Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.11.2009, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 13.11.2009, Qupperneq 78
58 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. varsla, 6. tímaeining, 8. drulla, 9. móðurlíf, 11. eyrir, 12. rabb, 14. kvk nafn, 16. tveir eins, 17. aðstoð, 18. í viðbót, 20. átt, 21. murra. LÓÐRÉTT 1. líkamshluti, 3. frá, 4. örvandi efni, 5. bjálki, 7. starfræksla, 10. kvk nafn, 13. mjög, 15. þitt, 16. efni, 19. gjaldmiðill. LAUSN LÁRÉTT: 2. vakt, 6. ár, 8. for, 9. leg, 11. fé, 12. skraf, 14. sóley, 16. tt, 17. lið, 18. auk, 20. na, 21. urra. LÓÐRÉTT: 1. háls, 3. af, 4. koffein, 5. tré, 7. rekstur, 10. gró, 13. all, 15. yðar, 16. tau, 19. kr. „Það er ekkert bragð af gullinu en það var samt rosalega gaman að prófa það,“ segir Guðrún Dögg Rún- arsdóttir, ungfrú Ísland. Guðrún, sem er fulltrúi Íslands í Ungfrú heimur, hefur dvalið á sjö stjörnu hóteli í Abú Dabí undan- farna daga ásamt öðrum keppend- um. Aðalkeppnin fer fram í Suður- Afríku í desember. Stelpunum var boðið í glæsileg- an kvöldverð í vikunni og Guðrún lenti í sæti við hliðina á moldríkum olíufursta. „Það var mjög fræðandi vegna þess að hann var svo opinn,“ segir hún. „Hann bað okkur um að spyrja sig að hverju sem er, þannig að við lærðum mjög mikið um araba og múslima þar sem að hann vildi endilega fræða okkur.“ Á boðstólum var skelfiskur og lambakjöt, en eftirrétturinn vakti mesta athygli og minnti á fræga góð- ærisboðsferð Landsbankans þar sem boðið var upp á gullkryddað risotto. „Það voru þrjár tegundir af súkk- ulaðieftiréttum. Í miðjunni var svo réttur gerður úr hvítu súkkulaði og það var blaðgull yfir honum sem við borðuðum,“ segir Guðrún. Hún fer fögrum orðum um hótelið sem stelp- urnar dvelja á í boði keppninnar og segir allt gert fyrir þær. „Herberg- ið er stórkostlegt! Rosalega nýtísku- legt og flott. Við erum með svalir þar sem við förum í sólbað, en það er 27 stiga hiti hérna.“ Guðrún segir ferðalagið ekki ein- tóma sælu þrátt fyrir sólböð og gull- át. Stelpurnar eru á fullu allan dag- inn, alla daga og þurfa alltaf að vera vel til hafðar. „Við þurfum að vakna mjög snemma til þess að líta vel út,“ segir hún. „Þannig að við fáum ekki frábæran svefn. Þetta er hörkuvinna og rosalega erfitt, en algjörlega þess virði. Við erum reynslunni ríkari og fáum að skoða marga fallega staði sem við hefðum líklega aldrei feng- ið að sjá. Þannig að ég er mjög ánægð og þakklát fyrir að fá þetta tæki- færi. Stelpurnar eru líka yndislegar. Þetta er eins og að búa á heimavist. Við erum allar í sömu stöðunni, að keppa í Miss World, en við erum líka aleinar í framandi landi með ekk- ert nema hver aðra. Þannig að það er mjög gott að við náum svona vel saman. atlifannar@frettabladid.is GUÐRÚN DÖGG RÚNARSDÓTTIR: DVELUR Á SJÖ STJÖRNU HÓTELI Ungfrú Ísland borðaði gull NÁ VEL SAMAN Guðrún og hinar stelpurnar í keppninni ná vel saman. Hérna er hún ásamt ungfrú Ítalíu. LÖGIN VIÐ VINNUNA „Ég hlusta á stöð sem er hérna í Lúxemborg, 87,7, og er svona „eighties“-tónlist. Svo er ég með lagalista í tölvunni minni þegar ég er að dunda mér í námsefni eða vinna myndir í tölvunni.“ Nína Björk Gunnarsdóttir ljósmyndari VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á blaðsíðu 8 1 Neftóbaksneysla þingmanna. 2 Slysum hefur fækkað um 34 prósent. 3 Þeir leika með sádi-arabísku liði. „Þeir sem eru sverari, níutíu kíló plús, verða aftar á vellinum og halda stöðunni, en hinir munu hlaupa,“ segir Ingólfur Þórarins- son, betur þekktur sem Ingó Veð- urguð, sem verður fyrirliði „All- star“ liðs í fótbolta annað kvöld á vegum Góðgerðarráðs Verzlunar- skóla Íslands. „All-star“ liðið skipa þjóðþekktir einstaklingar á borð við Auðun Blöndal, Sveppa, Loga Bergmann, Gazman, og Gunna Helga, og munu þeir keppa á móti liði Verzlunarskólans. „Ég held að við vinnum þetta 4:2. Við erum með þrjá eða fjóra úrvalsdeildarleikmenn og fyndna gaura sem munu virka truflandi fyrir þá sem eru í hinu liðinu, svo það væri hneyksli ef við myndum tapa fyrir einhverjum mennta- skólakrökkum,“ segir Ingó og brosir. Þetta er í annað sinn sem góð- gerðarfótboltaleikur sem þessi fer fram á vegum Verzló, en í fyrra mættu um 2.500 manns. Fótbolta- leikurinn annað kvöld fer fram í Kórnum í Kópavogi. Húsið verður opnað klukkan 18.30 og leikurinn hefst klukk- an 19, en 200 króna aðgangseyrir og ágóði af veitingasölu mun fara óskiptur í að byggja vatnsbrunn við lítinn barnaskóla í Úganda. - ag Væri hneyksli að tapa SIGURVISS Haukur Baldvinsson, fyrirliði liðs Verzlunarskólans, ásamt Ingó Veður- guði, fyrirliða „All-star“ liðsins. Grínarinn Steindi Jr. vinnur nú hörðum höndum að sjónvarpsþátt- um sínum sem fara í loftið á Stöð 2 á næsta ári. Steindi er innmúraður í rappelítu landsins, þrátt fyrir að vera ekki rappari sjálfur. Ágúst Bent úr XXX Rottweiler vinnur þættina með honum, Dóri DNA er góður félagi hans og nú heyrist að annar Rottweiler- hundur, Erpur Eyvindarson, komi fram í nýju þáttun- um. Lítið fæst upp- gefið um aðkomu Erps, en heimildir Fréttablaðs- ins herma að persóna hans verði af erlendu bergi brotin. Talandi um Steinda Jr., þá hafa auglýsingar Sjóvá sem skarta honum og hinum dularfulla Bobba í aðalhlutverki vakið talsverða athygli. Athyglin hefur raunar verið svo mikil að ákveðið hefur verið að fá félagana til að taka upp tvær auglýs- ingar í viðbót með jólaþema. Nú er spurning í hvaða Bobba Steindi ratar um jólin. Ný ævisaga Magga Eiríks, Reyndu aftur, hefur fengið mjög góð viðbrögð síðan hún kom út á dögunum. Til marks um það fær bókin þann heiður að vera sú fyrsta á landinu sem fer í endur- prentun hjá prentsmiðjunni Odda fyrir þessi jól. Fyrsta upplagið var prentað í 2.500 eintökum, sem eru reyndar smámunir miðað við nýja bók Arnaldar Indriðasonar, Svörtuloft, sem var prentuð í þrjátíu þúsund eintökum. Engu að síður flott- ur árangur hjá Magga. - afb, fb FRÉTTIR AF FÓLKI Rithöfundurinn Gerður Kristný ætlar að lesa upp úr barnabók sinni Prinsessunni á Bessastöðum fyrir rúmlega eitt þúsund krakka í átta grunnskólum á Akureyri á aðeins tveimur dögum. „Ég hlakka mikið til,“ segir Gerður, sem hefur lesturinn 24. nóvem- ber. „Ég skipulagði þetta sjálf og fékk Sögu Capital til að styrkja mig. Ég les fyrir 1.092 krakka held ég, það er ef enginn liggur heima í svína flensu.“ Gerður þarf að hafa sig alla við til að komast á milli skóla á svo skömmum tíma en hefur ráð undir rifi hverju hvað það varðar. „Ég er búin að tala við talsmenn þessara skóla og þeir sjá um að einhver keyri mig á milli staða. Það verða gangaverðir, húsverðir eða kannski kennarar sem koma mér frá einum stað til annars. Ég verð látin þeytast á milli skóla eins og flensuveira,“ segir hún og hlær. Hún útskýrir að munur sé á því að gefa út barnabók í ár og undanfarin ár. „Skólarnir hafa ekki peninga til að bjóða rithöf- undum til sín. Það hefur verið venjan að maður hefur verið pant- aður í skóla en það er lítið um það í ár og þar af leiðandi riggaði ég þessu bara upp sjálf.“ Og meira af Gerði því ljóð henn- ar og Sigurðar Pálssonar koma út á bengölsku og hindí á Indlandi 5. desember. „Þetta er mikill heið- ur. 400 milljónir tala hindí og aðeins færri bengölsku og það eru bara 400 eintök af hvorri bók þannig að það verða fjöldaslags- mál í Nýju-Delí þegar bækurnar koma út.“ Einnig koma ljóð henn- ar út á esperantó hjá bókaforlagi í New York á næstu dögum, auk þess sem barnabókin Garðurinn kemur brátt út í Þýskalandi og Noregi. - fb Þúsund börn á tveimur dögum GERÐUR KRISTNÝ Gerður les upp úr barnabók sinni fyrir rúmlega eitt þúsund krakka á Akureyri á aðeins tveimur dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LAXAFLÖK 1590 LÚÐUFLÖK 1590 XL HUMAR HUMARSÚPA TÚNFISKUR SÚPUHUMAR Opið 11:30-14:30 TILBOÐ Í VEITINGASAL Súpa fi skur og kaffi 990
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.