Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 63

Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 63
FÖSTUDAGUR 20. nóvember 2009 43 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 20. nóvember 2009 ➜ Tónleikar 12.15 Tríó Reykjavíkur kemur fram á hádegistónleikum sem fara fram á Kjar- valsstöðum. Á efnisskránni verða verk eftir A. Dvorák og J. Suk. Aðgangur er ókeypis. 20.00 Sigga Beinteins heldur jólatón- leika í Keflavíkurkirkju við Kirkjuveg í Reykjanesbæ. 20.30 Friðrik Ómar og Jógvan Hansen verða með tónleika í Kirkju- og menn- ingarmiðstöðinni á Eskifirði. Húsið verður opnað kl. 20. 20.30 Hjörvar, Koi og Lára Rúnars- dóttir verða með tónleika í Bæjarbíói við Strandgötu í Hafnarfirði. 21.00 Hjaltalín, Snorri Helgason og Sigríður Thorlacius ásamt Heiðurspiltum halda tónleika í Gamla Bauk við Hafnarstétt á Húsavík. 22.00 Tónleikar á Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu 22. Fram koma Ultra Mega Technobandið Stefán, Nögl, Bróðir Svartúlfs og Vicky. Húsið verður opnað kl. 22. 22.00 Ívar Bjarklind heldur útgáfutón- leika á Batteríinu við Hafnarstræti 1-3. 22.00 Hammond-tríóið ásamt Andreu Gylfadóttur heldur tónleika á Kaffi Rósenberg við Klapparstíg. Flutt verður grúf- og blúskennd djasstónlist. 22.00 Dúndurfréttir flytja lög Deep Purple, Led Zeppelin og Uriah Heep á tónleikum á Græna Hattinum við Hafnarstræti á Akur- eyri. 23.00 Hljómsveitin HEK verður á bar 46 við Hverfisgötu 46. ➜ Sýningar Kristinn Ó. Pétursson hefur opnað sýn- ingu á Mokka við Skólavörðustíg 3a. Opið alla daga kl. 9-18.30. Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, Hrafnhildur Arnardóttir og Þorbjörg Halldórsdóttir hafa opnað sýninguna „Evudætur“ í Listasafninu á Akureyri við Kaupvangsstræti 12. Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Valgerður Guðlaugsdóttir hefur opnað sýningu hjá Suðsuðvestur við Hafnar- götu 22 í Reykjanesbæ. Opið um helg- ar kl. 14-17. Sýningin Heim - heiman í Edinborgar- húsinu við Aðalstræti 7 á Ísafirði. Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari og Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur eru aðstandendur sýningarinnar sem gefur innsýn í líf flóttamanna og hælis- leitenda sem komið hafa til Íslands á síðustu árum. Hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15 (6. hæð), hefur verið opnuð sýning á landslagsljósmyndum sem Grégory Gerault tók hér á landi. Opið alla virka daga kl. 12-19 og um helgar kl. 13-17. ➜ Síðustu Forvöð Til.....Raunir, málverkasýning Gunnars Gunnarssonar í Listasal Garðabæjar við Garðatorg 7, lýkur á sunnudag. Opið alla daga kl. 15-18. ➜ Dansleikir Ingó og Veðurguðirnir verða á Skemmtistaðnum SPOT við Bæjarlind í Kópavogi. Greifarnir verða á Glóðinni við Hafnar- götu í Reykjanesbæ. Silfur verður á Players við Bæjarlind í Kópavogi. ➜ Leikrit 20.00 Pálína Jónsdóttir flytur ein- leikinn Völva í Kassanum, sýningarrými Þjóðleikhússins við Lindargötu. ➜ Fyrirlestrar 14.50 Hjálmar H. Ragnarsson flytur erindi um listmenntun í Ketilhúsinu við Kaupvangsstræti á Akureyri. Styrmir Gunnarsson, fyrrver- andi ritstjóri Morgunblaðsins, sendi í gær frá sér á forlagi Ver- aldar bók sem hann kallar Umsátrið. Þar nýtir hann sér langvinna þekkingu á íslensku valdasamfé- lagi til að skoða aðdrag- anda hrunsins fyrir ári síðan og eru í verkinu mörg efnisatriði sem hafa ekki fyrr verið dregin fram í dagsljós- ið. Byggir hann margt á samtölum sínum við ýmsa af þátttakendum í þeirri atburða- rás sem endaði með þeim ósköpum sem skattborgarar og fyrirtæk- in verða að súpa seyðið af næstu vikur, misseri og ár. Bókinni lýkur Styrmir á sam- drætti þar sem hann víkur að möguleikum íslensks samfélags á næstu árum með beinum til- lögum um úrbætur. Er ekki að efa að bók þessi mun verða heitur moli manna í millum á næstu vikum. Ný bók um hrunið SAGNFRÆÐI Styrmir Gunnars- son, fyrrverandi ritstjóri. Colum McCann vann á miðvikudag National Book Award fyrir skáldsöguna Let the Great World Spin, sem lýsir fjölda fólks í New York á áttunda ára- tugnum sem kemst í kast við dularfullan mann sem gengur á vír milli háhýs- anna sem kallaðair voru tvíburaturnarnir. Verðlaunin sem hafa verið veitt í sextíu ár hafa lengi verið ein virt- ustu bókmenntaverðlaun vest- anhafs. þau eru veitt í nokkrum flokkum: í flokknum „nonfiction“ vann T. J. Stiles fyrir verk sitt „The First Tycoon: The Epic Life of Cornelius Vanderbilt,” ævisögu járnbrautakóngsins sem hófst af litlu en varð voldugur auðmaður með mikil áhrif. Sérstök verðlaun til ungra höfunda voru veitt Phillip Hoose fyrir „Claudette Colvin: Twice Toward Justice“ ævisögu svartrar konu sem neitaði sem unglingur að víkja sæti fyrir hvítum manni níu mánuðum fyrir sams konar atvik er Rosa Parks sat sem fastast. Við athöfnina á miðvikudag var vikið að dræmri sölu þeirra verka sem voru verðlaunuð. Saga McCanns seldist í 19 þúsund ein- tökum, mest verðlaunaverkanna. Íslandsvinurinn Dave Eggers var heiðraður sérstaklega fyrir fram- lag sitt til bandarískrar bókmenn- ingar. Heiðursverðlaun þáði svo Gore Vidal fyrir sinn langa feril. Bandarísk bókaverðlaun GORE VIDAL "Þúsundir lesenda munu leita í þessa sögu: Arnaldur stendur vel fyrir sínu...Meitluð og þaulhugsuð saga með nýjan og forvitnilegan sjónarhól Sigurðar Óla." Páll Baldvin Baldvinsson - Fréttablaðið "Svörtuloft er besta og skemmtilegasta bókin sem Arnaldur hefur sent frá sér um árabil." Þórarinn Þórarinsson - DV "Arnaldur stendur fremstur íslenskra spennusagnahöfunda og verður að segja eins og er að enginn kemst með tærnar þar sem hann hefur hælana." Árni Matthíasson - Morgunblaðið SVÖRTULOFT eftir Arnald Indriðason "... mögnuð og þrælspennandi bók sem enginn aðdáandi meistarans getur látið framhjá sér fara." Björn Ingi Hrafnsson - Pressan.is GRAFSKRIFT GRÆÐGINNAR "Svörtuloft er vel heppnuð bók. Glæpirnir skapa ramma utan um skarpa samfélagslýsingu sem vekur lesanda til umhugsunar um alla hina minnimáttar í samfélaginu." Katrín Jakobsdóttir - Eyjan SVÖRTU LOFT + MYRKÁ 3.990 kr á meða n birgði r endast "Enn einu sinni tekst Arnaldi að koma með fyrsta flokks glæpasögu." Yngvi Þór Kormáksson - Bókmenntir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.