Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 20.11.2009, Blaðsíða 78
58 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. egna, 6. 999, 8. vandlega, 9. fugl, 11. guð, 12. miklu, 14. þrætur, 16. tímabil, 17. af, 18. röð, 20. persónu- fornafn, 21. etja. LÓÐRÉTT 1. kvenflík, 3. átt, 4. ávaxtaré, 5. fóstra, 7. andstaða, 10. svörður, 13. rangl, 15. rótartauga, 16. tímabils, 19. skóli. LAUSN LÁRÉTT: 2. espa, 6. im, 8. vel, 9. lóm, 11. ra, 12. stóru, 14. þrátt, 16. ár, 17. frá, 18. róf, 20. ég, 21. siga. LÓÐRÉTT: 1. pils, 3. sv, 4. perutré, 5. ala, 7. mótþrói, 10. mór, 13. ráf, 15. tága, 16. árs, 19. fg. LÖGIN VIÐ VINNUNA „Ég er með iPod í eyrunum á „shuffle“. Lögin detta inn eitt af öðru, Jungle Drum með Emilí- önu, Everyday Al með Naughty By Nature, Dumb með Nirvana. Svo hlusta ég syndsamlega mikið á Black Eyed Peas þó það sé víst bara kúl að fíla fyrstu plöturnar þeirra.“ Andrés Jónsson almannatengill. Strákarnir Sveppi og Auddi voru tölu- vert gagnrýndir fyrir framferði sitt í sveitaferð sinni þegar þeir heimsóttu Tannstaðabakka í Hrútafirði. Þeir ætla að heimsækja sveitina á nýjan leik en ætla nú að keyra í gegnum hana. Þeir fengu Vilhelm Anton Jónsson og Egil „Þykka“ Einarsson með sér í lið og efndu til keppni um hvor væri fljótari hringinn í kringum landið. Alls kyns reglur eru bundnar við þennan nýstárlega kapp- akstur sem sýndur verður í tveimur þáttum næstu föstudaga. Annars eru stærri og merkilegri tíð- indi í vændum af þeim félögum, því það hefur kvisast út að vinirnir munu hugsanlega stjórna fréttaannál Stöðvar 2 og fá til liðs við sig nýjustu stjörnu Stöðvar 2, Steinda Jr. Ekki er vitað hvernig þetta leggst í fréttadeildina en annál- arnir eru yfirleitt eina tækifæri hennar til að spreyta sig á gaman- sömum nótum. Heimasíða Besta flokksins, stjórn- málaafls Jóns Gnarr, er komin í loftið á slóðinni bestiflokkurinn.mobil. Þar geta forvitnir fræðst aðeins meira um stefnumál Jóns og nánasta samstarfs- mann hans, Dags Kára G. Jónssonar sem er titlaður framkvæmdastjóri og lögfræðingur. Kannski er það kaldhæðnislegt en undir síðunni hljómar slagari Tinu Turner, Simply the Best, sama lag og hljómaði í Baugsmynd- bandinu frá Mónakó sem vakið hefur athygli. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Í kreppunni breytist margt. Fólk tekur sér nýja hluti fyrir hend- ur, kýlir jafnvel á að láta gamla drauma rætast. Eins og til dæmis Steinar Júlíusson. „Ég er mennt- aður grafískur hönnuður og var að vinna á auglýsingastofu,“ segir hann. „Mér og öðrum var sagt upp á stofunni, svo ég byrjaði að vinna „frílans“ og er reyndar enn. Ég hef alltaf haft gaman af að baka, sér- staklega eftirrétti og sætabrauð. Því datt mér í hug að byrja að baka múffur og sjá til hvert það myndi leiða. Ég sé ekkert eftir því.“ Steinar segir möguleika múff- unnar vannýtta á Íslandi. „Þetta er óplægður akur. Það eru meiri möguleikar í þessu en bara að baka súkkulaði- og karamellumúffur.“ Steinar bakar undir nafninu Meistaramúffur og selur enn sem komið er múffurnar sínar ein- göngu á veitingahúsinu Karamba á Laugavegi 22. „Þetta hefur gengið mjög vel. Það er góður fílingur fyrir þessu og fólk er að lýsa ánægju sinni með múffurnar á Facebook-síð- unni. Ég byrjaði með bananamúffu með hnetu- og sykurtoppi en blá- berjamúffan fylgdi á eftir. Það er „vegan“-múffa, bökuð úr spelthveiti og það eru engar dýraafurðir í henni. Væn og græn, sem sé. Stefn- an er svo auðvitað að koma múff- unum víðar, svo fleiri fái að njóta, en halda samt ákveðnum standard. Það er möst að múffunnar sé neytt með góðu kaffi.“ - drg Íslenskar múffur á markaðinn ÓPLÆGÐUR AKUR Steinar Júlíusson bakar Meistaramúffur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8 1 5.000. 2 Thierry Henry. 3 Guðmundur Guðmundsson. „Ég byrjaði að undirbúa þetta fyrir hálfu ári og í byrjun þessa mánaðar komst skriður á málið fyrir alvöru. Ég er samt með báða fætur á jörð- inni og ætla ekki að fara fram úr sjálfum mér,“ segir athafnamaður- inn Friðrik Weisshappel. Friðrik er með tvo nýja Laun- dromat-staði í bígerð til viðbótar við þá tvo sem hann rekur í dönsku höfuðborginni. Hann er bjartsýnn á að allavega annar staðurinn, ef ekki báðir, geti orðið að veruleika en til þess þurfi ýmislegt að falla með honum. Hann segir raunsætt að Laundromat þrjú verði að veru- leika, númer fjögur yrði algjör bónus. Staðsetningarnar sem Frið- rik hefur í huga eru annars vegar á Vesterbro og hins vegar við Islandsbrygge í miðborg Kaup- mannahafnar. „Ef þetta fellur rétt gætu staðir númer þrjú og fjögur opnað á næstunni. Hins vegar getur alltaf eitthvað komið upp á og það er ekkert fast í hendi. Annar stað- urinn eða báðir gætu farið út um þúfur þannig að maður verður að vera raunsær.“ Friðrik trúir því að góðir hlutir gerist hægt. „Ég er ekkert að fara að skuldsetja mig upp í rjáfur og hlaupa til með einhverjum æði- bunugangi. Gamall maður sagði einu sinni við mig að maður ætti að eiga fyrir hlutunum sem maður vildi kaupa og ég er svona að reyna að laga mig að þeirri speki.“ Friðrik viðurkennir að hann sé bjartsýnn á að allavega annar staðurinn verði að veruleika. Hann er búinn að smíða 24 borð, mála slatta af stólum og á heilt bretti af vörum. Þá hefur hann keypt slatta af eldhúsáhöld- um smátt og smátt. „Fólk þekkir það af eigin raun hvað það kostar mikin pening að fjárfesta í eldhús- áhöldum fyrir heimilið þannig að það getur rétt ímyndað sér kostn- aðinn við að kaupa slíka hluti fyrir veitingastað.“ Friðrik upplýsir að það hafi allt- af verið planið að opna fleiri Laun- dromat-kaffihús. Og ef þessar tvær staðsetningar ganga ekki upp verði hann með augun opin fyrir ein- hverjum öðrum. „Ég get ekki hætt núna, salan á stöðunum hefur auk- ist um rúm ellefu prósent á milli ára og á meðan maður hefur gott fólk með sér og finnst þetta skemmti- legt þá er engin ástæða til að liggja í sófanum með tærnar upp í loft,“ segir Friðrik og bætir því við að hann hafi búið sér til ágætis kokk- teil úr skandinavískri skynsemi og íslenskum eldmóð. „Ég hef alltaf verið hrifinn af íslenska eldmóðin- um en hann verður að vera virkjað- ur á réttum tíma. Ég gat líka orðið alveg brjálaður yfir þessari sam- skandinavísku skynsemi en saman er þetta alveg dýnamísk blanda.“ freyrgigja@frettabladid.is FRIÐRIK WEISSHAPPEL: SPENNANDI TÍMAR FRAM UNDAN Friðrik með tvö ný kaffihús á teikniborðinu Á FULLUM KRAFTI Friðrik Weisshappel segir það alltaf hafa verið planið að opna nýja Laundromat-staði í Kaupmannahöfn. Hann hefur augastað á tveimur staðsetningum í miðborg Kaupmannahafnar og er þegar búinn að smíða borð, mála stóla og kaupa eldhúsáhöld. Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veður- guð, mun leika dramatískt hlutverk í annarri þátta- röðinni af Rétti. Þetta staðfestir Sigurjón Kjartans- son, annar af handritshöfundum þáttanna í samtali við Fréttablaðið. „Ingó mun leika poppstjörnu sem kemst í kast við lögin.“ Sigurjón upplýsir jafnframt að Tvíhöfða-félagi sinn, Jón Gnarr, leiki einnig í þátt- unum en vildi ómögulega gefa upp í hvaða karakter hann myndi bregða sér. „Það á eftir að koma fólki á óvart,“ segir Sigurjón. Tökur á Rétti hefjast á miðvikudaginn í næstu viku og Sigurjón neyðist til að láta uppi hálfgert hernaðar- leyndarmál; að Magnús Jónsson snúi aftur í hlutverki sínu sem hinn hrokafulli en afbragðsgóði lögfræð- ingur, Logi Traustason. Aðdáendur fyrri seríunnar eru eflaust forvitnir að vita hver örlög hans urðu eftir ótrúlegan lokaþátt. Þá mun Jóhanna Vigdís Arn- ardóttir einnig endurtaka hlutverk sitt sem og Vík- ingur Kristjánsson og Jóhannes Haukur Jóhannes- son. „Ég get lofað mikilli dramatík,“ segir Sigurjón en leikstjóri þáttanna er Sævar Guðmundsson. Fjöldi annarra þjóðþekktra leikara kemur einnig við sögu í þessu lögfræðidrama. Hinir þaulreyndu Sigurður Skúlason og Erlingur Gíslason verða áber- andi sem og Sara Dögg Ásgeirsdóttir en hún lék einmitt aðalhlutverkið í Pressu um árið. Sigurjón upplýsir að hún verði í stóru hlut- verki og bætir við að þeir Davíð Guðbrandsson og Stefán Hall- ur Stefánsson komi einnig töluvert við sögu í þátt- unum. Þættirnir verða á dagskrá Stöðvar 2 fljót- lega upp úr áramótum. - fgg Ingó Veðurguð og Jón Gnarr í Rétti 2 SAMAN Í RÉTTI Þeir Jón Gnarr og Ingó Veðurguð leika í framhaldsþáttaröðinni af Rétti. Ingó leikur poppstjörnu sem kemst í kast við lögin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.