Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 4
4 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR UNGLINGAR Rannsóknir sýna fram á að stór hluti foreldra unglinga í framhaldsskólum lítur svo á að áfengisdrykkja þeirra sé í góðu lagi. Álfgeir Logi Kristjánsson, rann- sóknarstjóri Rannsóknar og grein- ingar hjá Háskólanum í Reykjavík, bendir á að niðurstöður úr rann- sóknum þeirra á vímuefnaneyslu unglinga sýni meðal annars að tæpum 26 prósentum stráka sautján ára og yngri og 27 prósentum stelp- na hafi verið boðið áfengi af foreldr- um sínum. Foreldrar tæplega sextán prósenta stráka á þessum aldri og tæplega átján prósenta stelpna hafi einnig keypt áfengi fyrir börnin sín. „Það er áhugavert að benda á þessar tölur vegna þess að þær sýna að áfengisdrykkja unglinga er ekki bara framhaldsskólavanda- mál. Þetta er menningarbundið fyrirbæri, við lítum gjarnan svo á að unglingar séu orðnir fullorðnir þegar þeir eru sextán ára,“ segir Álfgeir, sem segir skýringu þessa að hluta til hversu stutt er síðan sjálf- ræðisaldur var hækkaður úr sex- tán árum í átján. Hann segir síðan ósamræmi milli sjálfræðisaldurs og hins löglega aldurs til áfengis- drykkju, sem er tuttugu ár, skapa ákveðna óvissu. Töluvert hefur verið fjallað um drykkju unglinga á framhaldsskóla- aldri undanfarið. Í rannsókn Rann- sóknar og greiningar frá árinu 2007 kom fram að tæp 26 prósent stráka og 33 prósent stúlkna yngri en átján ára sögðust drekka stundum eða oft á skemmtistöðum, 44 prósent stráka og 55 prósent stúlkna yngri en átján drukku stundum eða oft heima hjá sér og 44 prósent stráka á þessum aldri og 53 prósent stúlkna drukku stundum eða oft fyrir framhalds- skólaball. Í þessari sömu könnun kom í ljós að 62 prósent stráka yngri en átján og sjötíu prósent stúlkna á sama aldri sögðust hafa drukkið áfengi einu sinni eða oftar mánuðinn áður en könnunin var gerð. Á meðal framhaldsskólanema eldri en átján hafði 81 prósent stráka og 83 pró- sent stúlkna drukkið áfengi einu sinni eða oftar mánuðinn á undan. „Það er gríðarleg áfengismenning meðal unglinga á framhaldsskóla- aldri og tölur um drykkju í fram- haldsskólum sýna að drykkjan á þeim aldri hefur ekki minnkað svo heitið geti.“ Það er gerólíkt því sem gerst hefur undanfarin ár í grunnskól- um þar sem verulega hefur dregið úr drykkju nemenda í efstu bekkj- um grunnskóla. Áfengisneysla eykst hins vegar um 140 prósent frá tíunda bekk til fyrsta ársins í fram- haldsskóla, segir Álfgeir. „Spurn- ingin sem vofir yfir okkur er hvort við ætlum að gera eitthvað í málinu eða horfa í hina áttina.“ sigridur@frettabladid.is Það er gríðarleg áfengis- menning meðal unglinga á framhaldsskólaaldri … ÁLFGEIR LOGI KRISTJÁNSSON RANNSÓKNARSTJÓRI RANNSÓKNAR OG GREININGAR FÆREYSKUR DANSUR EFTIR HULDAR BREIÐFJÖRÐ D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Ungur Íslendingur tekur sér ferð á hendur til að hitta þjóðina sem virðist ekki geta hætt að bjarga okkur. Hvað er það með Færeyinga? Eru þeir svona ofboðslega gott fólk? „ FALLEG BÓK . OG Á ÓVÆNT AN HÁTT KANNSK I EIN BESTA BÓKIN UM HRUNIÐ.“ – HALLGRÍMU R HELGASON , FACEBOOK Flestum foreldrum finnst unglingadrykkja sjálfsögð Flestir unglingar í framhaldsskólum drekka áfengi. Ekki við framhaldsskólana að sakast, segir rannsóknar- stjóri Rannsóknar og greiningar. Áfengisneysla eykst um 140 prósent frá 10. bekk til 1. árs í framhaldsskóla. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 18° 13° 12° 14° 16° 17° 11° 11° 24° 14° 21° 15° 26° 10° 15° 14° 10° Á MORGUN 3-8 m/s , hægast NA-til. SUNNUDAGUR Hvasst á Vestfjörðum og suðaustanlands. 7 5 1 4 6 4 8 5 8 2 6 12 5 9 5 2 3 16 8 6 4 3 7 1 0 0 6 4 2 0 1 3 HELGIN Í dag verð- ur strekkingur eða allhvasst á Vest- fjörðum en hægari vindur annars staðar. Á morgun verða fremur hæg- ar austlægar áttir og lítil úrkoma en á sunnudaginn má búast við norð- austlægri átt með slyddu eða éljum norðaustan til. Soffía Sveinsdóttir Veður- fréttamaður FÉLAGSMÁL Heimili og skóli vara við því að í dag hafi á netinu verið boðað til svokallaðs „Kick a gin- ger day“ þar sem hvatt sé til þess að sparkað sé í rauðhært fólk. „Heimili og skóli og fram- kvæmdastjóri Olweusar-áætl- unarinnar á Íslandi telja að með þessu háttalagi sé verið að hvetja til ofbeldis sem feli í sér niður- lægingu og virðingarleysi. „Við beinum þeim tilmælum til skólastjórnenda að vekja athygli foreldra og nemenda á því að skólinn muni ekki líða slíka hátt- semi,“ segir í tilkynningu sam- takanna. Mælst er til þess að foreldrar og aðrir forráðamenn verði upplýstir og gerð grein fyrir hvernig skól- inn muni bregðast við brotum af þessu tagi. „Jafnframt verði nem- endur hvattir til að taka afstöðu gegn slíku atferli, athygli vakin á gagnkvæmri virðingu og gildi þess að nemendur sýni hver öðrum tillitsemi,“ segir í tilkynningu. Á samskiptavefnum Facebook var stofnuð síða þar sem hvatt var til þessa ofbeldis, en henni hefur nú verið lokað. Um leið spruttu upp ótal hvatningarsíður til höf- uðs vitleysunni, jafnvel þar sem hvatt er til þess að rauðhærð- ir gjaldi líku líkt reyni fólk að sparka í þá. - óká Heimili og skóli varar við áskorunum á Netinu á svokölluðum „Kick a ginger day“: Mótmæla ofbeldi í garð rauðhærðra EINBEITT Í TÖLVUNNI Víða í heiminum er saknæmt að mismuna fólki eftir útliti, kynhneigð eða öðrum þáttum sem fólk ræður ekki yfir sjálft. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY ÞORSKUR Þorskur er verðmætasti fiskur- inn og hefur gefið 23 milljarða af sér á fyrstu átta mánuðum ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SJÁVARÚTVEGUR Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 75 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins, sem er 12 millj- örðum meira en á sama tíma í fyrra, þegar verðmætið nam 63 milljörðum króna. Aflaverðmæt- ið hefur því aukist um 19 prósent á milli ára. Mest verðmæti er í botnfiski, en það var í ágúst orðið 52 milljarðar. Þorskafli er að verðmæti 23 milljarðar og ýsa 10 milljarðar. Þá nemur verðmæti karfans 6 milljörðum og ufsa 4,2 milljörðum. Verðmæti flatfisk- afla nam rúmum 7 milljörðum fyrstu á tímabilinu og uppsjávar- fisks 15 milljörðum, þar af síldar- aflans 7,2 milljörðum. - kóp Aflaverðmæti eykst: Verðmæti afla 75 milljarðar Veiðar Færeyinga Alls voru níu færeysk línuskip að veið- um í íslenskri lögsögu í októbermán- uði. Heildarafli þeirra var 578 tonn. Mest var um keilu í aflanum eða 212 tonn og þorskaflinn var 147 tonn. Heildarbotnfiskafli færeyskra skipa það sem af er árinu er nú 3.257 tonn. Þorskaflinn er kominn í 677 tonn en heimild færeyskra skipa á árinu er 1.200 tonn. SJÁVARÚTVEGSMÁL ÖRYGGISMÁL Eldur kom upp í rann- sóknaskipinu Poseidon, gamla tog- aranum Harðbak EA, við bryggju hjá Slippnum Akureyri í gær. Engin slys urðu á fólki og greið- lega gekk að ráða niðurlögum elds- ins. Fréttavefurinn Vikudagur sagði frá. Slökkvilið Akureyrar fékk til- kynningu um eldinn skömmu fyrir klukkan hálf ellefu og var fljótt á staðinn. Verið var að logskera á aðaldekkinu, þegar eldur komst í einangrun í rými fyrir neðan. Þar var líka glússatankur sem sprakk og við það magnaðist eldurinn um stund. Að loknu slökkvistarfi var rýmið reykræst. - shá Slippurinn á Akureyri: Eldur kom upp í rannsóknaskipi UNGLINGADRYKKJA Flestir unglingar í framhaldsskólum drekka áfengi. Margir þeirra fá áfengi hjá foreldrum sínum. NORDICPHOTOS/AFP GENGIÐ 19.11.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 237,4682 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,69 124,29 206,18 207,18 183,98 185,00 24,721 24,865 21,968 22,098 17,914 18,018 1,3891 1,3973 197,71 198,89 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR 50 40 30 20 10 0 Daglegar reykingar Ölvun sl. 30 daga Hass um ævina Breytingar á neyslu ungmenna frá 10. bekk yfir í framhaldsskóla 9,7% 12,9% 19,9% 47,7% 7,0% 7,7% % Nemendur í 10. bekk vorið 2007 Nemendur sem eru 16 ára og yngri í framhaldsskólum haustið 2007 Heima hjá sér 24,5% Heima hjá öðrum 61,8% Í bænum 47,6% Annars staðar úti við 30,7% Á skemmtistað 46,7% Á pöbb eða kaffihúsi 33,2% Fyrir framhaldsskólaball 53,6% Á framhaldsskólaballi 15,1% HVAR DREKKA FRAMHALDS- SKÓLANEMAR?* *HLUTFALL FRAMHALDSSKÓLANEMA SEM Í RANNSÓKN RANNSÓKNAR OG GREININGAR ÁRIÐ 2007 SAGÐIST DREKKA ÁFENGI STUNDUM EÐA OFT Á TILTEKNUM STÖÐUM.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.