Fréttablaðið - 20.11.2009, Page 22
22 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
ATHAFNAVIKA: Prjónadagurinn mikli
„Ég lét mitt fyrsta verk verða
að skreyta Óskabrunninn,“
segir leikkonan Hrefna Hall-
grímsdóttir, kunn sem annar
helmingur tvíeykisins Skoppa
og Skrítla.
Hrefna er talskona Alþjóð-
legu athafnavikunnar og er með
Athafnateygju númer 173. Sú
kvöð fylgir Athafnateygjunni
að handhafar hennar þurfa að
ljúka ákveðnum verkefnum
áður en þeir geta látið hana
ganga til næsta manns. Hrefna
fékk teygjuna á mánudag.
Hún afhenti hana föður sínum
samdægurs.
Þær Skoppa og Skrýtla hafa
safnað óskum barna í brunn-
inn víða um heim í þrjú ár og
eru óskirnar í honum í kringum
þrjátíu þúsund.
Óskabrunnurinn verður vígð-
ur í Borgarleikhúsinu klukkan
tíu dag og hafa þær Skoppa og
Skrýtla boðið hundrað börnum
úr þremur skólum til að vera
viðstödd athöfnina. Börnin,
sem eru á aldrinum fjögurra
til sjö ára, hafa unnið að verk-
efnum um það hvað þau lang-
ar til að gera þegar þau verða
stór í skólum sínum alla vikuna.
Börnin kynna verkefni sín við
athöfnina en hitta síðan fólk úr
ýmsum starfsstéttum. - jab
Skoppa og Skrítla vígja Óskabrunn barnanna:
Hafa safnað þrjátíu
þúsund óskum
SKOPPA OG SKRÍTLA Hrefna Hallgríms-
dóttir, þekkt sem Skrítla, afhenti föður
sínum Athafnateygjuna sama dag og
hún fékk hana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í tilefni Alþjóðlegrar athafnaviku
hélt dansarinn Peter Anderson
hjá Íslenska dansflokknum fyrir-
lestur um lesblindu í stuðnings-
áfanga fyrir lesblinda nemendur
í Fjölbrautaskólanum í Ármúla á
miðvikudag.
Elín Vilhelmsdóttir, kennslustjóri
dyslexíustoðþjónustu FÁ, segir
Peter hafa verið frábæran. „Hann
náði vel til nemendanna. Hann
hvatti þá til dáða og jók trú þeirra
á sjálfum sér,“ segir Elín.
„Það að hann er sjálfur lesblind-
ur hefur mikil áhrif á nemendur. Ég
vil endilega að hann nýtist fleiri les-
blindum. Við vorum tveir kennar-
ar inni hjá hópnum og hann kom
okkur til að hugsa. Samt erum við
bæði vön að vinna með lesblindum
nemendum.“
Peter er nú fastráðinn dans-
ari hjá Íslenska dansflokknum en
hann hefur í fimmtán ár dansað hjá
ýmsum dansflokkum í Evrópu.
- sh
Lesblindur dansari úr Íslenska dansflokknum hafði góð áhrif á nemendur FÁ:
Dansari fræðir um lesblindu
„Við ætlum að prjóna saman
barnavettlinga og gefa þá í söfn-
un Mæðrastyrksnefndar,“ segir
Gerður Eðvarðsdóttir, sem á og
rekur hannyrða- og kaffihús-
ið Heitt á prjónunum á Ísafirði.
Hún reiknar með um fimmtán
manns, allt frá átta ára til átt-
ræðs, í prjónakaffi sem hald-
ið verður í hannyrðaverslun-
inni í dag í tilefni af útgáfu nýja
prjónablaðsins Björk.
Þetta er fyrsta tölublað prjóna-
blaðsins sem bætist í litríka flóru
prjónablaða á markaðnum. Þau
verða nú að minnsta kosti fjögur
og tengjast sum þeirra ákveðnum
gerðum af garni, jafnt íslensku
sem innlendu. Í nýja blaðinu er
lögð áhersla á íslensk munst-
ur og viðtöl við prjónakonur
og ýmislegt fleira sem tengist
prjónaskap.
Útgáfunni er fagnað í að
minnsta ellefu hannyrðaverslun-
um víða um land á milli klukk-
an fjögur og sex í dag og fitjað
verður upp og prjónað í nokkrum
þeirra. Vinsældir prjónaskapar
hafa vaxið jafnt og þétt síðustu
misseri og sér ekki fyrir enda á
því.
Prjónakaffi hefur verið haldið
öll mánudagskvöld í hannyrða-
versluninni Heitt á prjónunum
síðan búðin opnaði í júní. Kökurn-
ar og kruðeríið í kaffihúsinu
bakar Gerður sjálf.
„Það er alltaf mikil eftirvæn-
ing eftir nýju prjónablaði. Ég
verð bara að treysta á að vera
komin með það í hendur,“ segir
Sigrún Ingvarsdóttir í hannyrða-
versluninni Esar á Húsavík þegar
Fréttablaðið ræddi við hana í
gær. Hún reiknar með mikilli
aðsókn í tilefni af útkomu tíma-
ritsins, sem verður fagnað fyrir
norðan á milli klukkan fjögur og
sex í dag.
Sigrún segir Húsvíkinga alvana
prjónakaffi sem þessu enda sé
Slysavarnadeild kvenna á Húsa-
vík með árlegt prjónakaffi. Það
næsta verður haldið 9. desember
næstkomandi. Af þeim sökum
telur hún ólíklegt að prjónarn-
ir verði teknir upp í dag. Boðið
verður upp á kaffi og með því og
rætt um prjónaskap auk þess að
von er á einhverjum uppákom-
um. „Við erum alltaf spennt fyrir
nýjum munstrum,“ segir hún.
jonab@frettabladid.is
Hannyrðafólk bíður spennt
eftir nýjum prjónamynstrum
Nýtt prjónablað kemur út í dag. Hannyrðafólk bíður spennt eftir því hvaða munstur leynast þar. Prjóna-
skapur hvers konar á miklum vinsældum að fagna víða um land. Mun fleiri prjónablöð eru gefin út nú.
FRÁ HÚSAVÍK Húsvíkingar eru alvanir prjónaskap. Í desember ár hvert heldur Slysa-
varnadeild kvenna á Húsavík slík kvöld þar sem ýmislegt verður til úr garninu.
PETER ANDERSON Peter flutti fyrirlestur í
stuðningsáfanga fyrir lesblinda. Hann er
sjálfur lesblindur. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
PRJÓNAKVÖLD Ísfirðingar hafa komið
saman á mánudagskvöldum í hannyrða-
versluninni Heitt á prjónunum síðan í
sumar og spjallað yfir prjónaskapnum.
09.00 – 12.00 Nýsköpunarmiðstöð
Íslands á Húsavík - Opið hús, Garð-
arsbraut 5, 3. hæð Húsavík
10.00 – 16.00 Hugmyndasmiðja
Klaks, Klak, Nýsköpunarmiðstöð
atvinnulífsins, Kringlunni 1 (gamla
Morgunblaðshúsið)
12.00 Slow food-kynning, Nýheimar,
Höfn í Hornafirði (miðrými)
12.00 – 13.00 Samfélagsleg
nýsköpun, Ebikos, Háskólinn í
Reykjavík, Kringlunni 1, stofa K5
12.10 Frumkvöðlar í vísindaporti,
Háskólasetur Vestfjarða, Ísafirði
13.00 – 20.00 Smíði rafbíls, Lagna-
kerfamiðstöð Íslands, Keldnaholti
13.00 – 14.00 Hlutverkasetur, Kynn-
ing, Hlutverkasetrið, Borgartúni 1, 2.
hæð (gengið inn sjávarmegin)
14.00 – 16.00 Barn og náttúra, Litla
kistan, Bergstaðastræti 13
14.00 – 16.00 Leikræn óvissuferð,
Hlutverkasetrið, Borgartúni 1, 2. hæð
(gengið inn sjávarmegin)
Upplýsingar um ótímasetta
viðburði má finna á heimasíðu
Athafnavikunnar, www.athafna-
vika.is
Föstudagurinn
20. nóvember
Mikill kraftur er í Athafna-
vikunni á Höfn en þar eru 65
atburðir skráðir í vikunni. Í
sveitarfélaginu búa um 2.100
íbúar þannig að viðburðafjöldi
er tilkomumikill.
Meðal þess sem bryddað hefur
verið upp á er hláturjóga, þrauta-
lausn í Framhaldsskólanum í
Austur-Skaftafellssýslu og sýning
Ara Þorsteinssonar hjá Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands á mynd-
bandi frá Noregi. Þar var búið
að útbúa litla útgáfu af virkjun
sem byggði á þeim kröftum sem
myndast þegar saltvatn mætir
fersku vatni, en slík skilyrði má
finna víða í sveitarfélaginu.
Athafnateygjurnar ganga svo
rösklega manna á milli í bænum
en markmið aðstandenda er að
sem flestir taki þátt í leiknum.
Nánari upplýsingar má sjá á
www.athafnateygjan.is og http://
www.rikivatnajokuls.is/media/
vidburdir/athafnavika.pdf.
65 atburðir í 2.000 manna samfélagi á Höfn í Hornafirði:
Vikan mjög vinsæl