Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 66
46 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR „Þetta byrjaði þannig að ég var með eitthvað af töfradóti til sölu í verslun minni, Börnum náttúrunn- ar, og fór eitthvað að fikta við þetta sjálfur,“ segir töframaðurinn John Tómasson sem hefur vakið mikla athygli fyrir töfrabrögð sín. Hann hefur meðal annars tekið að sér að troða upp á mannamótum bæði hér á landi og erlendis. „Ég komst svo að því að hér er til félag töframanna og þá má segja að áhuginn hafi kviknað fyrir alvöru,“ segir hann enn fremur um upphaf ferilsins. „Í sumar fór ég svo út til Las Vegas í skóla og þar bætti ég mikið við þekkingu mína.“ Hann segir um tuttugu og sex manns vera meðlimi í Hinu íslenska töframannagildi og þar af séu um sjö starfandi töfra- menn. Aðspurður segir John mikla leynd hvíla yfir faginu og að töfra- menn megi alls ekki tala um sum töfrabrögðin. „Það er viss tegund af töfrum sem alls ekki má tala um, en annað mega menn sýna og kenna, til dæmis spilagaldra.“ Í skólanum fékk John góðar ráð- leggingar um hvaða töfrar hentuðu honum og segist hann hafa sérhæft sig í spilagöldrum og því að láta hluti svífa. „Ég tek mikið af spila- göldrum, sem oft eru erfiðustu töfrarnir, og læt hluti svífa. Það tók mig um átta mánuði að ná því hvernig eigi að stjórna sápukúlum í loftinu, á meðan var eldhúsgólfið útatað í sápulegi. Konan var mjög ánægð þessa átta mánuði því gólfið var alltaf tandurhreint,“ segir John og hlær. Hann segist jafnframt sér- hæfa sig í töfrum sem kallast The Mentalist sem er nokkurs konar hugsanalestur. „Þá segi ég fyrir- fram hvað manneskjan er að hugsa eða gera. Ég veit fyrirfram hvaða spil, orð eða lit hún mun velja og svo framvegis.“ Það er ekki á allra færi að verða góður töframaður og segir John þetta tímafrekt áhugamál, menn verði að æfa sig daglega og í nokkra tíma í senn. „Menn verða eiginlega að borða þetta í morgunmat ætli þeir að ná einhverjum árangri,“ segir John að lokum. Áhugasamir geta haft samband við John á sjon- hverfing@internet.is eða símleiðis í síma 897 3083. -sm Les hugsanir og lætur hluti svífa TÖFRAR Töframaðurinn John Tómasson fór í skóla í Las Vegas til að læra töfrabrögð. Hann hefur sérhæft sig í spilagöldrum og í því að láta hluti svífa. Önnur kvikmyndin í Twilight-þrí- leiknum var frumsýnd í Hollywood í vikunni. Viðburðurinn var stjörn- um prýddur og mættu meðal annars leikkonan Jennifer Love Hewitt ásamt kærasta sínum, grínistanum Jamie Kennedy, og rapparinn 50 Cent. Leikararnir í New Moon mættu í sínu fínasta pússi á frumsýningu mynd- arinnar og þá sérstaklega leik- konurnar eins og sjá má á með- fylgjandi myndum. Stór hópur aðdáenda hafði safnast saman fyrir utan kvik- myndahúsið til að líta stjörnurnar augum. FÍN Á FRUM- SÝNINGU MEÐ BERA LEGGI Leikkonan Nikki Reed fer með hlutverk systur Edwards Cullen. Hún tók sig vel út í þessum ljósbláa kjól. VEL TIL HÖFÐ Kristen Stewart var óvenju kvenleg og sæt í þessum skósíða ballkjól. ÁSTFANGINN Leikarinn Peter Facinelli mætti á frumsýninguna ásamt eigin- konu sinni Jennie Garth, sem er þekkt- ust fyrir leik sinn í þáttunum Beverly Hills 90210. ORÐIN ELDRI Barnastjarnan Dakota Fanning fer með hlutverk í New Moon. Hún er orðin fimmtán ára og næstum fullorðin. RAUÐ OG SEIÐANDI Ashley Greene mætti í þessum fallega rauða kjól á frumsýninguna. Rauðhærðir eiga undir högg að sækja því fleiri þúsund manns hafa skráð sig meðlimi í svoköll- uðum „Spörkum í rauðhærða-dag- urinn“ á Facebook, þar á meðal nokkur fjöldi Íslendinga. Þegar lögreglan fór að rannsaka hóp- inn kom í ljós að 14 ára drengur frá Kanada bar ábyrgð á honum. Drengurinn bar fyrir sig húmor en lögreglan tók hart á málinu og lokaði síðunni. Nokkur hræðsla hefur skapast vegna dagsins hér á landi og meðal annars sendi skóla- stjóri Salaskóla í Kópavogi út til- kynningu til foreldra og varaði við ömurlegum eineltistilburðum. Rauðhærðum meðlimum í hljóm- sveitunum Nögl og UMTS fannst málið standa sér nærri og bjuggu til „Knúsum rauðhærða-dag- inn“ á móti. Böndin ætla að gera enn betur en að hvetja fólk til að knúsa rauðhærða og standa fyrir rauðhærðum tónleikum á Sódóma í kvöld. „Allir rauðhærðir fá þá að minnsta kosti samastað eina kvöld- stund,“ segir Þorsteinn Ólafs- son, trommuleikari í Nögl, meira í gríni en alvöru. Hann segir að það sé yfirleitt lítið mál að vera rauðhærður. „Það kemur reynd- ar alveg fyrir að fólk sé með ein- hver leiðindaskot á mann fyrir að vera rauðhærður, en svo fer það yfirleitt á taugum stuttu síðar og byrjar að afsaka sig og draga allt til baka.“ Auk hljómsveitanna Nögl og UMTS (Últra mega technobandið Stefán) ætla hljómsveitirnar Bróð- ir Svartúlfs og Vicky að styðja mál- efnið með því að koma fram. Tón- leikarnir eru eins og áður segir á Sódómu í kvöld og hefjast klukk- an 22. Miðar seldir við innganginn kosta eitt þúsund krónur. - drg Knúsum rauðhærða fólkið á tónleikum RAUÐHÆRÐIR STANDA SAMAN Kristófer Eðvarðsson hefur hendur í hári Þorsteins Ólafssonar, samstarfsmanns síns í Nögl, og Sigurðar Ásgeirs Árnasonar Olsen í UMTS. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.