Fréttablaðið - 13.11.2009, Page 61
FÖSTUDAGUR 13. nóvember 2009 41
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 13. nóvember 2009
➜ Tónleikar
16.00 Nemendur Tónlistarskólans á
Akureyri spila í Eymundsson við Hafn-
arstræti á Akureyri.
20.00 Heimstónlistarhátíð í Norræna
húsinu við Sturlugötu 13-14. nóv. Ind-
versk Bollywood tónlist, afrískur djass
o.fl. Á tónleikum í kvöld koma fram
Trans Nations, Helgi og hljóðfæraleik-
ararnir og Shava. Nánari upplýsingar á
www.nordice.is.
20.30 Baggalútur heldur tónleika í
félagsheimilinu Hlégarði í Mosfellsbæ.
Húsið verður opnað kl. 20.
22.00 Ívar Bjarklind og hljómsveit
verða með tónleika á Græna hattinum
við Hafnarstræti á Akureyri. Húsið verð-
ur opnað kl. 21.
22.00 Pulling Teeth verður með tón-
leika á Sódómu Reykjavík við Tryggva-
götu. Einnig koma fram: Plastic Gods,
Bummer, Gone Postal og Celestine.
22.00 Hljómsveitin Huld og Böddi
verða með tónleika á Café Cultura við
Hverfisgötu 18.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Friðrik
Eysteinsson flytur
erindið „Hafa auglýs-
ingar neikvæð áhrif á
börn?“. Fyrirlesturinn
fer fram á Háskóla-
torgi HÍ við Sæmund-
argötu 4 (st. 104).
14.50 Ragnheiður
Þórsdóttir flytur erind-
ið „Að nýta sköpunarkraftinn sem
í okkur býr.“ Fyrirlesturinn fer fram í
Verkmenntaskólanum á Akureyri við
Hrísateig (st. M 01).
➜ Opnanir
17.00 Una Baldvinsdóttir opnar sýn-
ingu í gallerí Crymo, Laugavegi 41a.
Opið þri.-sun. kl. 13-18.
➜ Sýningar
Gussi (Gunnar G. Gunnarsson) heldur
myndlistarsýningu á vinnustofu sinni
á 3ju hæð í Menningarmiðstöðinni
Hólmaröst við Hafnargötu 9 á Stokks-
eyri. Opið næstu tvær helgar kl. 14-18.
➜ Síðustu forvöð
Sýningu Kristínar Rutar Eyjólfsdóttur í
Sláturhúsinu við Kaupvang á Egilsstöð-
um, lýkur á sunnudag. Opið mán.-fös.
kl. 14-22 og um helgar kl. 14-16.
Í Gerðarsafni við Hamraborg í Kópa-
vogi hafa staðið yfir þrjár írskar sýningar
í tengslum við menningarhátíð í Kópa-
vogi. Sýningum lýkur á sunnudaginn.
Opið daglega kl. 11-17. Nánari upplýs-
ingar á www.gerdarsafn.is.
➜ Markaðir
Skálafélagið stendur fyrir markaði í
Tryggvaskála Tryggvatorgi 1 á Selfossi.
Opið kl. 13-18.
➜ Hárgreiðslusýning
21.00 Hárgreiðslusýning
útskriftarnema hársnyrti-
deildar Tækniskólans verður
haldin á Austur Bar/Grill við Austur-
stræti 7. Húsið verður opnað kl. 20.
➜ Opinn dagur
Opinn dagur verður í dag í öllum
deildum Listaháskóla Íslands. Nánari
upplýsingar á www.lhi.is.
➜ Dansleikir
Hljómsveitin Rokk verður á Players við
Bæjarlind í Kópavogi.
Boogie Nights-plötusnúðarnir verða á
skemmtistaðnum SPOT við bæjarlind í
Kópavogi.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
GOTT Í MATINN - jólabl
aðið
-frá MS, berst til þín í dag.
Njótið vel og verði ykkur að
góðu!
fcfcfcfcfc
fcfcfcfcfc
fcfcfcfcfc
fcfcfcfcfc
fc
fcfcfcfcfc
fcfcfcfcfc
fcfcfcfcfc
fcfcfcfcfc
fc
Nýja jólablaðið er stútfullt af góðum
uppskriftum og hugmyndum.
Hægt er að skoða blaðið inni á vefn
um: www.gottimatinn.is
P
P
P
P
P
P
I
I
I
I
I
A
PP
P
Z
Z
I
A
Í matargerðarlínunni GOTT Í MATINN frá MS má
finna margar vörur sem koma sér mjög vel í jólaundir-
búningnum, hvort sem á að búa til sósu með jólasteikinni
eða indælis ís í eftirrétt, útbúa spennandi snittur í ára-
mótaboðið eða baka ljúffengar smákökur og tertur.
MEÐAL EFNIS Í JÓLABLAÐINU:
·Bakað á aðventu
·Smáréttir fyrir boðið
·Ísgerð - vanilluís með ýmsu góðgæti
·Jólaveisla á aðfangadagskvöldi
·Konfektgerð og margt fleira
www.gottimatinn.is
FA
B
R
IK
A
N
Samkvæmt The Sun hyggst leik-
konan Angelina Jolie ættleiða eitt
barn enn og hefur þegar lagt inn
umsókn þess efnis. Það sem vekur
furðu er að aðeins eitt nafn er
skráð á umsókninni, hennar eigið.
Leikkonan á sex
börn með Brad
Pitt. „Brad
finnst sex
börn vera
feiki nóg
og vill
ekki
bæta
fleirum í fjöl-
skylduna,“ var
haft eftir heimild-
armanni.
Vill stækka
fjölskyldunaTóbaksreykingar eru faraldur sem
dregur 400 Íslendinga til dauða á
ári. Fjögur hundruð manns! Marg-
ir veigra sér við að takast á við fíkn-
ina með því að hætta einfaldlega að
reykja. Því eru ýmsar leiðir í boði til
að hætta í smáskömmtum eða finna
sér eitthvað hættuminna í staðinn.
Það nýjasta er svokölluð rafretta – e-
cigarette – sem bráðum verður hægt
að panta á netinu í gegnum heimasíð-
una gaxa.is. Sá sem stendur á bak við
innflutninginn á rafrettunni heitir
Gestur Hermannsson og hefur hann
sjálfur reynslu af þessari leið.
„Ég trappaði mig niður með því að
reykja rafrettuna, fyrst með venju-
legum rettum. Þannig fór ég úr pakka
á dag niður í tíu, svo í fimm og loks
enga. Ef mig langar að reykja, eins og
til dæmis þegar ég fer út að skemmta
mér, fæ ég mér bara rafrettu. Hún er
mildari og betri og reynir ekkert á
hálsinn eins og sígarettur,“ segir hann
og bætir við: „Það sem er best við raf-
rettuna er að hún virkar sálfræðilega.
Maður handfjatlar hana, fær bragð
úr henni, það er „glóð“ í henni og það
rýkur meira að segja úr henni.“
Engin lykt er af reyknum úr raf-
rettunni svo það má „reykja“ hana
hvar sem er, í flugvél, inni á skemmti-
stöðum, í kirkju þess vegna. Raf-
rettan skiptist í þrjá hluta; rafhlöðu,
bragðefnishylki og hitara. Rafhlað-
an er hlaðin í gegnum USB-tengi og
kaupa þarf reglulega ný bragðefnis-
hylki þegar þau gömlu eru farin að
dofna. Gestur segist geta boðið start-
pakkann á mjög góðu verði, 9.995 kr.,
vegna góðra samninga við fyrirtækið
erlendis. - drg
Trappaði sig niður með raf-rettu
VIRKAR SÁLFRÆÐILEGA Gestur Hermannsson púar rafrettu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA