Fréttablaðið - 20.11.2009, Síða 8
8 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
1 Hvað hafa margir refir verið
veiddir árlega síðustu ár?
2 Hver notaði hendina til
að leggja upp mark og koma
Frakklandi í úrslit HM í knatt-
spyrnu?
3 Hver er þjálfari danska
handknattleiksliðsins GOG
Svendborg?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 58
FJÁRMÁL „Falli ég og aðrir fyrrverandi starfsmenn
frá okkar kröfum mun því helmingur þeirra renna
til Breta og Hollendinga,“ segir í yfirlýsingu Yngva
Arnar Kristinssonar þar sem hann útskýrir ástæðu
þess að hann krefst 229 milljóna króna úr þrota-
búi Landsbankans.
„Um er að ræða lögvarðar kröfur sam-
kvæmt ráðningarsamningnum og eru
þær aðallega til komnar vegna kauprétta
sem voru í vanskilum af hálfu bank-
ans frá árinu 2007. Óvíst er hvort þær
verða samþykktar,“ segir Yngvi, sem
kveður ljóst að ríkissjóðir Bretlands og
Hollands muni fá um helming af eignum
þrotabús Landsbankans. „Ég hef ekki áhuga
á að styrkja þær þjóðir frekar en orðið
er. Þá er ljóst að um helmingur
af kröfum starfsmanna,
verði þær samþykktar,
munu renna til ríkissjóðs
vegna tekjuskatta og enn meira ef tekið er tillit til
óbeinna skatta. Ísland og íslenska ríkið mun því
ekki skaðast af kröfum mínum í þrotabúið,“ segir í
yfirlýsingu Yngva, sem starfaði sem framkvæmda-
stjóri verðbréfasviðs hjá Landsbankanum en
starfar nú tímabundið sem ráðgjafi Árna Páls
Árnasonar félagsmálráðherra.
Þá upplýsir Yngvi að hann ætli ekki sjálf-
um sér þær upphæðir sem hann telur sig
eiga rétt á. „Sjálfur hef ég ákveðið að komi
til þess að kröfur mínar verði samþykktar
af þrotabúinu renni þær, að frádregnum
sköttum, til velferðarmála,“ segir í
yfirlýsingunni. - gar
Yngvi Örn Kristinsson sem gerir 229 milljóna króna kröfu í bú Landsbankans:
Ætlar að forða peningunum
undan kröfum Icesave-þjóða
YNGVI ÖRN KRISTINSSON Áður framkvæmdastjóri í
Landsbankanum en er nú ráðgjafi félagsmálaráð-
herra. Fái Yngvi greiðslur frá Landsbankanum
kveðst hann munu gefa peningana til
velferðarmála.
Norðurlandaráð veitir árið 2010 náttúru- og umhverfis-
verðlaun í 16. sinn. Verðlaunin eru 350 þúsund danskar
krónur.
Þema ársins 2010
Árið 2010 verða náttúru- og umhverfisverðlaunin veitt norrænu
fyrirtæki, stofnun, fjölmiðli eða einstaklingi, sem hefur verið í
fararbroddi og haft áhrif, beint eða óbeint, á fjármála-
markaðinn, fjármögnunariðnaðinn, banka eða ráðgjafa í því
augnamiði að vinna að langtímamarkmiðum og samþætta
sjálfbærni (náttúru- og umhverfismál og samfélagsábyrgð) í
fjársýslu.
Leitað er m.a. eftir tilnefningum um:
• aðila sem með starfi sínu hafa aukið þekkingu neytenda og
viðskiptavina í gegnum fjölmiðla, með fyrirlestrahaldi, ritun
bóka eða á sambærilegan hátt,
• frjáls félagasamtök/einstaklinga sem hafa með góðum árangri
verið virk í vinnuhópum (siðfræðiráðum o.s.frv.), stjórnum
eða því um líku,
• umhverfisfyrirtæki, sjóði, banka o.s.frv. sem óháður aðili
hefur lagt mat á.
Öllum er heimilt að senda tillögur. Rökstyðja skal tillöguna og
lýsa því í hverju starfið eða framlagið felst og hver inni eða hafi
innt það af hendi. Verkefnið verður að vera faglegt og hafa
þýðingu fyrir stærri hópa í einu eða fleiri ríkjum Norðurlanda.
Tillagan skal rúmast á tveimur útprentuðum síðum í A4-broti.
Verðlaunahafinn er valinn af dómnefnd sem skipuð er fulltrúum
norrænu ríkjanna fimm og sjálfstjórnarsvæðanna þriggja,
Færeyja, Grænlands og Álandseyja.
Tillögunni á að skila á sérstöku eyðublaði, og skal hún hafa
borist skrifstofu dönsku sendinefndarinnar í Norðurlandaráði í
síðasta lagi föstudaginn 11. desember 2009 kl. 12.00.
Eyðublaðið má nálgast á vefsíðu Norðurlandaráðs
www.norden.org eða á skrifstofu dönsku sendinefndarinnar.
Norðurlandaráð
Danska sendinefndin
Christiansborg
DK-1240 København K
Sími +45 3337 5999
Fax +45 3337 5964
Netfang: nrpost@ft.dk
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Náttúru- og
umhverfisverðlaun
Norðurlandaráðs 2010
Eignatjón og ölvun
Fjögur umferðaróhöpp urðu í
umdæmi lögreglunnar í Borgarfirði
og Dölum í liðinni viku. Engin teljandi
meiðsl urðu á fólki en töluvert eigna-
tjón. Einn ökumaður var tekinn fyrir
ölvun við akstur og annar fyrir að aka
undir áhrifum fíkniefna í umdæminu
í liðinni viku.
LÖGREGLUMÁL
Loka í Neskaupstað
Ákveðið hefur verið að loka skrifstofu
sveitarfélagsins Fjarðabyggðar í
Neskaupstað um áramótin. Starf-
semin verður flutt til Reyðarfjarðar.
Tilhögunin á að spara sveitarfélaginu
fimmtán milljónir króna árlega. Á
skrifstofunni í Neskaupstað starfa
ellefu starfsmenn.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
JAFNRÉTTISMÁL Ef atvinnulífið sýnir
ekki marktækan árangur í því að
jafna kynjahlutföll í stjórnum fyr-
irtækja fljótlega upp úr áramót-
um er einboðið að setja kvóta til að
rétta hlut kvenna. Þetta sagði Árni
Páll Árnason félagsmálaráðherra í
ávarpi sínu við setningu norrænn-
ar ráðstefnu um kyn og völd sem
nú stendur yfir í Reykjavík.
Árni Páll lýsti einnig vonbrigð-
um með að hlutfall kvenna í stjórn-
um við endurreisn fyrirtækja hefði
ekki hækkað sem skyldi, þrátt fyrir
skýr ákvæði í lögum og verklags-
reglum þar um.
Í tilkynningu frá félagsmála-
ráðuneytinu segir að Norðurlanda-
þjóðirnar séu í fremstu röð í heim-
inum þegar litið sé til stöðu kvenna
í stjórnmálum. Á hinn bóginn
blasi við allt önnur mynd þegar
litið sé til hlutar kvenna í stjórn-
um og meðal stjórnenda stærstu
fyrirtækja þar og innan samtaka
í atvinnulífinu.
Sérstaklega er fjallað um það á
ráðstefnunni hvers vegna hægar
gengur að jafna hlut kynjanna í
atvinnulífinu en í stjórnmálunum.
Á ráðstefnunni eru kynntar
niðurstöður rannsóknar á kyni og
völdum í stjórnmálum og atvinnulífi
á Norðurlöndum sem norræna ráð-
herranefndin fól Norrænu kvenna-
og kynjarannsóknarstofnuninni að
vinna á síðasta ári. Tuttugu fræði-
menn frá öllum Norðurlöndunum
hafa tekið þátt í verkefninu. - sh
Ef kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja lagast ekki sjálfkrafa þarf að beita handafli:
Árni Páll boðar kynjakvóta
ÁRNI PÁLL ÁRNASON Vill knýja fram jöfn
kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja ef þau
koma ekki af sjálfu sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BANDARÍKIN, AP Heilbrigðisfrum-
varp Baracks Obama Banda-
ríkjaforseta og Demókrata-
flokksins var í gær lagt fram í
öldungadeild Bandaríkjaþings,
tæpum tveimur vikum eftir að
fulltrúadeildin samþykkti sína
útgáfu af frumvarpinu.
Útgáfa öldungadeildarinnar
er í meginatriðum sambærileg
útgáfu fulltrúadeildarinnar,
en þó skilur á milli í nokkrum
veigamiklum atriðum. Til að
mynda er ekki í frumvarpi öld-
ungadeildar ákvæði sem bann-
ar greiðslur til fóstureyðinga úr
sjóðum hins opinbera.
- gb
Heilbrigðisfrumvarp Obama:
Kemur til kasta
öldungadeildar
VIRKJANIR Uppbygging jarðhita-
svæða til orkuöflunar hefur tekið
áratugi og ljóst er að slík svæði
á Reykjanesi verða ekki tilbú-
in í bráð. Enn á eftir að rannsaka
svæðin og óljóst er hve mikla orku
þau gefa eða hvenær hún verður
nýtanleg.
Ólafur G. Flóvenz, forstjóri
Íslenskra orkurannsókna, bendir á
að uppbygging á Nesjavöllum hafi
tekið um tuttugu ár og í Svartsengi
þrjátíu ár. Menn hefðu getað unnið
hraðar, en best sé að uppbyggingin
sé hófsöm og í skrefum.
„Það er mjög mikil orka bund-
in í þessu og það er langt, langt
umfram það sem við getum notað,
en ég vil taka það fram að þetta
er ekkert í hendi. En þegar menn
eru að ræða um hvort nóg orka er
aðgengileg fyrir álver af tiltek-
inni stærð skiptir tímaramminn
gríðarlegu máli.
Ef spurt er: Geturðu útvegað
þessa orku árið 2012? er svarið
væntanlega nei. Það er ekki hægt
að útvega orkuna fyrir 360 þúsund
tonna álver árið 2012, enda eru
menn náttúrlega að hugsa um að
byggja þetta upp í áföngum, á ein-
hverjum óskilgreint löngum tíma.
Það byggist auðvitað ekkert upp
öðruvísi en orkan fáist.“
Ólafur segir að til að svara
spurningum um hve mikil orka sé
á svæðinu verði að halda rannsókn-
arborunum áfram. Þær standi allar
meira eða minna fastar í leyfismál-
um. „Menn þurfa að halda þeim
áfram á ákveðnum skynsamleg-
um hraða til að geta svarað þess-
um spurningum, um hve mikið og
hvenær.“
Framkvæmd-
ir eru hafnar við
álver Norðuráls
í Helguvík og
stefnir fyrirtæk-
ið að því að það
geti framleitt
360 þúsund tonn
af áli árlega.
Slíkt álver þarf
625 megavött
af orku. Líkt og
Fréttablaðið greindi frá í gær er
fyrirhugað að reisa álverið í fjór-
um níutíu þúsund tonna áföngum.
Vonast er til að fyrsti áfanginn
verði tilbúinn 2012. Miðað við þetta
verður fullbúið 360 þúsund tonna
álver tilbúið 2015 til 2016. Óvíst er
þó hvaðan orkan í það mun koma.
„Það er alltaf heppilegra að
byggja jarðhitann frekar hægt
upp. Það er eðli kerfanna, þetta
er allt öðruvísi en vatnsaflið,
þar þekkja menn ána og vita hve
mikið vatn rennur í henni, þannig
að hægt er að ganga að ákveðinni
stærð af virkjun vísri. Í jarðhitan-
um er það reynslan sem sker úr um
þetta. Þá er óvarlegt að fara af stað
með mjög stór orkuver á einu litlu
svæði.“
Ragnar Guðmundsson, forstjóri
Norðuráls, segist litlar áhyggj-
ur hafa. Samkvæmt mati á
virkjanaáhrifum á suðvesturhorn-
inu sé næg orka til fyrir álverið í
Helguvík og aðra starfsemi. Orka
Hellisheiðarvirkjunar hafi verið
vanmetin, auk þess sem Lands-
virkjun eigi enn óselda orku í kerf-
um sínum. kolbeinn@frettabladid.is
Orkuöflun fyrir álver
gæti tekið tugi ára
Uppbygging jarðvarmavirkjana tekur áratugi og ljóst er að ekki verður til orka
fyrir 360 þúsund tonna álver í Helguvík strax. Rannsóknum er ekki lokið á
svæðum sem ætluð eru til orkuöflunar. Framkvæmdir við álver eru hafnar.
SVARTSENGI Uppbygging virkjana við Svartsengi hefur tekið um þrjátíu ár. Sérfræð-
ingur í orkuöflun segir að best sé að byggja jarðhitasvæði hægt og rólega upp.
Rannsóknum á svæðum sem nota á til öflunar orku fyrir álver í Helguvík er ekki
lokið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÓLAFUR G.
FLÓVENZ
VEISTU SVARIÐ?