferðinni sovésk klassík þar
sem mynd og tónlist skapa órjúfanlega
heild. Myndin er sýnd þriðjudaginn 17.
nóvember kl. 16 í Lögbergi, stofu 101.
- uhj
Hugvísindi undir einum hatti
Á SVIÐINU Viðburðirnir í hugvísindunum ættu að glæða andann og gleðina í nóvemberkuld-
anum.