Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 73
FÖSTUDAGUR 20. nóvember 2009 53
FÓTBOLTI Aðeins einn nýliði er
meðal 32 þátttökuþjóða í úrslita-
keppni heimsmeistarakeppninnar
sem haldin verður í Suður-Afríku
næsta sumar. Það er landslið Sló-
vakíu sem varð sjálfstætt ríki árið
1993. Áður hafði Tékkóslóvakía níu
sinnum komist á HM og tvívegis í
sjálfan úrslitaleikinn – árin 1934
og 1962.
Þetta er aðeins í annað sinn síðan
1950 sem einn nýliði tekur þátt í
heimsmeistarakeppninni. Þá voru
Englendingar að taka þátt í sinni
fyrstu heimsmeistarakeppni en
þeir ensku þóttu lengi of fínir til
að taka þátt í HM.
Alls sex þjóðir taka nú annað sinn
þátt í úrslitakeppni HM og af þeim
hefur bið Norður-Kóreu verið lang-
samlega lengst. Norður-Kóreumenn
tóku síðast þátt í Englandi árið 1966
og slógu reyndar þá í gegn.
Öllum að óvörum komust Norð-
ur-Kóreumenn þá áfram upp úr
sínum riðli ásamt Sovétmönnum
en skildu bæði Ítalíu og Chile eftir.
Norður-Kórea vann meira að segja
1-0 sigur á Ítölum. Liðið féll svo
úr leik í fjórðungsúrslitum þegar
Eusebio skoraði þrennu í 5-3 sigri
Portúgals.
Árið 2004 var ákveðið að HM
færi fram í Suður-Afríku og er
þetta í fyrsta sinn sem keppnin
kemur til Afríku. Japan varð fyrsta
þjóðin fyrir utan gestgjafana til að
tryggja sér sæti á HM hinn 6. júní
síðastliðinn en alls tryggðu fjór-
ar þjóðir sér farseðilinn til Suður-
Afríku þann daginn.
Holland varð sama dag fyrsta
Evrópuþjóðin til að ná þeim áfanga
eftir 2-1 sigur á Íslandi á Laugar-
dalsvellinum.
Aðeins ein þjóð hefur tekið þátt í
öllum átján keppnunum til þessa og
hefur þar að auki tryggt sér þátt-
tökurétt í þeim tveimur næstu. Það
er Brasilía en úrslitakeppnin árið
2014 verður einmitt haldin þar.
Öll sex álfusamböndin eiga full-
trúa í Suður-Afríku á næsta ári.
Evrópa á flesta eða þrettán tals-
ins. Það skal tekið fram að Ástralía
tók í þetta sinn þátt í undankeppni
Knattspyrnusambands Asíu. - esá
Ljóst er hvaða 32 þjóðir keppa í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu á næsta ári:
Einn nýliði mætir til leiks í Suður-Afríku
HM-ÞJÓÐIRNAR
32 þjóðir keppa um heimsmeistara-
titilinn í knattspyrnu næsta sumar.
Knattspyrnusamband Evrópu:
Danmörk 4. sinn á HM (síðast 2002)
England 13. sinn (2006)
Frakkland 13. sinn (2006)
Grikkland 2. sinn (1994)
Holland 9. sinn (2006)
Ítalía 17. sinn (2006)
Portúgal 5. sinn (2006)
Serbía 2. sinn (2006)
Slóvakía 1. sinn
Slóvenía 2. sinn (2002)
Spánn 13. sinn (2006)
Sviss 9. sinn (2006)
Þýskaland 17. sinn (2006)
Knattspyrnusamband Asíu:
Ástralía 3. sinn (2006)
Japan 4. sinn (2006)
Norður-Kórea 2. sinn (1966)
Suður-Kórea 8. sinn (2002)
Knattspyrnusamband Afríku:
Alsír 3. sinn (1998)
Fílabeinsströndin 2. sinn (2006)
Gana 2. sinn (2006)
Kamerún 6. sinn (2002)
Nígería 4. sinn (2002)
Suður-Afríka 3. sinn (2002)
Knattspyrnusamb. Suður-Ameríku:
Argentína 15. sinn (2006)
Brasilía 19. sinn (2006)
Chile 8. sinn (1998)
Paragvæ 8. sinn (2006)
Úrúgvæ 11. sinn (2002)
Knattsp. Norður- og Mið-Ameríku:
Bandaríkin 9. sinn (2006)
Hondúras 2. sinn (1982)
Mexíkó 14. sinn (2006)
Knattspyrnusamband Eyjaálfu:
Nýja-Sjáland 2. sinn (1982)
VERÐA MEÐ Á HM Slóvakarnir Martin
Skrtel og Miroslav Stoch fagna sigri í
undankeppni HM. NORDIC PHOTOS/GETTY
LUKKUDÝRIÐ Zamalek heitir lukkudýr
heimsmeistaramótsins í Suður-Afríku.
NORDIC PHOTOS/BONGARTS
FÓTBOLTI Ari Freyr Skúlason, leik-
maður sænska B-deildarliðsins
GIF Sundsvall, var í gær útnefnd-
ur knattspyrnumaður ársins í
Medelpad sem er hérað í norður-
hluta Svíþjóðar.
„Það var vissulega skemmti-
legt að fá þessa viðurkenningu,
sérstaklega þar sem það voru
leikmennirnir sjálfir sem tóku
þátt í kjörinu,“ sagði Ari Freyr
við Fréttablaðið í gær. „Ég var
líka sáttur við mína frammi-
stöðu á tímabilinu en liðinu hefði
mátt ganga mun betur. Við stefn-
um klárlega að því að fara
aftur upp í úrvalsdeild-
ina á næsta ári.“
Þó er óvíst hvort Ari
Freyr
verður
áfram
hjá lið-
inu en
hann á
eitt ár eftir af
samningi sínum.
„Þeir vilja semja
við mig sem allra
fyrst en ég vil
bíða, að minnsta
kosti fram í jan-
úar. Ég vil þó
komast að hjá
stærra liði og von-
andi selja þeir mig
ef það verður í boði
fyrir mig.“ - esá
Ari Freyr Skúlason:
Leikmaður árs-
ins í Medelpad
ARI FREYR SKÚLASON