Fréttablaðið - 13.11.2009, Síða 70
50 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Margir handboltaáhugamenn ráku upp stór augu um helgina
þegar gamla kempan Bjarki Sigurðsson birtist í búningi FH-liðsins.
Bjarki er orðinn 42 ára gamall en hefur samt ekki sagt sitt síðasta í
boltanum hér heima.
„Þetta voru fæstu mínútur sem ég hef spilað í leik síðan ég
spilaði minn fyrsta leik fyrir Víking á sínum tíma,“ sagði Bjarki
léttur. Hann spilaði nokkra leiki með Víkingi í úrvalsdeildinni í
fyrra en hætti þar sem honum fannst hann ekki passa í hóp-
inn. Héldu margir að það hefðu verið hans síðustu leikir í
efstu deild en svo var nú ekki.
„Ég hef verið að spila í utandeildinni en var ekki ánægð-
ur með spilamennskuna þar. Sjálfur er ég að æfa mikið,
hleyp úti og er því í góðu formi. Svo hringir Einar Andri,
þjálfari FH, í mig og biður mig að koma á æfingar þar sem
örvhenta skyttan í liðinu hafi puttabrotnað. Ég var nú á
báðum áttum en ákvað að slá til og mæta. Ég fór því úr
utandeildinni í eitt sterkasta lið landsins á mettíma,“
sagði Bjarki og hló við.
„Ég er þarna til þess að leysa menn af og ef ég get
hjálpað til og jafnvel kennt einhverjum eitthvað þá er það hið
besta mál,“ sagði Bjarki en er það ekki óðs manns æði fyrir
mann á hans aldri að vera að standa í þessu?
„Það hafa margir spurt mig að því hvort ég sé að ganga af
göflunum. Það má kannski segja að það sé ekki langt í að ég
gangi af göflunum. Annars er ég fíkill og hef bara rosalega
gaman af þessu. Það er skemmtilegra að æfa með
þessum strákum en að æfa einn, þó svo að ég hafi orðið
gaman af því að hlaupa.“
Bjarki segir að hann fái enga sérmeðferð hjá leik-
mönnum FH-liðsins þó svo að hann sé kannski kominn
af léttasta skeiði. Í FH-liðinu er sonur hans, Örn Ingi, og
þeir feðgar spiluðu saman gegn Haukum um síðustu
helgi.
„Það er vissulega gaman að spila með stráknum og
stór bónus. Það er líka gaman að vera í þessu flotta liði.
Þarna eru góðir strákar,“ sagði Bjarki, sem ætlar að taka
einn dag fyrir í einu og lofar engu um hvað hann verði
lengi í viðbót í boltanum.
KEMPAN BJARKI SIGURÐSSON: ÚR UTANDEILDINNI Í EITT BESTA LIÐ LANDSINS Á METTÍMA
Það er ekki langt í að ég gangi af göflunum
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
er á ferð og flugi þessa dagana.
Liðið lék gegn Íran í Teheran um
helgina og er núna komið til Lúx-
emborg. Ferðalagið þangað tók
sinn tíma en landsliðið var eina 23
tíma að komast til Lúxemborgar
frá Teheran.
Ólafur Jóhannesson landsliðs-
þjálfari var ánægður með ferðina
til Írans og hafði ekki yfir neinu
að kvarta.
„Það var mjög fínt í Íran. Auð-
vitað er önnur menning þarna, en
móttökurnar voru mjög fínar og
við gátum ekkert kvartað. Hótel-
ið var gott en auðvitað var matur-
inn öðruvísi. Við áttum von á því
þannig að það kom okkur ekkert í
opna skjöldu. Hvað varðar matinn
þá létum við senda mat á undan
okkur. Svo prófuðum við þeirra
rétti. Meginuppistaðan í matnum
hjá okkur var samt kjúklingur og
pasta,“ sagði Ólafur.
Vel var passað upp á íslenska
hópinn í Teheran þó svo að Ólafur
segi að ekki hafi verið ástæða til
að óttast neitt.
„Okkur var ráðlagt að fara ekki
neitt án þess að hafa verði með
okkur. Þeir voru til staðar á hótel-
inu ef á þurfti að halda. Við fórum
annars ekki mikið. Skelltum okkur
í smá útsýnisferð um bæinn og svo
var farið með okkur upp í fjöll.
Það var ágætt. Það er greinilega
fínt fólk þarna og vel tekið á móti
okkur. Þetta eru framandi slóðir og
það var gaman að sjá þetta,“ sagði
Ólafur en hann og aðstoðarþjálf-
arinn, Pétur Pétursson, eru ann-
álaðir golfáhugamenn og nokkuð
lunknir með kylfurnar. Þeir spurð-
ust fyrir um golfvöll, hann var til
staðar en ekki gafst tími að þessu
sinni til að spila einn hring.
Leikurinn sjálfur fór fram á
hinum risavaxna Azadi-velli. Lítið
fór fyrir þeim áhorfendum sem
mættu á völlinn enda rúmar leik-
vangurinn ansi marga.
„Einhver sagði mér að þetta
væri fjórði stærsti völlur í heimi
og rúmaði rúmlega 110 þúsund
manns í sæti. Það var ekki mikið
af fólki og leikvangurinn gleypti
í raun áhorfendurna sem voru
þarna. Völlurinn var annars frá-
bær og grasið virkilega gott,“
sagði Ólafur, sem sagði ekkert
hafa komið upp á að þessu sinni.
„Það eru ekki margar Evr-
ópuþjóðir sem vilja koma þarna.
Íranar leggja því metnað sinn í
að hafa hlutina í lagi og þeir voru
það. Þetta var bara mjög fín ferð
sem við erum sáttir við. Óreynd-
ir menn fengu tækifæri sem var
gott.“ henry@frettabladid.is
Ekki ráðlagt að fara út
nema hafa verði með
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fór í ævintýrareisu til Teheran í Íran.
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari segir ferðina hafa verið vel heppnaða.
Íranar hafi verið höfðingjar heim að sækja og enginn hafi kvartað yfir neinu.
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Var ánægður með ferðina til Teheran og segist gjarnan vilja
koma þangað aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jólatilboð !
Faxafeni 5, Reykjavik og Skeiði 1, Ísafirði • Sími 588 8477 • www.betrabak.is
• Hitajöfnun 37°C
• Hannað af NASA
• 100% hreinn gæsadúnn
• Astma- og ofnæmisprófað
• Hægt að þvo á 60°C
Dúnsokkar
Kr. 6.900,-
Hitajöfnunarsæng
140x200 cm
Kr. 29.900,-
FÓTBOLTI Elísabet Gunnarsdótt-
ir mun skrifa undir tveggja ára
samning við sænska úrvalsdeild-
arfélagið Kristianstad í gær.
Þetta staðfesti hún í samtali við
Fréttablaðið. Liðið lenti í 10. sæti
í deildinni undir hennar stjórn í
sumar.
„Stefnan er að vera ekki í
þeirri stöðu að þurfa að berjast
fyrir lífi okkar í deildinni eins og
í sumar,“ sagði Elísabet. „Ég veit
að þetta er ein sterkasta deild í
heimi en ég er afar metnaðarfull
og vil fara mun lengra.“
Hólmfríður Magnúsdótt-
ir mun leika með Philadelphia
Independence í Bandaríkjunum
á næsta ári en enn er óvíst hvað
þær Margrét Lára Viðarsdóttir,
Erla Steina Arnardóttir og Guðný
Björk Óðinsdóttir gera.
„Ég vil halda þeim öllum og
reyndar flestum okkar leikmönn-
um. Eins og sakir standa nú eru
bara tveir leikmenn liðsins samn-
ningsbundnir fram á næsta ár
enda hefur bara verið samið til
eins árs í einu. Ég vil þó breyta
því og hef sett það skilyrði að
við engan verði samið nema til
tveggja ára – sama hver á í hlut,“
sagði Elísabet. - esá
Elísabet Gunnarsdóttir:
Áfram hjá
Kristianstad
ELÍSABET Verður áfram í Svíþjóð.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
> Óvíst hvað Ásta gerir
Samningur landsliðskonunnar Ástu Árnadóttur við Tyresö
í Svíþjóð er útrunninn en félagið vann sér sæti í sænsku
úrvalsdeildinni í haust. Ásta er stödd hér á landi vegna
námsins síns og óvíst er hvort hún fari aftur
til Tyresö. „Þetta er allt í vinnslu en til þess
að þetta takist þarf ég að púsla saman
fótboltanum og skólanum. Félagið vill þó
fá mig aftur og vonandi leysist þetta
bara sem fyrst. En þetta er allt mjög
óljóst enn og því get ég lítið sagt um
hvað gerist,“ sagði Ásta. „Mér leið þó
mjög vel úti og líst afar vel á næsta
tímabil enda er liðið búið að styrkja
sig mjög mikið fyrir átökin í úrvals-
deildinni á næsta ári.“
FÓTBOLTI LdB FC Malmö, eitt
stærsta félagið í Svíþjóð, hefur
sýnt Blikanum Söru Björk Gunn-
arsdóttur áhuga. Dóra Stefáns-
dóttir hefur leikið með félag-
inu undanfarin ár og þá er Þóra
B. Helgadóttir nýgengin í raðir
félagsins frá Kolbotn í Noregi.
Sjálf hafði Sara heyrt af áhuga
Malmö en hún stefnir engu að
síður að því að spila hér á landi á
næstu leiktíð.
„Ég vil klára skólann í vor og
svo gæti eitthvað gerst eftir að
tímabilinu lýkur um haustið. Ég
vonast þó eftir að komast út til
reynslu hjá einhverju félagi nú
í vetur til að undirbúa mig fyrir
næsta haust.“ sagði Sara við
Fréttablaðið.
Malmö varð í þriðja sæti
sænsku úrvalsdeildarinnar í
haust, aðeins fjórum stigum á
eftir meisturunum í Linköping.
- esá
Sara Björk Gunnarsdóttir:
Malmö hefur
áhuga á Söru
SARA BJÖRK Fastamaður í íslenska
landsliðinu þrátt fyrir ungan aldur.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN