Fréttablaðið - 20.11.2009, Qupperneq 24
24 20. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Barnasáttmáli Sameinuðu
þjóðanna er tvítugur í dag.
Bandaríkin og Sómalía eru
einu aðildarríki Sameinuðu
þjóðanna sem ekki hafa
fullgilt hann.
Barnasáttmálinn, eins og samn-
ingur Sameinuðu þjóðanna um
réttindi barnsins er nefndur í dag-
legu tali, var samþykktur á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna
20. nóvember 1989.
Fyrir Íslands hönd var hann
undir ritaður árið 1990 og síðan
fullgiltur í nóvember 1992. Nú
hefur verið ákveðið að lögfesta
sáttmálann á Íslandi.
Barnasáttmálinn er eini alþjóð-
legi samningurinn sem á sérstak-
lega við um börn. Hann felur í sér
alþjóðlega viðurkenningu á því
að börn séu hópur sem hafi sjálf-
stæð réttindi, óháð foreldrum eða
forsjáraðilum.
Í samningnum er að finna lista
yfir almenn réttindi barna, svo
sem réttinn til menntunar, heilsu-
gæslu og vernd fyrir misnotkun og
vanrækslu.
Þau ríki sem hafa fullgilt samn-
inginn hafa jafnframt skuldbundið
sig til þess að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að tryggja börnum
þessi réttindi.
Í nýrri ársskýrslu Barnahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF,
kemur fram að margt hefur áunn-
ist á þessum tuttugu árum sem
liðin eru síðan samningurinn tók
gildi.
Jafnt og þétt hefur til dæmis
dregið úr tíðni barnadauða. Þannig
létust árið 1990 12,5 milljónir
barna áður en þau náðu fimm ára
aldri, en árið 2008 var fjöldi þeirra
sem létust yngri en fimm ára kom-
inn niður í 8,8 milljónir, þrátt fyrir
töluverða fjölgun mannkyns.
Um 84 prósent barna á grunn-
skólaaldri í heiminum stunda nám
og bilið milli kynjanna í grunn-
skólaástundun minnkar stöðugt.
Giftingaraldur barna hækk-
ar í sumum löndum og færri
stúlkur þurfa að þola afskurð á
kynfærum.
Réttindi barna
í hávegum höfð
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
A
FP
HEYRIR EINHVER? Í sumar efndi Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna til leiðtogafundar
ungmenna meðan G8-fundur stóð yfir í Róm.
SKÓLASTUND Í PAKISTAN Í
flóttamannabúðum í Pakistan
settust börnin saman í hóp til
að hlýða á kennarann.
SKÓLABÖRN Í BANGLADESS Aðstaðan
sem þessir krakkar hafa til að vinna
heimavinnuna sína er ekki beysin.
BÓLUSETNING Í AFGANISTAN
Nú í vikunni stóð yfir átak í
Afganistan til að bólusetja
börn gegn mænusótt. Þessi
drengur í höfuðborginni Kabúl
tók auðmjúkur á móti dropa frá
heilbrigðisstarfsmanni.
NEYÐARKALL Í PARÍS
Tvö hundruð skóla-
börn í París stilltu
sér í gær upp til að
mynda neyðarmerk-
ið SOS skammt frá
Eiffelturninum til að
minna á Barnasátt-
málann, sem tók gildi
fyrir tuttugu árum.
Vínráðgjöf verður í dag frá 14-18
AFMÆLISVEISLA Í DAG!
FRÍR HUMAR*
*1KG súpuhumar fylgir með ef
keypt er stór askja af XL humri
TILBOÐIÐ GILDIR Í DAG