Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 63
FÖSTUDAGUR 13. nóvember 2009 43
Íslenskir hönnuðir hafa verið duglegir við
að skipuleggja hönnunarmarkaði sem skjóta
upp kollinum hér og þar í miðbænum. Um
helgina verða tveir slíkir markaðir haldnir,
annar í Kópavoginum og hinn í Bankastræti.
Fatahönnuðirnir Linda Ósk Guðmunds-
dóttir og Sandra Berndsen standa fyrir
milliliðalausri verslun á vinnustofu sinni
við Smiðjuveg, grænni götu, í Kópavogi
á laugardag. Linda Ósk hannar flík-
ur undir heitinu Another Scorpion og
Sandra undir nafninu Oktober. „Við
verðum aðallega með vetrarvörur, ull-
arpeysur, hettupeysur og mikið af
slám. Þetta er í fyrsta sinn sem við
höldum slíkan markað en okkur þótti
þetta kjörin leið til að koma okkur á
framfæri,“ segir Linda Ósk. Markað-
urinn hefst klukkan 11.00 á laugardag
og stendur til klukkan 18.00.
Í Bankastræti 14, þar sem verslunin
Nakti apinn var áður til húsa, verður einn-
ig haldinn hönnunarmarkaður og munu
níu hönnuðir selja þar vörur sínar á hag-
stæðu verði og má þar nefna Eygló
Lárusdóttur, Guðbjörgu Jakobs-
dóttur, Sonju Bent, Aaron Charles
Bullion, Elvu Dögg Árnadóttur auk
annarra. Markaðurinn hefst klukk-
an 11.00 og stendur til klukkan 20.00.
- sm
Miss J Alexander sem sló í gegn
sem einn þriggja dómara í þátt-
unum America‘s Next Top Model
er stjúpforeldri sjö ára drengs.
Miss J útskýrði í spjallþætti
Tyru Banks að fyrrverandi sam-
býlismaður hans hefði aðstoð-
að gamla vinkonu við að geta
barn með því að gefa henni sæði.
„Frönsk samkynhneigð kona
spurði okkur hvort við vildum
aðstoða hana og við vorum til í
það,“ útskýrir Miss J, sem segist
taka virkan þátt í uppeldi drengs-
ins. „Reynslan hefur gert líf mitt
betra. Ég held þó að eitthvað
af mínum genum hljóti að hafa
læðst þarna með því hann heimt-
ar að klæðast fallegum skóm og
drekka úr fínum glösum.“
Miss J er
stjúpforeldri
FORELDRI Miss J er stjúpforeldri sjö ára
drengs.
Bítillinn Paul McCartney viður-
kenndi nýlega í viðtali að honum
hefði ekki þótt Bítlarnir sérstak-
lega góð hljómsveit á sínum tíma.
Í viðtalinu segir hann jafnframt
að það hafi ekki komið á óvart
þegar útgáfufyrirtækið Decca
neitaði þeim um samning. „Við
vorum ekkert svo öflugir. Við
vorum enn að móta hljómsveitina.
Þú hefðir sjálfur neitað okkur um
samning á þessum tíma, hefðir þú
verið að vinna fyrir útgáfufyrir-
tæki,“ sagði hann.
Hann sagði jafnframt að
hljómsveitin hefði lært að heilla
áhorfendur á meðan hún lék á
skemmtistöðum í Hamborg. „Í
Hamborg lærðum við að heilla
fólk og laða að okkur áhorfendur.
Við urðum virkilega góðir í því.“
Bítlarnir
byrjuðu illa
HEILLUÐU HAMBORG McCartney segir
að Bítlarnir hafi lært margt í Hamborg.
EYGLÓ Meðal þeirra hönnuða sem selja vörur sínar er
Eygló Lárusdóttir, hér má sjá fyrirsætu klæðast kjól frá
henni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Íslensk hönnun skýtur upp kolli
Rihanna biður ekki um neina holl-
ustu í búningsherbergi sitt. Söng-
konan, sem er 21 árs, mun koma
fram í London í næstu viku og
samkvæmt skipuleggjendum tón-
leikanna óskaði hún eftir
pitsu, frönskum kartöflum,
kleinuhringjum, kartöflu-
flögum, örbylgjulasanja og
kjúklingavængjum í bún-
ingsherbergi sitt. Listinn
innihélt yfir 7.000 kal-
oríur og var epli eina
hollustan sem þar var
að finna.
„Þessar banda-
rísku stórstjörnur
vilja yfirleitt ekkert
nema fáránlega holl-
an mat. Rihanna var
því skemmtileg til-
breyting og var ekki með neitt kol-
vetna- og glúteinsnautt rugl,“ sagði
einn skipuleggjandi tónleikanna.
Sjálf segist Rihanna hafa litlar
áhyggjur af línunum. „Að vera á
tónleikaferðalagi kemur manni
í form, sem er gott þar sem ég
borða nánast hvað sem ég kemst
yfir.“ Rihanna var valin Kona
ársins af bandaríska tímarit-
inu Glamour síðastliðinn mánu-
dag og plata hennar, Rated R,
er væntanleg í verslanir í
næstu viku.
Borðar hvað sem er
HUGSAR EKKI UM LÍNURNAR
Rihanna segist halda sér í
formi með því að koma fram á
tónleikum og hún borðar allt
sem hana langar í.