Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 56
BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur Helgarblaðið: Heimili og hönnun: Menning: Kolbrún Halldórsdóttir í helgar- viðtali. Beinta Maria Didriksen og Levi Didriksen: Levi níu ára er stoð og stytta tvíburasystur sinnar sem er með sjúkdóm sem aðeins fimm manns í heiminum þjást af. Íslensk hönnun eins og hún gerist best. Húsgögn, arkitek- túr og vöruhönnun í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum. Þrjár óperufrumsýningar í maí. Mest seldu bókmenntaverk Evrópu í fyrra. Íslenska ímyndin á viðreisnar- árunum. Allt um Listahátíðina. 36 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Það er erfið- ari andstæð- ingur í næstu umferð, Elsa. Oddný ógurlega. Það er aldeilis. Núna ættirðu kannski að nota yfir- handarbragðið, Elsa. Eða kannski ættirðu að nota hælkrók eða hálstak. Eða bara að jafna hana við jörðu. Mér hefur aldrei líkað við hana. Hún er líka allt of góð að hekla. Ég verð að líta á þetta sem hrós. Palli, það tók mig þrjá tíma að þrífa hérna inni og á innan við 30 sekúndum hefurðu draslað allt aftur til. Vinningslíkurnar á hestinum mínum voru tíu á móti einum. Synd að hann lagði ekki af stað fyrr en tíu mínútur í tvö, langsíðastur. Litli froskurinn lærði að þegar einhver gerir sitt besta með ást í hjarta geta allar óskir hans ræst. Þú ert að hugsa um frammistöðumatið í vinnunni á morgun, er það ekki? Ætli stjórinn minn hafi séð þetta myndband? Þegar ég var lítil hófst jólaundirbúningur-inn hjá mér þegar Bókatíðindi komu í hús. Ég las vel og vandlega gegnum kynningarnar á hverri einustu barna- og unglinga bók áður en ég gerði óskalista í nokkrum eintökum og dreifði til helstu mögulegra gefenda. ÁRUM saman var Hringadróttinssaga efst. Ég sá teiknimyndina í bíó þegar ég var tíu ára og heillaðist. Gallinn við þá mynd er hins vegar sá að hún hættir í miðri bók svo um hver einustu jól vonaði ég að Fjölvi stæði við orð sín og gæfi út alla söguna, þangað til ég gafst upp og las bókina á ensku. Fékk hana svo í jólagjöf mörgum árum seinna frá pabba, sem mundi eftir óskalistunum frá 1981-9. BÓKATÍÐINDIN voru eins og fjársjóðskista, full af dýrgripum, sem ég mátti velja úr og fengi svo í hendur á jólunum. Hápunkturinn var að skríða undir sæng á jólanóttina og lesa til klukkan fimm. Þessir tímar eru því miður löngu liðnir enda fá mömmur ungra barna ekkert frekar að sofa út á jólunum en aðra daga. Hringadróttinssögu hef ég ekki lesið í óratíma en reyni stundum að horfa á myndirnar. NÚ renni ég hratt í gegnum Bókatíðindin og skoða helst titlana og kápurnar. Á okkar hraðsoðnu tímum getur þessi blanda ráðið því hvort maður eyðir tíma sínum í að kafa dýpra eða ekki. Og bókatitlar segja ansi margt. Stórskemmtilega stelpubókin hljómar vel í fyrstu þangað til það rifjast upp að fyrir einhver skammliðin jól kom út samsvarandi bók sem hét Stórhættulega strákabókin. Af hverju er stelpubókin ekki stórhættuleg líka? Og var strákabókin ekkert skemmtileg? BÆKUR sem bera nöfn eins og Auður og Rán ættu náttúrlega að fjalla um hrunið (eins og allar bækurnar sem komu út í haust) en eru þegar nánar er skoðað kvenmannsnöfn. Og eiginnöfn eru vinsælir titlar í ár enda vita allir um hverja bækurnar Vigdís og Snorri eru. FÆRRI vita nákvæmlega við hvaða Magneu er átt. En um hvern er bókin … og svo kom Ferguson. Hvern? Alex Ferguson fótboltaþjálfara? Söru Ferguson? Er hún kannski Prinsessan á Bessastöðum? Það er að minnsta kosti mynd af traktor utan á báðum bókunum. FYRIR nokkrum árum kom út bókin Viltu vinna milljarð? Það er kannski tímanna tákn að í ár kemur út bók eftir sama höfund sem heitir Sex grunaðir. Hvað á bókin að heita?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.