Fréttablaðið - 20.11.2009, Síða 10
10 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Eftirfarandi skuldabréfaflokkur hefur verið gefinn út: Umsjónaraðili vegna töku
bréfanna til viðskipta er
MP Banki hf.
Reykjavík, 20. nóvember 2009
HS VEITUR HF., KT. 431208-0590,
HEFUR BIRT LÝSINGU VEGNA TÖKU
SKULDABRÉFA FÉLAGSINS TIL VIÐSKIPTA
HJÁ NASDAQ OMX ICELAND HF.
Skuldabréfaflokkur að fjárhæð kr. 6.000.000.000 var gefinn út þann
15. desember 2008 og flokkurinn er opinn.
Nafnverðseiningar eru kr. 5.000.000.
Auðkenni flokksins er HSVE 08 1 og áætlað er að bréf að fjárhæð
kr. 6.000.000.000 verði tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX
Iceland hf. þann 20. nóvember 2009.
Skuldabréfin eru 10 ára vaxtagreiðslubréf. Bréfin bera 5,3% árlega
vexti af höfustól og reiknast samkvæmt 30/360 daga reglu.
Skuldabréfin eru bundin vísitölu neysluverðs, sem er reiknuð og
birt af Hagstofu Íslands, skv. lögum nr. 12/1995, til verðtryggingar
með grunnviðmiðun 322,3 stig í október 2008. Fyrsti vaxtagjald-
dagi er 15. desember 2009. Vextir reiknast frá og með útgáfudegi
skuldabréfanna þann 15. desember 2008 og eru greiddir árlega,
alls 10 gjalddagar. Skuldabréfin eru án uppgreiðsluheimildar.
Gjalddagi höfuðstóls er 15. desember 2018.
ISIN númer bréfanna er IS0000018877
Lýsinguna má nálgast á prentuðu formi hjá útgefanda, HS Veitum hf.,
Brekkustíg 36, 260 Reykjanesbæ og á heimasíðu útgefanda
www.hsveitur.is í 12 mánuði frá dagsetningu tilkynningar þessarar.
Alhliða uppskrift
Pulsa (hituð í vatni,
EKKI SOÐIN!!!) Pulsu-
brauð og bara hvað sem
þig langar að hafa með.
(Nema grænar baunir.
Grænar baunir í pulsu-
brauði geta valdið
öndunarerfiðleikum.)
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
www.lapulsa.is
EFNAHAGSMÁL Hótel- og veitinga-
menn mótmæla harðlega mis-
rétti sem þeir segja felast í til-
lögu ríkisstjórnarinnar um tvöfalt
kerfi virðisaukaskatts á matar-
sölu. Ályktun þessa efnis var sam-
þykkt á árlegum haustfundi þeirra
á Hótel Loftleiðum í gær.
Í ályktun samtakanna er sér-
staklega bent á sölu á tilbúnum
mat sem ekki er neytt á staðnum
og hefur því enga þjónustu í för
með sér. „Tvöfalt kerfi virðisauka-
skatts leiðir til þess að það fer eftir
starfsleyfi söluaðilans hversu háan
virðisaukaskatt viðskiptavinurinn
greiðir fyrir nákvæmlega sama
mat. Ef veitingaleyfi er á staðn-
um greiðir viðskiptavinurinn 14
prósenta virðisaukaskatt en ef
sami tilbúni maturinn er keyptur
í verslun eða sjoppu þá er greiddur
sjö prósenta virðisaukaskattur.“
Þá skora Samtök ferðaþjónust-
unnar á stjórnvöld að draga til-
löguna til baka enda leiði „flók-
ið og óskiljanlegt“ skattkerfi til
aukinnar svartrar atvinnustarf-
semi. Samtökin segjast munu leita
til samkeppnisyfirvalda vegna
málsins.
Þá kemur fram í tilkynningu
sem Samtök ferðaþjónustunnar
hafa sent frá sér að ferðaþjónustu-
fyrirtæki hafi fyrir löngu samið
um verð vegna næsta árs og því
sé ótækt að hækka skatta á þau
fyrirvaralaust.
Samtökin benda sömuleiðis á að
kolefnisskattar og hækkun bensín-
og olíugjalds muni leiða til þriggja
til fjögurra prósenta hækkunar á
eldsneytisverði sem hafi áhrif
á flugrekstur, rekstur hópbif-
reiða, flestar tegundir afþrey-
ingar og bílaleigur. „Gera má ráð
fyrir að þetta þýði um það bil 300
milljónir í aukaálögur á íslensku
flugfélögin.“
Í áliti sem Viðskiptaráð Íslands
sendi frá sér í gær segir hins
vegar að í kynningu stjórnvalda
á aðgerðum skattamálum felist
jákvæð tíðindi í þeirri staðreynd
að heildaraukning skattheimtu sé
minni en upphaflega hafi verið
gert ráð fyrir. „Samanlagðar
tekjur af almennum tekjuskatti
einstaklinga og fjármagnstekj-
ur eru þannig áætlaðar 117 millj-
arðar króna í stað upphaflegrar
áætlunar um 143 milljarða króna
skattheimtu,“ segir þar og um
leið er bent á að áætlanir um auð-
linda- og orkuskatt hafi líka verið
endurskoðaðar til lækkunar.
„Þrátt fyrir þetta er fyrirliggj-
andi endurskoðun skattkerfis-
ins til mikils vansa og ljóst er að
verulega mun draga úr samkeppn-
ishæfni þess og skilvirkni,“ segir
þó einnig í álitinu. „Í kjölfar efna-
hagsþrenginga líkt og nú standa
yfir er veruleg hætta á varanleg-
um fólks- og fjármagnsflótta og
breytingar af þessu tagi eru til
þess fallnar að ýta frekar undir
slíka þróun.“ olikr@frettabladid.is
Breytingum
á skattkerfi
víða mótmælt
Tillögum um tvöfalt virðisaukaskattkerfi verður vísað
til samkeppnisyfirvalda. Viðskiptaráð fagnar því að
skattahækkanir séu minni en upphaflega var ráðgert.
Í KRINGLUNNI Forvígismenn ýmissa samtaka verslunar og viðskipta sendu frá sér yfirlýs-
ingar í gær þar sem skattaáætlunum stjórnvalda er mótmælt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
PÍLAGRÍMAR Í MEKKA Pílagrímarnir
eru byrjaðir að streyma til hinnar
helgu borgar Mekka í Sádi-Arabíu.
Hápunkti ná pílagrímaferðir ársins í
næstu viku. NORDICPHOTOS/AFP
UTANRÍKISMÁL Jón Bjarnason,
sjávar útvegs- og landbúnaðarráð-
herra, mun á næstu dögum sitja
36. aðalfund Matvæla- og land-
búnaðarstofnunnar Sameinuðu
þjóðanna (FAO) í Róm og flytja
ávarp fyrir hönd Íslands. Fund-
urinn fylgir í kjölfar ráðherra-
fundar FAO um fæðuöryggi sem
utanríkisráðherra, Össur Skarp-
héðinsson, sótti fyrir Íslands hönd.
Í tengslum við fundina í Róm
hélt Norræna ráðherranefnd-
in kynningu á samvinnu Norð-
urlandanna um varðveislu
erfðaauðlinda og hélt Jón Bjarna-
son opnunarávarp fyrir hönd
nefndarinnar. - shá
Fæðuöryggi rætt í Róm:
Jón mætir fyrir
Íslands hönd
HÆLISLEITENDUR Útlendingastofnun
fékk hælisleitendurna Paul og Ros-
emary Ramses í skýrslutöku í síð-
ustu viku, vegna umsóknar þeirra
um hæli hér á landi.
Skýrslutakan tók rúmar fjór-
ar klukkustundir og var rætt við
hjónin hvort í sínu lagi. Þetta er í
þriðja sinn sem Paul þarf að gefa
skýrslu vegna umsóknar sinnar
um hæli á Íslandi.
Katrín Theodórsdóttir, lögmað-
ur Ramses-fjölskyldunnar, segir
að skýrslutakan hafi gengið vel.
„Þau eru alltaf sjálfum sér sam-
kvæm og afskaplega trúverðug,“
segir hún.
Að skýrslutöku lokinni hafi
verið gefin fyrirheit af hálfu stofn-
unarinnar um að umsóknarferlið
yrði klárað á allra næstu vikum.
Aðspurð segir hún ekki óalgengt að
hælisleitendur sitji fyrir svörum í
svo langan tíma í senn.
Fram hefur komið í blaðinu að
Paul og Rosemary bíða enn eftir
svari frá Útlendingastofnun um
hvort þau fá að setjast hér að
eður ei. Paul sótti fyrst um hæli í
febrúar 2008.
Syni þeirra, Fídel Smára, hefur
verið meinuð vist á leikskól-
um Reykjavíkurborgar, þar sem
foreldrarnir eru ekki skráðir í
íslenska kerfið. Nú síðast var Ros-
emary bannað að þreyta ökupróf,
af sömu ástæðu. Þau eru bæði í
vinnu og greiða skatta. - kóþ
Ramses-hjónin spurð spjörunum úr hjá Útlendingastofnun, hvort í sínu lagi:
Gáfu skýrslu í rúma fjóra tíma
RAMSES-FJÖLSKYLDAN Þau búast við
að fá svör frá Útlendingastofnun á allra
næstu vikum um hvort þau fá hæli hér
á landi eður ei. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON