Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 12
12 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
VIÐSKIPTI Slitastjórnir gömlu bank-
anna þriggja telja að gloppa sé í
lögum um varnarþing sem geri það
að verkum að ekki sé hægt að rifta
óeðlilegum fjármálagjörningum
viðskiptamanna eftir að þeir flytja
lögheimili sitt til útlanda.
Einungis sé hægt að höfða slík
mál á hendur einstaklingum í varn-
arþingi þeirra, það er því landi þar
sem þeir hafa lögheimili. Á hinn
bóginn sé í gildi Evróputilskipun
sem segi að verði fjármálafyrirtæki
gjaldþrota sé varnarþingið aðeins í
því landi þar sem fyrirtækið var
skráð. Hafi fyrirtækið og einstakl-
ingurinn lögheimili hvort í sínu
landi er því komin upp pattstaða.
Viðskiptablaðið greindi fyrst frá
þessu í gær og sagði að slitastjórn-
irnar hefðu lýst áhyggjum af þessu
í bréfi sem sent var efnahags- og
viðskiptaráðuneytinu, dóms- og
mannréttindaráðuneytinu og efna-
hags- og skattanefnd Alþingis í síð-
ustu viku. Þar leggja þeir til laga-
breytingar til að koma í veg fyrir
þennan vanda.
Fréttablaðið hefur bréf slita-
stjórnanna undir höndum. Þar
kemur fram að vandamálið hafi
komið í ljós þegar stefna átti starfs-
manni Kaupþings sem keypt hafði
hús af bankanum á undirverði, að
talið er. Til stóð að reyna að rifta
kaupunum. Maðurinn sem um
ræðir er með lögheimili í Lúxem-
borg. Hann er ekki þekktur. Slita-
stjórnin telur sig hvorki geta höfðað
málið á Íslandi né þar ytra.
Þetta gerir það að verkum að
takist mönnum sem hugsanlega
hafa eitthvað óhreint í pokahorninu
að færa lögheimili sitt úr landi áður
en riftunar óeðlilegra gjörninga
er krafist getur verið vandkvæð-
um bundið að sækja málið. Takist
mönnum að forðast slíka riftun geta
þeir hugsanlega forðast gjaldþrot í
leiðinni.
Gylfi Magnússon, efnahags- og
viðskiptaráðherra, segir að lög-
fræðingar innan sem utan ráðu-
neytisins hafi þegar verið fengnir
til að skoða málið. Þeir séu þó ekki
endilega allir sammála mati slita-
stjórnanna hvað þetta varðar.
„Við erum fyrst og fremst að
reyna að komast til botns í því hvort
það er skynsamlegt og æskilegt að
leggja fram tillögur að lagabreyt-
ingum,“ segir Gylfi.
Jafnvel þótt til lagabreytinga
komi er hins vegar ekki víst að
þær verði afturvirkar. Hugsan-
lega þyrfti að láta reyna á það fyrir
dómstólum.
Slitastjórnirnar gera fleiri
athugasemdir í bréfi sínu, meðal
annars við það hversu skamman
tíma, sex mánuði, þeir hafa lögum
samkvæmt til að höfða riftunar-
mál frá því að kröfum er lýst í búið.
Umfang málanna sé oft svo mikið
að hætta sé á því að ef frestur-
inn verði ekki lengri kunni mál að
ónýtast vegna þess að ekki takist að
koma þeim til dómstóla.
Gylfi segir þessa ábendingu einn-
ig til meðferðar í ráðuneytinu og að
henni verði hraðað.
stigur@frettabladid.is
SAMFÉLAGSMÁL Ísland á því sem
næst heimsmet í að vista fólk á
stofnunum og því þarf að breyta.
Þetta segir í tilkynningu frá
ViVe-verkefninu svokallaða um
virkari velferð, sem skilaði nið-
urstöðum og tillögum að úrbót-
um til heilbrigðis- og félagsmála-
ráðherra í gær.
Starfshópur á vegum ViVe
hefur unnið að tillögunum
undanfarnar vikur.
Í hópnum eru Evald Krog,
þekktur norskur baráttumaður
fyrir réttindum fatlaðra, Guð-
jón Sigurðsson, formaður MND-
félagsins, Guðmundur Magnús-
son, formaður ÖBÍ, Sigrún Björk
Jakobsdóttir, formaður bæjar-
ráðs Akureyrar, Sigursteinn
Másson, formaður Geðhjálp-
ar, og verkefnisstjórinn Oddur
Ástráðsson.
Segir í niðurstöðunum að áður
en til þess komi að málefni fatl-
aðra flytjist frá ríki til sveitar-
félaga í ársbyrjun 2011 þurfi að
vera búið að stíga stór skref í þá
átt að tryggja að fötluðum standi
til boða að lifa lífi sínu á eigin
forsendum utan stofnana.
Til þess að svo megi verða
þurfi að koma á fót einstaklings-
miðuðu aðstoðarmannakerfi og
tryggja með lögum og samning-
um að réttur til aðstoðar fylgi
hverjum og einum óháð búsetu.
Setja þurfi á fót virkan sam-
ráðsvettvang til að undirbúa
málið og nauðsynlegar laga- og
reglubreytingar þurfi að liggja
fyrir eigi síðar en 1. maí 2010.
Samfélagslegur ávinning-
ur af slíkri stefnubreytingu
yrði umtalsverður, segir í
niðurstöðunum. - sh
Starfshópur um virkari velferð skilaði niðurstöðum:
Vill draga úr stofn-
anavæðingunni
RÁÐHERRAR FÁ NIÐURSTÖÐUR Álfheiði Ingadóttir heilbrigðisráðherra og Árna Páli
Árnasyni félagsmálaráðherra voru afhentar niðurstöður starfshópsins í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÞOKA Í BÚDAPEST Svartaþoka var á
bökkum Dónar í Ungverjalandi þegar
þessi mynd náðist af manni á reið-
hjóli. NORDICPHOTOS/AFP
Frábært úrval af spilum
og púsluspilum
Jólavörur, gjafavörur, jólakort og margt fleira
Gott úrval af Lego
Súpertilb
oð:
Áður: 44.
900
Nú 16.900
DVD myndir
1.195
35%
afsláttur
BABY born
kastali
Bratz dúkkur
frá 1.500
Úrval af Bratz dúkkum og fylgihlutum
BABY born
dúkka 4.500
Diego Mega Blocks
50% afslá
ttur:
Áður: 5.9
90
Nú 2.980
ÞJÓNUSTA Gunnar Sigurðsson, for-
seti bæjarstjórnar Akraness, seg-
ist harma þá ákvörðun stjórnar
Nýja Kaupþings banka að loka úti-
búi sínu á Akranesi 7. desember.
Þetta kemur fram á fréttavefnum
Skessuhorni.
„Ég er mjög óhress með þetta
og finnst þessi tíðindi frá bank-
anum koma sem þruma úr heið-
skíru lofti nú þegar síst skyldi.
Þessi tíðindi fara illa í heimamenn
og það er slæmt að missa þessa
starfsemi héðan úr bænum. Þó að
afgreiðslufólki í bankanum bjóð-
ist störf í öðrum útibúum tapast
við þetta tengd störf og ýmis þjón-
usta.“ Gunnar telur að flytja hefði
átt Mosfellsbæjarútibú bankans á
Akranes. Ákvörðunin sé í takti við
ákvarðanir stjórnvalda að undan-
förnu um samdrátt í opinberri
þjónustu á landsbyggðinni. - shá
Akranes missir banka:
Harmar lokun
bankaútibús
Telja gloppu í lögum opna
flóttaleið fyrir fjármálafólk
Þeir sem flytja lögheimili sín úr landi lenda í vari fyrir riftunum, að mati slitastjórna bankanna sem lýsa
áhyggjum í bréfi til ráðuneyta. Vafasöm viðskipti Kaupþings við starfsmann fyrsta málið sem sigldi í strand.
LÚXEMBORG Ef viðskiptamaður er með varnarþing í öðru landi er ekki hægt að
rifta óeðlilegum fjármálagjörningum hans.
Undanfarið hafa margir fjármála-
menn undirbúið brottflutning til
útlanda til að forðast riftunarmál.
Viðskiptablaðið segist hafa heimildir
fyrir þessu.
Fréttablaðið hefur til dæmis
heimildir fyrir því að Ingólfur Helga-
son, fyrrverandi forstjóri Kaupþings
á Íslandi, standi nú í flutningum úr
landi. Hann hefur þó ekki breytt
lögheimili sínu.
Margir stórlaxar úr íslensku við-
skiptalífi hafa lögheimili í útlöndum
og eru því í vari fyrir riftunarmálum.
Til dæmis:
■ Ágúst og Lýður Guðmundssynir
■ Hannes Smárason
■ Björgólfur Thor Björgólfsson
■ Ólafur Ólafsson
■ Hreiðar Már Sigurðsson
■ Sigurður Einarsson
■ Magnús Ármann
■ Sigurður Bollason
Ekki fengust upplýsingar um það
hversu lengi þessir menn hafa haft
lögheimili erlendis.
MARGIR STÓRLAXAR SKRÁÐIR ERLENDIS